Fréttamat í gúrkutíð

Þetta er með ólíkindum að Mogginn, og fleiri fjölmiðlar líka, skuli eltast við þessa vitleysinga sem lifa og hrærast á fjölmiðlaumfjöllun. Ef fjölmiðlar myndu bara taka sig saman og hunsa þessa rugludalla myndu þeir varla nenna að standa í þessu.

Og nú er það stórfrétt að þessir rugludallar séu að taka niður búðir sínar. Næst þegar ég fer í útileigu mun ég vitaskuld senda Mbl frétt þess efnis, enda hlutfallslega miklu merkilegri karakter en SI liðið. Og svo á einnig við um flesta Íslendinga.

Sé fyrir mér sérstakan dálk á mbl.is: "Tjöld tekin niður" þar sem uppfærslur koma á það hvenær íslenskir eða erlendir ferðamenn taka niður tjöld sín.


mbl.is Saving Iceland tekur niður búðir sínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband