Waziristan?

"Árásarmaðurinn keyrði bifreið fullri af sprengiefnum inn í öryggisklefa við  landamærin í norður Waziristan héraði."

Waziristan? Var ekki Tarzan konungur í Waziristan?
mbl.is Sjálfsmorðsárás í Pakistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný skoðanakönnun

Jæja, þá. Sjálfstæðisflokkur með 41%, Samfylkingin með 31%, VG með sama fylgi og venjulega, þetta 15%, Framsókn komið í 7,6% og Frjálslyndir með 4%.

Stjórnin semsagt með vel yfir tvo þriðju hluta fylgis, og VG eina marktæka stjórnarandstöðuaflið. Framsókn virðist ekki hafa hljómgrunn í samfélaginu og líður fyrir innri átök.

Þessi könnun held ég að sá bara nokkuð vísandi fyrir raunverulegt fylgi flokkana. Sjallar eru um 35-40% flokkur, Samfó um 25-30%, VG 15-20%, Framsókn 5-10, og Frjálslyndir með um 5-10%.


En Guðni getur ekki verið ánægður núna!


mbl.is Sögulegt lágmark Framsóknarflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við getum svosem beðist afsökunar á Dönum

Ef Danirnir biðjast fyrst afsökunar á 14-2, einokunarversluninni og fleiri atriðum úr sögunni.

Málið dautt!
mbl.is Vildu að forsetinn bæðist afsökunar á framferði Dana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona nú Gulli

Væri ekki bara einfaldara að semja ný lög sem virka betur. Þessi virðast vera alveg glötuð (að sumu leyti amk).

Ég held að allir styðji markmið laganna, en harkan í lögunum virðist full mikil og ýmis vandræði hafa skapast.

Koma svo Gulli....ný lög takk!


mbl.is Heilbrigðisráðuneytið brýnir stofnanir vegna reykingabanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fitubollur

Spurning hvort ætti ekki að banna bolluát, þar eð þetta er vissulega óhollt, og helst að taka upp skömmtunarmiða, þar sem hver aðili fái aðeins að kaupa 2 bollur?


mbl.is Að borða bollu eins og maður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Val

Jæja, ekkert skrítið þó að maður, sem á ekki fast sæti í miðlungsliði í Englandi, sé valinn í hollenska landsliðið!?
mbl.is Kuyt ekki valinn í hollenska landsliðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heim af spítalanum

Jæja, maður var sendur heim af Bráðó. Og þetta reyndist MIKLU BETRA en allt leit út fyrir í gær.

En meðan þetta var allt óljóst rúntaði maður um spítalann í forláta spítthjólastól. Ég var óhræddur, enda engir valtarar á svæðinu.

En ég er semsagt búinn í rannsóknum og skoðunum. Ég verð að vísu að taka þessu rólega á næstunni, hvílast og láta lyfið vinna. Ég má þá jafnframt ekki halda á neinu þungu. Mig dauðlangaði að spyrja hjúkkuna hvort ég yrði þá að pissa sitjandi, en ákvað nú að sitja á strák mínum.

En a.m.k.: Bloggheimur mun vísast þurfa að sitja uppi með mig áfram.

Solid!Smile


Forsætisrápherra?

"Róbert R. Spanó lagaprófessor og formaður nefndarinnar, segir að unnið sé að því að prófarkalesa skýrsluna og að að því loknu verði hún kynnt fyrir forsætisrápherra."

En gott að Moggamenn séu líka að prófarkalesa, þó eftir á sé, því þetta var lagað mjög fljótlega.

mbl.is Skýrsla um Breiðavíkurmálið á lokastigi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundarréttarlögin

Getur ekki verið, að höfundarréttarlögin séu bara meingölluð?

Hvað kemur næst?

Maður kaupir DVD mynd í Skífunni og þarf síðan að hringja inn til að fá leyfi í hvert skipti sem maður vill horfa á hana? Mun ekki reglugerðarfarganið aukast smám saman á þessum vettvangi eins og víðast annars staðar?


