Færsluflokkur: Aulahúmor

Sæskrímslið?

Er þetta ekki leikmaðurinn sem var seldur frá Tottenham í fyrra?

Kínverjar sprengdir

Jæja, þá voru Kínverjar sprengdir í miklum móð. En vonandi voru það bara Kínverjar sem sprungu, en ekki Kínverjar.

Á að taka upp evru?

Nei, auðveldara að flytja kókaínið beint inn frá Kólombíu -- spara milliliðina sko!

Hér á að koma gáfulegur titill

En ég fann engan. Sundhöllin kannski? En a.m.k. vildi ég vekja athygli á því að þetta hlýtur að vera slæmur dagur ef smíða þarf brú í kjaftinn á manni, svo Karíus og Baktus komist á milli svæða.

Hér sést mynd af tvíburunum (tekin af netinu)

Hérna er mynd af tvíburunum. Ég þekki þá ekki í sundur, en hérna eru frægustu tvíburar landsins.

Klámhundar á Akureyri

„Ein með öllu og allt undir" Þetta hlýtur að kalla á hörð viðbrögð Femínistafélagsins.

Femínistakarlar hafa rétt fyrir sér.

Það sjá það auðvitað allir, sem vilja, að klám og kvenfyrirlitning er alls staðar í dægurtextum og ljóðum. Gott hjá Feministum að vekja máls á þessu. Til dæmis má taka mörg klassík dæmi: Svífur yfir Esjunni = stelpan er orðin full (Esja táknmynd upp á...

Vestmannaeyjar liggja niðri

en eru þó ekki bilaðar.

McCain mælist með meira fylgi í könnun

Hann svindlar auðvitað, því daginn áður var fyrirtækið sem framleiðir McCain franskar kartöflur með magnaða auglýsingaherferð í helstu sjónvarpsstöðvum Bandaríkjanna.

Össur hækkar

Jæja, allt í áttina. Nú þarf hann bara að grennast og raka sig.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband