Föstudagur, 3. ágúst 2007
Dregið í Meistaradeild Evrópu
Ensku liðin tvö, Arsenal og Liverpool, fá tiltölulega erfiða andstæðinga í 3. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu.
Arsenal mætir góðkunningjum liðsins í Sparta Prag, en Tékkarnir eru sýnd veiði en ekki gefin. Liverpool mætir franska liðinu Toulouse (eða To lose eins og sumir segja).
Þótt ensku liðin séu vitaskuld sigurstranglegri, má ekki afskrifa þessi tvö ágætis lið.
En áfram "England"! (Já, ég vona að Liverpool komist áfram ).
![]() |
Dregið í þriðju undankeppni Meistaradeildar Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 3. ágúst 2007
Ítalskir karlmenn
Já, ég hef lúmst gaman að þessum ítölsku siðum, þó ég fatti t.d. ekki hvers vegna ítalskir karlmenn fari með óhreina þvottinn sinn til kærustunnar til að láta þvo. Þeir verða alveg gjörsamlega hjálparlausir greyin og sést það ágætlega þegar þeir bregða undir sig betri fætinum og dvelja lengri eða skemmri tíma í útlöndum.
Þegar ég var í Englandi í námi 1992-93 var ég í "heimavist" með nokkrum ítölskum stelpum. Þær furðuðu sig mikið á þeirri sérvisku minni að vilja þvo fötin mín sjálfur, elda mat á eigin spýtur, skúra gólf og svo framvegis. Þeim fannst jafnvel hart að sér vegið þegar ég sinnti mínum eðlilegu húsverkum fyrir sameiginlegar þarfir, t.d. með því að skúra eldhúsið. Þeim fannst ég vera að fara inn á þeirra verksvið. Mér fannst nóg komið þegar hin elskulega ítalska stúlka Daniella Cambiasso laumaðist inn til mín, þegar ég var að tefla með skákliði Háskólans utan borgarinnar, sótti óhreina þvottinn minn, þvoði hann og straujaði. Ég var ekki að fíla þetta, en þakkaði henni fyrir og bað hana vinsamlegast að leyfa mér að þvo af mér sjálfur. Ég hefndi mín síðan eitt kvöldið þegar hún skrapp í bíó með stelpunum og tók "hennar dag" í húsþrifunum, skrúbbaði eldhúsið hátt og lágt, og skildi eftir blómvönd á eldhúsborðinu. Uppfrá þessu varð maður eins konar legend meðal ítalskra stúlkna þarna á svæðinu, svo að manni þótti nóg um.
Og þetta fór mjög illa í ítölsku strákana. Einn Ítali þarna, Andrea (var með honum í tíma í bandarískri samtímasögu), var mjög ósáttur, en hann hafði einmitt náð sér í ítalska kærustu þarna í skólanum, greinilega aðallega til að fá sér ókeypis ráðskonu, því hann hafði síðan local stelpu "on the side" til að sinna ýmsum öðrum þörfum. Þegar sú ítalska fór síðan að neita að þvo af honum og sagði, að hann geti bara gert eins og þessi skrítni Íslendingur, lét hann mig aldeilis heyra það. Fleiri ítalskir strákar voru einnig óánægðir með þessa þróun, en mér skilst þó, að þeir hafi nú jafnan fengið sínu fram að lokum, amk sumir. En Andrea greyið mætti jafnan í óhreinum fötum í tíma og gekk svo langt að reyna að fá mig til að hjálpa sér að þvo. Já, einmitt!
Ég held að þetta sé fyrst og fremst rótgróinn vani hjá ítölsku kvenfólki, að sinna karlmönnunum með þessum hætti. Ég efast nefnilega stórlega um, að þær séu fullkomlega ánægðar með þetta (amk efast ég um almenna gleði meðal yngri kvenna og þeirra betur menntaðra), þó vissulega sé misjafn sauður í mörgu fé.
En hitt er svo annað mál, að ég efa ekki að íslenskir karlmenn yrðu almennt mjög sáttir, ef þetta ítalska system yrði tekið upp á Íslandi!
![]() |
Mömmustrákur á sjötugsaldri komst í klandur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 2. ágúst 2007
Kjúklingarnir svara fyrir sig
Jæja, kjúklingarnir svara fyrir sig. Ég hef mikið álit á Bendtner og hef haft síðan ég sá hann spila með "unglingaliði" Arsenal í League Cup fyrir 1.5. ári c.a. Hann er rúmlega 1,90 og stórhættulegur í loftinu, en er engu að síður snöggur og flinkur. Hann er svona uppfærð útgáfa af Peter Crouch - eins og sá ágæti drengur hefði átt að vera! (Ok, nú fara Liverpool-aðdáendur all in á mig!)
Og Eduardo er byrjaður að skora. Hann skoraði 54 mörk á síðustu leiktíð, að vísu fyrir Dinamo Zabreb og króatíska landsliðið. Og þessi ungi maður skoraði fyrsta Evrópumarkið á hinum glæsilega leikvelli Arsenal.
Og sérstaklega gaman að vinna Lazio. Ef ég man rétt var það skylda fyrir Arsenal-aðdáendur að vera alvarlega í nöp við Lazio vegna atvika sem áttu sér stað í Evrópukeppninni á síðustu öld, kannski 1957, ég man það ekki alveg. Eða 1977, who cares. En þar sýndi Lazio af slík óheilindi, að það mun aldrei gleymast. Fyrir mér er sigur á Lazio næstum því eins og að sigra Spurs, eða KR.
En nú skorar Bendtner 20 í vetur og hlær að þeim, sem hafa verið að segja að Arsenal sé búið eftir að Henry og Reyes eru farnir (muppet á www.soccernet.com!) En ég held reyndar að Arsenal verði betra þetta ár, þrátt fyrir að fleiri lið séu góð núna en jafnan áður vegna erlendra milljarðamæringa (West Ham, Liverpool, Man City, og jafnvel Newcastle), því nú getur liðið farið að spila sem lið, en ekki sem aðstoðarhópur Henrys.
Áfram Arsenal
![]() |
Arsenal lagði Lazio |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 2. ágúst 2007
Fremst í stafrófinu
Það eru miklar líkur á, að stúlka þessi hafi yfirleitt verið fremst í stafrófinu, t.d. í sínum bekk og svo framvegis.
En mikið þykir mér þetta vera líkt nafn og hið íslenska sómanafn "Áss", en það ber mikið merkisfólk sem býr reyndar í næsta húsi við mig.
![]() |
Margir Norðmenn eru í rauninni Svíar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 2. ágúst 2007
Nú hlær Jennifer Aniston
"Told you so", gæti verið við hæfi.
En svona er þetta. Nú fer Brad vísast að sjá eftir því að hafa látið Aniston róa fyrir ofurgribbuna. En svona virðist þetta ganga í Hollywood. Þar ku vera í tísku að skipta um maka og það sem oftast.
En a.m.k. er þessi lífsmáti selabrytanna í Hollý þannig, að venjulegt fólk ætti að sniðganga fréttir af þessu rugli, sérstaklega partístelpnagenginu. En það gerist víst varla. Slúðurþörfin er vísast of rík.
![]() |
Brestir í sambandi Brads og Angelinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 2. ágúst 2007
Skák.is á Mogganum
Jæja, þá er þetta komið. Þetta hefur staðið til lengi og reyndar hófst fréttaflutningur í vor, en þá var ákveðið, í samráði við hlutaðeigandi, að bíða með þetta fram í byrjun ágúst.
En nú er skákin semsagt komin á Moggabloggið. Solid.
![]() |
Skák.is hýst á blog.is |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 2. ágúst 2007
Man Utd lá fyrir Inter
En hvernig fór aftur í leik Inter og Arsenal? :)
Bara að vera cocky meðan maður hefur efni á því!
![]() |
United lá fyrir Inter á Old Trafford |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 2. ágúst 2007
Verslunarmannahelgin framundan
Þá byrjar ballið aftur og einu sinni enn.
Ég er einn þeirra, sem er mun ákafari í að vera heima um þessa helgi en að taka þátt í fólksflutningunum miklu úr borginni og heim aftur. Ég fór síðast eitthvað 1998, en þar áður höfðu mörg ár liðið, þar sem maður sat bara heima og undi sér vel.
1998 rigndi nær alla helgina og voðalega lítið gaman! Og nú er spáð rigningu. Í öllu falli hefði ég ekki áhuga á að hírast í tjaldi þessa helgi. Þá væri sumarbústaður skárri.
En þá getur maður alveg eins verið heima. Ég er nýlega fluttur í paradís, góðan stað í Stekkjunum, nánar tiltekið í botnlangagötu, alveg neðst. Þar er friður og ró, nánast eins og maður sé kominn upp í sveit. Og stór og flottur garður, yndisleg verönd osfrv. Þetta er eins og stór heilsársbústaður á besta stað. Til hvers er fara eitthvað annað?
Ég ætla semsagt að taka þessu rólega um Verslunarmannahelgina og glotta að myndum af fólki í regngöllum úti í sveit.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 1. ágúst 2007
Læknanemar dreifa smokkum
![]() |
Ástráður dreifir smokkum um Verslunarmannahelgina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 1. ágúst 2007
Góðar fréttir
Ef ég væri löggildur limur í USA myndi ég kjósa Hillary. Ekki spurning. Og ekki af því að hún er kona, heldur af því að hún er hæfust af þeim sem eru í framboði.
![]() |
Hillary Clinton tekur forustu hjá demókrötum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)