Spurning með nýja Hagstofustjórann

Hvort ætli hann sé náskyldur Davíð eða Geir?

Það er búið að koma því inn í kollinn á mönnum að ættingjar og vinir amk Davíðs séu það lélegur pappír að varla sé hægt að ráða þá í vinnu nema fyrir klíkuskap.

daobushÉg veit ekki hvort Ólafur hafi verið hæfur eða hæfastur af umsækjendunum, en hann hlýtur að hafa verið amk vel tengdur inn í Sjálfstæðisflokkinn, úr því sjálfstæðisráðherra skipaði hann. Annað kemur ekki til greina.

Því varla fara sjálfstæðismenn að ráða krata, komma eða samvinnuskólamenn í mikilvæg embætti? 


Enda er líka alveg ljóst að Bush var kjörinn forseti Bandaríkjanna vegna vinskapar hans við Davíð, og eins mun Clinton sigra, því hún hitti a.m.k. Davíð, en það er meira en Osama og hinir geta státað af.

Enda segir Spaugstofan: "Þetta er allt eitt samsæri".


mbl.is Ólafur skipaður hagstofustjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband