Miðvikudagur, 30. janúar 2008
Ég á mér draum...
En hann varð að martröð.
![]() |
Fékk í sig rafstraum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 30. janúar 2008
Af spjöldum sögunnar 1: Súmer og upphaf borgríkja
Það svæði, sem kallað er Frjósami hálfmáninn, liggur í hálfmánalöguðum boga frá botni Persaflóa, norður núverandi Írak til Sýrlands og þaðan niður eftir strandlengju Miðjarðarhafs til Ísraels. Svæðið var afar frjósamt og auðugt, jafnvel áður en menn hófu að nýta þar jarðolíu og gas sér til framdráttar. Það var í þessum heimshluta, að siðmenningin hófst fyrir alvöru og fyrstu menningarríkin risu. Þar komu líka fram flest þau stórveldi, sem garðu garðinn frægan hið forna, allt frá Súmerum til Persa. Í millitíðinni hafði siðmenning þróast í átt til nútíma í ríkjum Babýloníumanna og Assýringa, Föníkíumanna, Ísraelsmanna, Húrríta, Hetíta og semískra ættflokka á eyðimerkursvæðunum vestan Efratar. Fyrsta menningarþjóðin, Súmerar, voru að mörgu leyti sú hin merkilegasta þeirra.
Súmer ~ fyrsta menningarþjóðin
Heimildir gefa tilefni til að ætla, að skömmu eftir 4.000 f. Kr. hafi litlar borgir tekið að myndast í óshólmum stórfljóta Mesópótamíu. Það varð þó ekki fyrr en um 3.500 f. Kr., að íbúarnir, sem kölluðu land sitt Súmer, eignuðust fjölmenna borg, Úr, syðst í landinu.
Þjóðfélag Súmera var grundvallað á bandalagi borgríkja, sem höfðu í grundvallaratriðum sama tungumál, sömu menningu og stjórnskipun. Borgríkið var kjarni allrar tilveru þeirra, þar sem hvert þeirra var talið eign einhvers ákveðin guðs og þannig tilheyrðu íbúarnir guði sínum. Kjarni hverrar borgar var því musterið, sem um síðir varð einskonar pýramídi eða ziggurat, en umhverfis það á allar hliðar voru híbýli manna og dýra. Borginni tilheyrði svo ræktarland, sem hafði eigið áveitukerfi eða vatnsuppsprettur.
Grundvallarsamskipti almúgamanna og presta voru byggð á undirgefni hinna fyrrnefndu, sem þjóna áttu hinum síðarnefndu, sem væru fulltrúar guðanna. Hofprestarnir voru í raun ráðandi meðal Súmera, enda var musterið kjarni samfélagsins. Bændur fluttu afurðir sínar til prestanna, sem tóku af því frumgróðafórn til handa borgarguðinum, tóku svo til eigin þarfa, en deildu eftir þörfum því, sem eftir stóð, til lýðsins.
Í musterunum fór einnig fram stjórnun borgarinnar, sem í raun var undir guðræðisvaldi hofprestanna, en þar var fjárhirslan og birgðageymsla matvæla. Æðsti presturinn, svokallaður ensí, var málsvari borgarbúa og leiðtogi þeirra í stríði. Hann hafði einnig umsjón með skrifaraskóla borgarinnar, þar sem prestarnir kenndu ungum mönnum að skrifa og ólu þá upp til að fylla embættismannastétt borgríkisins. Skilin milli hins veraldlega og andlega valds voru því óglögg.
Súmerar voru ennfremur forvígismenn spásagna og galdurs, enda var fjölkynngi eina leiðin, sem prestarnir töldu færa til að sjá fyrir komandi atburði og búa í haginn fyrir áföll, sem hugsanlega kynnu að ríða yfir. Í því skyni leituðu þeir fyrirmæla úr líffærum fórnardýra sinna, en almenningur túlkaði reykelsisreyk eða leitaði spásagnar með öðrum hætti.
Súmerar hófu jafnframt að gera tilveru sína þægilegri með margs konar uppfinningum. Þeir fundu upp hjólið, þróuðu fyrsta ritmálið, hófu leirkerasmíði og margt fleira. Flestar uppfinningar Súmera sneru að verslun þeirra við fjallaþjóðirnar, sem seldu þeim timbur og málma í stað korns og iðnvarnings. Nefna má, að hjólið var fundið upp til að eiga auðveldara með að flytja þunga vöru, sennilega timbur, á milli staða. Ritmálið kom svo til sögunnar til að skrá niður viðskiptin.
Elstu merki ritlistar Súmera sýna þó, að upphaflega hafi þeir notast við myndmál, en síðar tekið að rita með oddhvössum prikum á blaut leirbrot, sem síðar þornuðu og geymdu upp því frá hugsun ritara síns. Leturstrik þessi líktust fleygum og því er ritmál þeirra kallað fleygrúnir. Súmerar voru fyrstir til að nota segl á skipum sínum, svo vitað sé, en seglbátar þeirra sigldu eftir stórfljótunum með verslunarvarning. Þeir voru einnig fyrstir til að temja dýr í stórum stíl, bæði til manneldis og vinnu. Vitað er, að þeir notuðu asnadregna vagna til flutnings nauðsynjavarnings á milli staða og hervagna, þegar skarst í odda milli einstakra borgríkja.
Borgríki voru nær ætíð upphaf ríkjamyndunar, þar sem ein borg stóð fyrir einn guð. Konungar litu á sig sem syni eða erindreka borgarguðsins og þegar tækifæri gafst, þönndu þeir út veldi guða sinna. Þannig urðu ákveðnir guðir útbreiddastir um Miðausturlönd og tóku að mynda guðafjölskyldur.
Úr, með sína 50.000 íbúa, var um hríð voldugasta borg Súmera, en um 2800 f. Kr. tóku önnur borgríki að hefja vald sitt. En þó ákveðin tilhneiging hafi verið meðal sumra konunga til þess, að taka sér alræðisvald í landinu, var enginn þeirra var nægjanlega voldugur til að hrinda því í framkvæmd, ekki einu sinni Gilgamesh, frægasti konungur Súmera. Hann ríkti yfir um það bil 50.000 þegnum í borgríkinu Úruk, um það bil 2.700 f. Kr. og frá honum höfum við helstu heimildir okkar um samfélög Súmera. Mörg ljóð hafa verið samin um konunginn og hafa flest þeirra varðveist í samnefndum ljóðabálkum, sem enn njóta frægðar.
Ítarefni: Súmer í Wikipediu.
Af spjöldum sögunnar | Breytt s.d. kl. 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 30. janúar 2008
Sérðu ekki eftir neinu fleiru?

Síðan er yfirvaraskegg komið úr tísku -- Tom Selleck er sá eini sem hefur leyfi tískulögga til að bera svoleiðis utanásér.
![]() |
Dr. Phil sér eftir að hafa talað um Britney |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 30. janúar 2008
Mistök í símahlerunum
Jahá, nú kemur þetta allt í ljós. Þegar Árni Páll Árnason taldi síma sinn hafa verið hleraðan, var aðeins um að ræða Sorpvinnslustöð Jórvíkurskíris, sem taldi að ÁPÁ væri að urða rusl án leyfis.
Það meikar sens, er það ekki?
![]() |
Bretar hlera þúsund síma á dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 30. janúar 2008
Spurning með nýja Hagstofustjórann
Hvort ætli hann sé náskyldur Davíð eða Geir?
Það er búið að koma því inn í kollinn á mönnum að ættingjar og vinir amk Davíðs séu það lélegur pappír að varla sé hægt að ráða þá í vinnu nema fyrir klíkuskap.Ég veit ekki hvort Ólafur hafi verið hæfur eða hæfastur af umsækjendunum, en hann hlýtur að hafa verið amk vel tengdur inn í Sjálfstæðisflokkinn, úr því sjálfstæðisráðherra skipaði hann. Annað kemur ekki til greina.
Því varla fara sjálfstæðismenn að ráða krata, komma eða samvinnuskólamenn í mikilvæg embætti?
Enda er líka alveg ljóst að Bush var kjörinn forseti Bandaríkjanna vegna vinskapar hans við Davíð, og eins mun Clinton sigra, því hún hitti a.m.k. Davíð, en það er meira en Osama og hinir geta státað af.
Enda segir Spaugstofan: "Þetta er allt eitt samsæri".
![]() |
Ólafur skipaður hagstofustjóri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 30. janúar 2008
Baugstidende í kreppu
Nú er aldeilis að fjara undan Nyhedsavisen (a.k.a. Baugs Tidende
), en Danir virðast ekki ætla að meðtaka snilldina með sama hætti og við Mörlandar.
Sagan virðist ætla að vera rituð öðruvísi hér. Að mínum dómi er orðið nokkuð langt síðan að Fréttablaðið varð bitastæðara blað en Mogginn, sem heldur þó ákveðnum sjarma og ákveðnum standard, sem Fréttablaðið fer stundum á mis við.
En í Fréttablaðinu eru oft fréttir og upplýsingar, sem að mínum dómi eru athygliverðar, en Mogginn birtir ekki. Þannig eru meiri upplýsingar í Fb, þó fréttirnar í Mbl. séu að jafnaði traustverðugri.
Í Danmörku virðist Nyhedsavisen ekki hafa tekist að ná nægjanlega góðri fótfestu, hugsanlega vegna þess að danskir auglýsendur eru ekki að taka þennan miðil alvarlega, eða ekki eins alvarlega og við hér heima á Fróni.
En hvað gera bændur nú? Er blaðið að hætta eða mun það halda áfram í smækkaðri útgáfu?
![]() |
Fjöldauppsagnir á Nyhedsavisen |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 30. janúar 2008
Minjar frá elstu byggð Egyptalands

