Meikuppið

Það er ábyggilega langt síðan hljómsveitarlimirnir hafa birst með utanaðkomandi aðila á mynd og verið með minna meikupp.

 


mbl.is Condoleezza og Kiss í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kroppasýningar

Æ, ætli ég verði ekki bara sammála Sóleyju og þeim hinum í andstöðu við þessar kroppasýningar. Ég hef amk engan áhuga á að fylgjast með þessu...en stelpurnar mega mín vegna leika sér í þessu ef þær vilja, en ég skil ekki pointið.
mbl.is Alexandra Helga valin ungfrú Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju fá

þessir aular þarna þrjár myndir af sér í blöðin?

Var Mogginn að hæðast að þeim, eða auglýsa þá?


mbl.is Fámenn mótmæli við Ráðherrabústaðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Amazon

Spurning að senda þeim email og biðja um fá að fá sendar zippaðar myndir af daglegu lífi þeirra.

 


mbl.is Myndir nást af óþekktum ættbálki í Brasilíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pyntingar

Ég skil hvað vinstrigræningjar eru að væla um pyntingar. Þeir hafa nú pyntað landsmenn með málþófi og nöldri úr ræðustóli Alþingis, svo ekki sé talað um að siga Jóni Bjarnasyni á þjóðina.

Það er vissulega meiri líkamsþjáning að fá á sig vatnspyntingu en ræðuhöld, en hinn líkamlegri sársauki hverfur fljótlega eftir að pyntingum lýkur, en andlegi sársaukinn af ræðum JB og annarra snillinga vinstrigrænna getur varað í marga mánuði.


mbl.is Sviðsetja vatnspyntingar á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara að velta fyrir mér

hvað verður síðan um gula vökvann sem sturtað er niður úr geimstöðinni? Eða brúna systemið? Brennur þetta upp, eða gæti þetta t.d dottið niður á Vesturbæ Rvk...? Eða svífur þetta bara um geiminn eins og gervitunglin?
mbl.is Eina geimklósettið bilað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misheppnaðar auglýsingar

Nei, þessi fyrirsögn hefur ekkert með nýjustu Kóperníkusar-auglýsingar Símans að gera, þó þær séu að mínum dómi "overkill" sem áhorfendur fái fljótlega leið á og telji kannski að úr því fyrirtækið hafi efni á svona bruðli hljóti verð þjónustu þess að vera of hátt.

En málið er, að mörg fyrirtæki landsins hafa svokallaða fyrirtækjabíla sem rúnta um vel merktir eigenda sínum. Þetta er að mörgu leyti stórsniðugt; auglýsingin er sama sem "ókeypis" og kaup á bifreiðinni bókast sem rekstrarkostnaður og er því frádráttarbær frá skatti.

En oft gleymist að minna ökumenn slíkra fyrirtækjabíla á, að þeir eru ímynd fyrirtækisins í augum fjölda ökumanna. Því er það afar lélega auglýsing að glanna eins og bandóðir terrorista séu á hælum þeirra, "svína" á aðra í umferðinni og fara jafnvel yfir á rauðu. Ég hef stundum vel þessu fyrir mér en verð nú að minnast á þetta.

Til að mynda er alveg ljóst, að fyrirtækið sem á þann bíl sem "svínaði" á mig í gær mun aldrei sjá eina einustu krónu frá mér. Þarna var virkilega á ferðinni "misheppnuð auglýsing".


Hetjudáðir Lyndon B. Johnsons, síðar Bandaríkjaforseta

johnson

Þetta kom mér á óvart. Samkvæmt nýbirtum heimildum mun Lyndon B. Johnson þingmaður, síðar forseti Bandaríkjanna, hafa bjargað hundruðum ofsótta Gyðinga frá helförinni.

Í stað þess að endursegja þessa grein, bendi ég fólki á að slá á linkinn.

Merkilegt að maður í þessari stöðu skuli hafa beitt löglegum og ólöglegum aðferðum til að bjarga hundruðum manna í Evrópu...ekkí síst þar sem Bandaríkjaþing var þá "einangrunarsinnað" og fjölmargir, jafnvel flestir embættismenn, umræddra deilda utanríkisráðuneytisins komnir af "New England Patriots" rasistaskólanum.

 

Utanríkisráðuneytið vísaði Gyðingum frá af ótta við þjóðernissmit, en LBJ ullaði á svona kjaftæði og "framleiddi" löglega og undirritaða, en óútfyllta, innflutningspappíra til björgunar mannlífa.

 


Guðmundur Arason látinn

Með Guðmundi er horfinn einn mesti heiðursmaður Íslendinga, góður maður sem margir skákmenn (og boxarar) eiga mikið að þakka.

Hvíl í friði Guðmundur.


mbl.is Andlát: Guðmundur Arason
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvöfalt siðgæði?

Já, bannað að sýna nekt, en hins vegar er leyft að sýna frá leikjum Chelsea í sjónvarpi og ræðum Jóns Bjarnasonar á Alþingi.

Er þetta ekki tvöfalt siðgæði?


mbl.is Myndband Sigur Rósar bannað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband