Færsluflokkur: Aulahúmor
Mánudagur, 12. maí 2008
Kim Cattrall og sexið
"Leikkonan Kim Cattrall, sem kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að því að ræða kynlífsreynslu..." Af hverju ætti hún að kalla eitthvað ömmu sína í þessum málum? Ég efast um að amma hennar sé neitt verulega rólfær á þessu sviði eins og...
Sunnudagur, 11. maí 2008
"Íslenskar bækur í frönskum apótekum"
Ágætis svefnlyf, jájá, jamm og jæja.
Sunnudagur, 11. maí 2008
"Tveir teknir fyrir fíkniefnaakstur á Akureyri"
Ég spyr: hvert voru þessir menn að aka fíkniefnunum?
Sunnudagur, 11. maí 2008
Potturinn þrefaldur
Jibbí. Núna geta menn eldað stóóóóóóóóran skammt af hafragraut.
Laugardagur, 10. maí 2008
Svindluðu Valsmenn í tapleiknum gegn ÍBK?
Ja, það er nú það. Varnarmennirnir sem áttu að vera inná skv. leikskýrslu, voru nefnilega ekki inná, heldur einhverjir sem voru mjög ólíkir þeim. Keflvíkingar hefðu vísast kært leikinn hefðu þeir ekki unnið þetta svona sannfærandi. En hvernig ætli menn...
Aulahúmor | Breytt s.d. kl. 19:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 8. maí 2008
Yfirlýsing frá Heklu:
Gos, gos, gos, gos, gos, gos.
Miðvikudagur, 7. maí 2008
Heimskulegt
Þetta er mjög heimskulegt athæfi. Í fyrsta lagi eru 99% líkur á að löggan nái þér. Í öðru lagi er miklu auðveldara að græða með því að fá sér góða vinnu hjá hinu opinbera og þiggja risnu fyrir að leika sér í útlöndum.
Miðvikudagur, 7. maí 2008
Sniðugt
Já kannski ég geti núna losnað við demantsskreyttu nefhringana sem frúin í Hamborg gaf mér.
Mánudagur, 5. maí 2008
Févíti
Hvernig væri að taka svona upp í fótboltanum?
Mánudagur, 5. maí 2008
Sekt fyrir torrent-dreifingu
Þetta minnir mig svoldið á manninn sem skildi útidyrahurðina sína ólæsta og var rændur. Hann þurfti að greiða 127.000 kall í sekt fyrir að freista þjófanna.