Rok og rigning

Campo að ganga til liðs við Ipswich. Langur vegur frá Real Madrid.

En um Campo greyið var forðum sagt:

Muniði eftir myndinni Dumb, Dumber and Ivan Campo?


mbl.is Campo samdi við Ipswich til tveggja ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur sendiherra?

Það liggur auðvitað fyrir að Ingibjörg ætlar með þessu að skipta við Grænlendinga á fulltrúum og hver væri betri en Össur þarna á Austur-Grænlandi, enda Hróksmaður mikill og því með rótgróin tengsl við austurblokkina í Grænlandi.

 


mbl.is Vilji til aukins samstarfs við Austur-Grænland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

52,9% Íslendinga

eru í stórhættu á að glata tungumáli sínu, samkvæmt þessari sömu könnun, eða í versta falli að glata tilfinningu fyrir málinu, stafsetningu og málfræðireglum.
mbl.is mbl.is eini netmiðillinn í fjölmiðlakönnun Capacent
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússarnir að missa það?

Er Pútin ekki bara að sýna Bandaríkjamönnum mátt og ómegin Rússa? Þetta er tóm della hjá Rússum, tilgangslaust system, en er auðvitað BNA og Ísrael að kenna eins og svo margt annað, amk að mati sumra félaga úr aktíon-grúppu íslamist-sósíalista.

 


mbl.is Rússar ná Gori á sitt vald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kalda stríðið: 2. umferð

Maður fær það á tilfinninguna núna, að stórveldin tvö muni enn á ný takast á í köldu stríði og ota sínum tota hvar sem kostur er.

Ég skil Kanana vel. Rússar réðust inn í Georgíu með herafla í kjölfar þess að Georgíumenn reyndu að ná völdum á svæði sem ríkinu tilheyrir skv. alþjóðalögum (og ég tek ekki afstöðu til hvort það sé réttmætt eður ei).

Mín skoðun er, að Rússar hafi enga afsökun fyrir þessu framferði sínu. Tal um Rússa og friðargæsluliða er bara yfirskin, yfirvarp fyrir árásunum. Georgiumenn eru nefnilega óþægir hafa t.d. herlið í Írak og þykja full vinsamlegir Vesturlöndum.

En persónulega hefði ég getað skilið Rússa ef markmið þeirra hefði verið að handtaka Zurab Azmaiparashvili, en ég held að hann sé staddur í Elistu í Kalmakýu, rússnesku sjálfsstjórnarlýðveldi.

 


mbl.is Pútín gagnrýnir Bandaríkjamenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klámið

Grelnilegt hverjir stjórna heiminum í dag. Menn þora ekki öðru en að sitja og standa eins og íslamistarnir og taglhnýtingar þeirra, fáfróður almúginn, vill.

Ég þekki til manns, útgefenda, sem gaf út litla bók um íslam, þar sem ýmislegt misjafnt, þó ekki mikið, var tekið til umræðu. Það var síðan skotið á hann. Síðast þegar ég frétti var hann á flótta.

Einmitt af svona ástæðum að margir eru smeykir við uppgang íslamista í heiminum. En því miður eru naívistarnir alls staðar reiðubúnir að bakka íslamistana upp, jafnvel hér á Íslandi.


mbl.is „Ljósblátt klám“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brú við Brú

"Svo virðist sem maðurinn hafi misst stjórn á bifreið sinni í krappri beygju skammt frá brúnni við bæinn Brú á Jökuldal með þeim afleiðingum að hún féll um átta metra niður að vatnsborðinu og sökk síðan í sex til átta metra djúpan hyl."

Bara smá spurning; hvort var það bifreiðin eða brúin sem sökk 6-8 down below?


mbl.is Heyrðu hjálparkall mannsins undan brúnni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvenmannsrassar bannaðir

Jæja, Kínverjar láta ekki að sér hæða nú, frekar en fyrri daginn. Þetta þýðir auðvitað að fáir aðrir en harðir blakídíótar nenna að horfa á þetta.

Við höfum þurft að kyngja ýmsu frá Kínverjunum, ritskoðun, ofbeldi gegn Tíbetum, en nú er nóg komið. Ég legg til að Ísland slíti stjórnmálasambandi við Kína.

Þetta var kornið sem fyllti mælinn og hana nú.Wink


mbl.is Engir rassar - bara blak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttamat í gúrkutíð

Þetta er með ólíkindum að Mogginn, og fleiri fjölmiðlar líka, skuli eltast við þessa vitleysinga sem lifa og hrærast á fjölmiðlaumfjöllun. Ef fjölmiðlar myndu bara taka sig saman og hunsa þessa rugludalla myndu þeir varla nenna að standa í þessu.

Og nú er það stórfrétt að þessir rugludallar séu að taka niður búðir sínar. Næst þegar ég fer í útileigu mun ég vitaskuld senda Mbl frétt þess efnis, enda hlutfallslega miklu merkilegri karakter en SI liðið. Og svo á einnig við um flesta Íslendinga.

Sé fyrir mér sérstakan dálk á mbl.is: "Tjöld tekin niður" þar sem uppfærslur koma á það hvenær íslenskir eða erlendir ferðamenn taka niður tjöld sín.


mbl.is Saving Iceland tekur niður búðir sínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

16,7%

Ég er á bömmer. Ég er á 16,7% bömmer.

En það góða er, að ég er 83,3% í stuði. Geri aðrir betur!


mbl.is Íslensk eymd mælist 16,7%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Bloggfærslur 11. ágúst 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband