Mánudagur, 9. apríl 2007
Barist til þrautar?
Það vita það allir í skákinni, að ég sem ekki jafntefli nema í fulla hnefana, og alls ekki við félaga og vini! Kemur ekki til mála að láta Ingvar fá normið baráttulaust!
Við Ingvar höfum barist hart í mörgum skákum hin síðari ár -- ok, ég er að plata.
En við Ingvar eigum frægasta jafntefli íslenskrar skáksögu, í síðustu umferð í Rvk open 2004.
Ég vil óska Ingvari til hamingju með stórkostlegan árangur í mótinu.
Ég held að allir skákmenn viti, að ég sé til í að fá mér pulsu í dag. Annars myndi ég hundur heita, eða eitthvað þaðan af verra.
![]() |
Ingvar Þór vantar hálfan vinning í titiláfanga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 8. apríl 2007
Er Fiennes enn að leika í Schindler's List?
![]() |
Ástarfundur í flugvél hafði slæm eftirköst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 8. apríl 2007
Spurning að fara að handtaka þennan!
![]() |
Hvetur íraska hermenn til að hætta samstarfi með Bandaríkjamönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 8. apríl 2007
"Rakbragðið"
Gunnar Björnsson, smábloggari, skemmtir sér við að minnast á gambítinn minn í skákinni gegn Frakkanum í gær, nefndi hann "rakbragðið".
Já, Klakkur hafði gaman að þessu. Málavextir voru þeir, að ég mætti alblóðugur á skákstað og þurfti að bregða mér á kvennaklósettið með "hjúkrunarkonu" til að þrífa það versta af.
Ég hafði nefnilega ekkert nennt að stúdera fyrir Frakkann Lamoureux. Ég sá, að hann tefldi afbrigði sem ég kannaðist vel við.Ég las hann rétt og ákvað, að tefla þetta bara beint af augum. Ég slakaði því á í gær, tók þessu rólega, og fór síðan í Hreyfingu að ganga fimm, chillaði þar, fór í gufuna og svoleiðis. Síðan rakaði ég mig og þegar ég var að pakka græjunum, datt mér skyndilega í hug, þegar klukkan var rúmlega hálf fimm, hálftíma fyrir skák, að raka af mér slykjuna á hausnum. Ég hafði auðvitað ekki réttar græjur, en ákvað að láta vaða!
Ég flýtti mér aðeins of mikið og skar mig á nokkrum stöðum. Þegar ég var búinn hélt ég reyndar, að bloðið væri farið, en ekki aldeilis. Síðan rauk ég á skákstað, kom aðeins of seint, en var síðan bent á, að ég væri alblóðugur á höfðinu.
Þetta var semsagt rakgambíturinn. Og hann virkaði vel, því ég held ég hafi sjaldan eða aldrei unnið alþjóðlegan meistara svona auðveldlega í kappskák. Þetta var semsagt einn áreynslulausasti sigur sem ég man eftir.
Það borgar sig að tefla "rakbambítinn"
Myndin uppi er af Ingvari Xbita...úff, þegar hann fær þetta killerlook hljóta menn að leika af sér fyrr eða síðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 8. apríl 2007
Ingibjörg rúin trausti
Kemur ekki á óvart. Hún hefur fengið marga upp á móti sér með allskonar aulahætti, t.d. svikunum við R-listann, hroka og yfirgangi, dylgjum í garð annarra stjórnmálaforingja, osfrv. Og hún hefur enn ekki sýnt, að hún hafi neitt sérstakt fram að færa í pólítíkinni, amk ekkert jákvætt. Og andúðin á henni hefur vísast vaxið enn við það, að þjóhnappakratarnir ráðast á þá, sem gagnrýna hana, með offorsi og kalla þá "karlpunga", "karlrembur" og menn "haldna kvenfyrirlitningu." Stundum held ég, að Samfó hafi, nánast í heild sinni, glatað glórunni. En svo segir:
Ingibjörg Sólrún er sá formaður sem flestir voru neikvæðir gagnvart eða rúm 50%.
