Færsluflokkur: Aulahúmor
Miðvikudagur, 2. apríl 2008
"Gildra fyrir birni verður að koma á óvart"
Já, sammála því. En gildrumeistarinn sjálfur, Björn Þorfinnsson (verðandi alþjóðlegur meistari í skák) er nú voðalega naskur að sjá við gildrum okkar hinna!
Miðvikudagur, 2. apríl 2008
Mótmælasvelti gegn hækkun matarverðs
Atvinnubílstjórar og sérstakir áhugamenn hafa nú á síðustu dögum mótmælt hækkun bensínverðs. Ég og Arnar Gunnarsson höfum, ásamt öðrum, mótmælt dónaskap og svívirðingum Torfa Stefánssonar á Skákhorninu. Nú er kominn tími til að neytendur mótmæli háu...
Aulahúmor | Breytt s.d. kl. 09:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 1. apríl 2008
Guðni biður um fund með Árna Math
Skrítið að Guðni þurfi á dýralækni að halda?
Þriðjudagur, 1. apríl 2008
Ráðherrastubbur
Ætli hann búi ekki í "stubbahúsi"?
Þriðjudagur, 1. apríl 2008
Verður grjónagrautur munaðarfæði??
Ég er alveg sáttur við að vera almúgamaður og losna við að borða þetta munaðarfæði ríkisbubbanna.
Mánudagur, 31. mars 2008
Tilkynning: Leiksýningu aflýst vegna rafmagnsleysis
Sýningu á Straumrofi, sem átti að vera í kvöld, hefur verið frestað vegna rafmagnsleysis. Leikfélag Grafarholts
Laugardagur, 29. mars 2008
Nýjasta ránið
var framið í 10-11-12 í kvöld, þegar þrír menn, vopnaðir segulbandstæki og spólu með lögum Wham!, hótuðu starfsmanni að spila Club Tropicana nema þeir fengju féð úr búðarkassanum. Starfsmaðurinn neitaði, enda var hann ungur að árum vissi hann ekki hvað...
Laugardagur, 29. mars 2008
Varasamur banki
Ég skil ekki af hverju menn skipta við þennan Eldeyjarbanka, ef hann er svona varasamur?
Laugardagur, 29. mars 2008
Mikið rými í rassi Madonnu
"Sprautaði Timberlake í rassinn". Ég fatta ekki hvernig Madonna: a) Kom Timberlake inn í sprautuna b) Kom Timberlake úr sprautunni og inn í "Fíatinn", án þess að það sjáist á myndum. Hún hlýtur að hafa aukið rýmið í rassinum verulega á síðustu misserum....
Laugardagur, 29. mars 2008
Undir áhrifum
Lýðheilsulöggan stöðvaði í gær ungt par, sem var á leiðinni heim sín eftir veislu. Vegna gruns um ofneyslu sykurs var tekin blóðprufa og kom þá í ljós, að ökumaður bílsins var með 15% sykurmagn í blóðinu og var samstundis fluttur í fangageymslur, þar sem...
Aulahúmor | Breytt s.d. kl. 07:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)