Miðvikudagur, 16. maí 2007
Sigmar hættur að blogga
Sigmar ofurbloggari segist nú vera hættur að blogga. Hann sé orðinn leiður á þessu.
Ég skil hann reyndar vel...en...
En takk fyrir okkur Sigmar. Gaman að lesa bloggið þitt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 16. maí 2007
Leiðinlegt mál
Þetta mál er leiðinlegt, þegar það er skoðað í heild sinni.
Jóhannes í Bónus ákvað skyndilega að fækka enn frekar þeim, sem hafa haft samúð með málstað hans í Baugsmálinu. Tilgangurinn helgaði meðalið, eða sá, að fá kjósendur Sjálfstæðisflokksins í RS til að strika yfir Björn Bjarnason
Björn fékk tiltölulega margar útrikanir, eða um 20%, og færðist niður um sæti. En Jóhannes beið enn verri skaða, þar eð hér eftir munu enn færri en áður taka mark á honum, þegar hann talar um ofsóknir á hendur Baugi.
Björn svarar hér fyrir sig. Þótt ég sé í sjálfu sér sammála honum tel ég, að hann hefur betur átt að láta kjurrt liggja og svara engu. Svona ófrægingarherferð á ekki skilið andsvar. Þarmeð hefur hann gefið Baugsmönnum færi á, að halda stríðinu áfram og það á hans landsvæði.
En best væri fyrir alla aðila, ef Björn myndi nú kæra Jóhannes í Bónus fyrir ærumeiðingar. Þá yrði Jóhannes að færa sönnur á, að Björn Bjarnason persónulega og Sjálfstæðisflokkurinn, hefðu haft óeðlileg afskipti af Baugsmálinu, t.d. hrint því af stað, eins og oft hefur verið haldið fram. Þá myndu amk þessar endalausu dylgjur, sem einkum kratarnir hafa haft í frammi, leggjast, eða verða staðreyndir málsins, hafi Jóhannes á réttu að standa.
En hvorki Björn né Jóhannes græða á því að halda málinu áfram með þessum hætti og enn síður Hreinn Loftsson, sem sendi frá sér yfirlýsingu í dag.
![]() |
Björn lýsir áhyggjum af þróun stjórnmálastarfs og réttarríkisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 16. maí 2007
Gerir Geir sömu mistök og Sarkozy?
Vonandi ekki. Ég sæi Ögmund fyrir mér sem utanríkisráðherra. Úff, þá vil ég frekar Valgerði.
Annars gæti ég trúað, að Jón Sig. gæti orðið ágætis utanríkisráðherra!
![]() |
Sósíalisti utanríkisráðherra í ríkisstjórn Sarkozy |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 16. maí 2007
Spennan magnast! Ný stjórn að myndast?
Þetta er farið að verða mjög spennandi. Sjálfstæðismenn er nú að skoða þessar þrjár stelpur, sem skríða vilja uppí með þeim og meta, hver þeirra sé í raun sætasta stelpan á ballinu.
Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, ræddi fyrst við Framsókn, enda er það eðlilegt miðað við, að stjórn þessara tveggja flokka hefur starfað saman með miklum ágætum í 12 ár. En þegar bið varð á, að árangur næðist og ýmsar neikvæðar raddir fóru að heyrast frá áhrifamiklum framsóknarmönnum, tóku vinstri flokkarnir að senda inn myndir af sér í hinum pólítíska bíkiníi.
Af fréttum að dæma virðast bæði VG og Samfó eiga í viðræðum við Sjálfstæðisflokkinn um stjórnarmyndun. Fréttirnar um VG bárust fyrst, en óljóst er, hvor flokkurinn var á undan að fækka fötum.
Mig grunar þó, að Geir Haarde viti fyrir víst með hverjum hann vilji helst starfa, en sé að setja þessa samkeppni á svið til þess, að flokkarnir undirbjóði og verði reiðubúnir að semja um mál, sem þeir hefðu annars ekki viljað ræða í þessu samhengi, hvað þá meira.
![]() |
Framsóknarmenn taka afstöðu til stjórnarsamstarfs í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 16. maí 2007
VG og Vesturbyggð
Spurning hvort VG hafi fengið mörg atkvæði á þessum slóðum í nl. kosningum? Einhvern veginn tel ég það ólíklegt. Atvinnumál eru þarna í ólestri, svo olíuhreinsunarstöð, sem veitir fjölda fólks vinnu, gæti lappað upp á efnahags íbúa svæðisins.
En VG á móti, eins og venjulega, enda er svona fyrirtæki þess eðlis, að það samrýmist ekki hugmyndum flokksins um, hvernig framtíðarlandið Ísland skuli líta út.
En ef DV stjórn verður mynduð, geta Vesturbyggðarmenn kysst svona hugmyndir bless.
![]() |
Vesturbyggð fagnar hugmynd um olíuhreinsunarstöð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 16. maí 2007
Hvers á verktakinn að gjalda?
Hér eftir hef ég enga samúð með þessum Varmársamtökum og stuðningsmönnum þeirra. Svona lagað gera menn ekki.
Og hvers á verktakinn að gjalda? Hann er bara að vinna vinnuna sína. Hvurslags eiginlega fífl voru þarna á ferðinni?
![]() |
Skemmdarverk unnin á vinnuvélum í Álafosskvos |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 16. maí 2007
Windows Vista
Ég skil þetta vel. Ég er mjög ánægður með Vista-ð mitt og er þetta miklu betra en XP, sem ég hafði áður. Gallinn er, að ég þarf að fá mér nýjan prentara, en gamli minn meikar ekki Vista, því fyrirtækið sem framleiddi hann er löng búið að takann úr sölu og hefur því ekki uppfært driverinn fyrir Vista.
En að öðru leyti er ég afar ánægður og mæli eindregið með Windows Vista.
![]() |
40 milljónir eintaka hafa selst af Windows Vista |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Miðvikudagur, 16. maí 2007
Mourinho handtekinn!
![]() |
Mourinho handtekinn eftir hundadeilur" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)