Það furðar mig mest, hversu lítil þessi neikvæðni er.
![]() |
Geir nýtur mestra vinsælda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Laugardagur, 7. apríl 2007
Möppet ársins
Þetta hlýtur að vera mesta möppet ársins, hingað til a.m.k.
En það versta er að setja aðra íbúa hússins í hættu.
![]() |
Kviknaði í út frá flúrlampa sem notaður var við kannabisræktun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 7. apríl 2007
Hálfvitar
Hef margsagt það hér á síðustu vikum. Svona náunga á að taka úr umferð, mjög, mjög lengi
![]() |
Lögregla eltist við ölvaða ökumenn er brugðu undir sig tveim jafnfljótum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 7. apríl 2007
Hryðjuverkabankar
Þetta fer allt eftir því, hvernig menn skilgreina hryðjuverkasamtök.
Til dæmis vilja sum samtök, og sumir stjórnmálaflokkar, valda Íslandi ómældum skaða. Spurning hvort slíkir flokkar ættu ekki að kallast hryðjuverkasamtök.
En ég myndi a.m.k eiga í miklum erfiðleikum með að skipta um banka!!
![]() |
Ertu hryðjuverkamaður? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 7. apríl 2007
Íranir og Bandaríkjamenn
Ætli Íranir hafi lært þetta af Bandaríkjamönnum, eða Bandaríkjamenn af Írönum?
![]() |
Íranar segja ásakanir áróður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 6. apríl 2007
Kaupþingsmótið
Jæja, Gunnar Björnsson hefur sagt frá 4. umferð. Ég ætla þá bara að láta nægja að segja frá minni skák.
Ég fékk skoska stórmeistarann Colin McNab með hvítu. Ekkert annað en sigur kom til greina. Ég tefldi við hann í 1. umferð á Hastings skákmótinu 2005/2006, og vann, og það með svörtu. Hann er mjög sterkur með hvítt, og teflir morkið.
Ég negldi á hann nýjung í byrjuninni, held ég. Fékk ég slíka rjómastöðu, að ég ætlaði ekki að trúa þessu. Þar náði ég að plata hann illilega. En hann varðist vel og sennilega hef ég ekki fundið besta framhaldið, en það voru svo margar leiðir um að velja. Jafntefli varð síðan niðurstaðan.
Nú, fimmta umferð.
Í stórmeistaraflokki sigraði Guðmundur Kjartansson Björn Þorfinnsson. Hann hefur staðið sig rosalega vel strákurinn og er taplaus eftir 5 umferðir. Stefán vann Jón Viktor, Róbert vann Braga og útlendingar börðu síðan hverjir á öðrum.
Í meistaraflokki vann Ingvar Xzibit enn á ný og er efstur ásamt Bellin, sem gerði jafntefli við mig í kvöld. Ég lét plata mig í byrjuninni og fékk nánast óteflanlega stöðu. Bellin þessi er meistari í juðinu og sveið Korchnoi með svörtu um daginn, þar sem hann hafði aðeins örlitla yfirburði. En ég hélt mínu. Lék reyndar jafnteflisstöðu, sem ég hafði einhvern veginn náð að bjarga mér í, niður í einum leik, með skelfilegum afleik í tímahrakinu, en hann sá þetta ekki og þvingaði fram þráskák. Úff, þarna slapp ég vel.
Sig. Daði og Hjörvar gerðu jafntefli, Sigurbjörn rúllaði upp Kazimierz, Heimir tapaði gegn Ingvari, McNab vann Frakkann með langa nafnið.
Jæja, bara ein skák á morgun. Maður er gjörsamlega örmagna eftir þessar tvær erfiðu skákir í dag. Vonandi nær maður að hvíla sig aðeins á morgun.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu mótsins.
SGB
Skák | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)