(Faiyum þarna í suðvestur frá Kairó, við stöðuvatnið á myndinni)
Það ku hafa verið þarna, sem þéttbýlismyndun varð skipulögð að einhverju ráði og menn hófu að skipuleggja sig með nýju móti, en áður voru menn hirðingar og flökkuðu um. Eins og ég sagði að framan er erfitt að átta sig á hvort föst búseta hófst fyrr í Faiyum eða Súmer, en það skiptir e.t.v. engu stórmáli.
Ég skal viðurkenna, að ég er farinn að gleyma, en mig minnir að það hafi verið sjálf móðirin, Níl, sem ákvað að lækka aðeins rostann í börnunum sínum í Faiyum. Aur og leðja sem fljótið mikla bar með sér, ku hafa stíflað rennsli og smám saman minnkað vatnið í Faiyum og þar með búsetumöguleikar. EKki síst átti þetta við um flóðin.
(Viðbót: Verið getur að mig misminni. Fór að pæla í þessu aðeins og verið getur að flóðin í Níl hafi verið óvenjumikil, svo fljótið hafi brotið sér leið inn í Faiyum og skilið eftir sig rústir. EN ég veit fyrir víst að það voru flóðin í Níl sem skemmdu afkomumöguleika íbúanna þarna...)

Stórveldistími Faiyum var liðinn, en þarna bjuggu þó einhverjir áfram og síðar átti þetta svæði góðar og glaðar stundir, en ekkert í líkingu við það sem var, þegar gullöld þessa staðar átti sér stað, þegar í upphafi, þegar menn tóku að koma sér upp fastri búsetu, reisa áveitur og rækta landið sér til viðurværis, og halda húsdýr.
Nú er svosem ekki mikið að sjá þarna, og þó. Þegar ég fór til Egyptalands mátti ég ekki vera að því að heimsækja þennan stað -- vissi varla af honum þá! En næst þegar ég fer þarna suðureftir stefni ég að því að heimsækja hann, þó ekki sé nema til að kíkja á píramídann þar. (Og ég veit ekkert hvort þessi sé eldri eða yngri en t.d. þeir í Gísa).
Úff, ég er kominn með alvarleg fráhvarfseinkenni. Miðausturlönd kalla...
(Viðbót: bætti við link á umfjöllun í Wikipediu...vona að ég sé að linka á réttan stað!)
![]() |
7.000 ára borgarrústir finnast í Egyptalandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 30. janúar 2008
Snjór í Jerúsalem

En ég held að fáar borgir séu jafn fallegar í snjó eins og Jerúsalem. Fáar borgir eru eins fallegar per se. En snjórinn gerir allt fallegra, og um stundarsakir gleyma menn vandamálum og erjum og horfa á hverni snjórinn hylur óhreinindi á götunum og grjótið, sem alls staðar má finna þarna.
En hin gullna Jerúsalem er hvít í dag. Megi hún finna frið.
(Mynd: Damaskus-hliðið í snjó).
![]() |
Hvít Jerúsalem |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 30. janúar 2008
Svona á ekki að vera hægt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 30. janúar 2008
Slysalegur rass?

En ég fatta ekki reyndar hvað er svona fréttnæmt við þetta...eins og svo margt sem hér birtist úr heimi fræga fólksins.
![]() |
Rassinn hálfgert slys |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)