En gott að þetta fór svona. Það má orðið samasem ekkert í þessu þjóðfélagi.


mbl.is Ákæra gefin út tveimur árum eftir meint brot á höfundarréttarlögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nótt á bráðamóttöku

Einn af eftirminnilegustu smákarakterum íslenskrar kvikmyndasögu var gaurinn sem Þráinn Bertelsson lék í Magnúsi. Þetta var gaur sem lá á stofu með hinum og drap tímann með að skrifa eitthvað í ferðatölvuna.  Hann hafði komið upphaflega út af einhverju smávægilegu, en síðan setið þarna fastur á spítalanum og lést þar.

Ég skil þennan karakter ofboðslega vel. Það er fátt eins leiðinlegt og að liggja í sjúkrarúmi, með allskonar snúrur og system í sér, og hafa ekkert að gera. Með tölvuna getur maður þó amk gert eitthvað, eða skrifað, eða gert bara eitthvað sér til dægrastyttingar.

Ég reyndi þetta fimmtudaginn 30. janúar. Ég hafði verið eitthvað slappur og farið heim á hádegi. En síðan, þegar fréttatíminn stóð yfir á RUV, fékk ég þessa rosalegu verki fyrir brjóstið. Og þeir héldu áfram og áfram, svo ég þorði ekki annað en að hringja í 112.

Og fólkið þar sendi tvo sjúkrabíla á staðinn með det samme. Ég var þar í meðhöndlun í nokkuð langan tíma en fór síðan niðrá bráðadeild við Hringbraut, aðallega held ég út af því að hjartadeildin væri þar.

Ég fékk krana í höndina, eða legg, strax í sjúkrabílnum og síðan var blóði dælt af mér og var mældur á bak og fyrir. Síðan fór ég að rúnta með einni af sætu hjúkkunum, sem keyrði mig í hjólastólnum yfir á röntgen, þar sem teknar voru alls konar myndir, snið og eitthvað. Og ég sem hafði átta plástra á hárugri bringunni. Þegar þeir voru rifnir af var eiginlega miklu sársaukafyllra en hitt hafði nokkurn tíma verið.


Jæja, Mundi bróðir kom til mín með lappann.   Mér leiddist svo, að ég bað hann að renna honum til mín, ef hann gæti. Hann var að hjálpa litlu systur að flytja, en þar hefði ég líka verið, hefði ég verið hraustur.

En ég ligg hér semsagt í rúmi á bráðadeild og bíð eftir niðurstöðunum. Klukkan er 22:28. Ég bíð semsagt eftir niðurstöðunum úr öllum þessum prófunum. Og bíð eftir næstu blóðprufum, sem verða teknar á nokkurra tíma fresti uns annað verður ákveðið. Síðan verður allskonar system í fyrramálið.

Ég vildi helst fara að sofa og vakna aftur þegar ég má fara heim. Hér í kringum mig er gamalt fólk að gefa ástvinum fyrirmæli um hvernig jarðarförin eigi að vera: „Engin erfidrykkja“, sagði konan í næsta rúmi, hinumegin við tjöldin. Konan skáhallt á móti er að ræða um hvernig húsinu verður skipt. Úff, og ég sem hélt ég væri bara með flensu þegar ég fór heim í dag.

En vonandi verður þetta ekkert alvarlegt. Over and out. Roger.

Morgunn:

Ég fékk að skreppa heim um tvöleytið. Ég gat ekki sofið, m.a. vegna þess að maðurinn í rúminu beint á móti hraut eins og sláttuvél og konan við hliðina aðeins. Við hin þrjú gátum ekki sofið. Og ég var talinn í nógu góðu standi til að fara heim og reyna að sofa eitthvað.

Það tókst. Ég náði nokkrum klst og er glaður með það. Síðan renndi ég við á skrifstofunni til að sækja mér nokkrar bækur og svoleiðis. Síðan fer ég aftur niðrá Bráðamóttöku. Frekari rannsóknir taka við.

En þetta virðist ekki vera neitt alvarlegt, svo ég er bjartsýnn. En ekki leit þetta vel út, að mér fannst a.m.k.


Næsta síða »

Bloggfærslur 1. febrúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband