Sunnudagur, 21. janúar 2007
Þegar Laxness...
...heyrði eitt sinn Óskalög sjúklinga varð hann þó ánægður með, að það fólk, sem hafi góðan smekk á músík, væri heilsuhraust.
En skrítið að fólk, sem kann að semja góða tónlist, sé hætt að taka þátt í Eurovision. Kannski hefur fíflagangurinn síðasta ár drepið Eurovision niður?
![]() |
Þrjú lög áfram í undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 21. janúar 2007
Britney ólétt?
Sko, þetta er svona ekki-frétt, sem að mínum dómi á ekkert erindi inn á fréttasíðu Moggans. Í fyrsta lagi, kellingin er ekkert merkileg, í öðru lagi segir í fréttinni að ekkert sé hæft í þessu, í þriðja lagi, er þessi eltingarleikur við hollývúddskan tittlingaskít farinn að ganga út í öfgar.....menn geta svo haldið áfram að telja upp vitleysuna. En svo segir í fréttinni:
Í slúðurmiðlum heimsins hafa verið uppi vangaveltur um hvort Britney Spears sé ólétt enn eina ferðina.
Er þá Mogginn orðið "slúðurmiðill"? Maður fer að velta fyrir sér sögunni um illu andana, sem voru reknir út af andsetnum manni og báðu um, að fá að fara í svínin...eða í nýtt dagblað, þegar hið fyrra gaf upp öndina?
![]() |
Er Britney ólétt í þriðja sinn? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 21. janúar 2007
Mikill heiður?
![]() |
Elton John á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 21. janúar 2007
Stefnir í stórsigur Samfylkingarinnar!
Jæja, skv. skoðanakönnunum virðist allt stefna í stórsigur Samfó í næstu kosningum, þ.e. 20% fylgi við þennan flokk hlýtur að teljast stórsigur, ekki síst fyrir formanninn, sem tók við honum í c.a. 35%, ef ég man rétt.
Nei, þetta er engin öfugmælavísa hjá mér. Fyrir mér er 20% fylgi gott fyrir skoðanalausan flokk, sem virðist hvorki hafa framtíðarsýn né markmið. Hlutverk flokksins, stefna og markmið er einfaldlega að komast til valda. Frá upphafi hefur það verið hlutverk þessa flokks, að koma Sjálfstæðisflokknum frá völdum og setjast að í Stjórnarráðinu. Og til að ná því hlutverki hefur flokkurinn elt skoðanakannanir hringinn í kringum skottið á sér, til að vera viss um að vera alltaf með réttar skoðanir á helstu málum samfélagsins hverju sinni. Þegar virkjun var vinsæl, fylgdu Samfó virkjunum, officially amk, en síðan snerust vindar þjóðarinnar og Samfylkingin með. Ergo: stefna Samfó er, að vera alltaf með vinsælustu skoðanir þjóðarinnar hverju sinni; hún fylgir fjöldanum, en fjöldinn ekki Samfó. Því er undarlegt að flokkur, sem hefur það markmið að sleikja rass kjósenda, hvort sem þeir hafa skeint sér eða ekki, skuli bara uppskera 20% fylgi. Ástæðan er kannski sú, að kjósendur vilja flokka sem leiða kjósendur eftir fyrirfram mótuðum vegaslóðum, en ekki pólítísk sníkjudýr sem sleikja á þeim afturendann. Slíkur flokkur hlýtur að lykta og það all hressilega.
Ég tel þó að Framsókn eigi eftir að komast yfir 10%, líklega á kostnað Frjálslyndra og vonandi Samfó. Ég skil hreinlega ekki hvernig xF fær svona mörg atkvæði. Þetta hlýtur að vera lélegasti þingflokkur sögunnar og ekki bætir úr skák að hafa Jón Magnússon þarna. En mín spá er:
D-listi: 37,5%, V-listi 21,2%, S-listi 20,3%, B-listi 11,2%, F-listi c.a. 8%, restin til smáframboða, ef einhver verða.
![]() |
Fylgi VG og Frjálslyndra eykst samkvæmt skoðanakönnun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 20. janúar 2007
Sigur að bjóða sig fram?
Jæja, kona býður sig fram til formennsku í KSÍ. Allt í lagi, hið besta mál. Það vita þó allir að Geir sigrar þetta. En svo segir af fundi VG:
Í fjórðu ályktuninni fagnar flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, haldinn því að kona hafi í fyrsta skipti boðið sig fram til formennsku í Knattspyrnusambandi Íslands. Segir i ályktuninni að knattspyrna hafi fram til þessa verið eitt helsta vígi karlmennskunnar og að innan knattspyrnusambandsins hafi ríkt óviðunandi misrétti milli karla og kvenna.
Hvað gerist ef Páll Óskar býður sig fram til forseta Íslands og fær 1% afkvæða? Verður því fagnað sérstaklega á fundi VG? Það er ekkert mál að bjóða sig fram í hitt og þetta, en allt annað mál að komast í djobbið. Ég sé enga ástæðu til að fagna fyrr en þá.
Ætli stjórnarfundur Skáksambands Íslands álykti sérstaklega ef t.d. einhver skákunglingur fer í framboð til bekkjarformanns?
![]() |
Flokksráðsfundi VG í Reykjavík lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 20. janúar 2007
Barátta gegn fordómum!
Og byrjum á Alþingi. Ég fæ ekki betur séð, en að þar séu töluverðir fordómar grassérandi. Þar má að vísu ekki hafa fordóma gegn öðrum en kristnum mönnum. Spurning að setja ákveðna aðila í borgarstjórn Rvk í sama pakka, t.d. mætti kenna Marg-grátandi Sverrisdóttur smá mannasiði og virðingu fyrir fólki með aðrar skoðanir.
Ójá, skrítið hvernig íslenskt samfélag hefur þróast.
Og síðan hefur maður séð fordóma og allskonar fullyrðingar um kristna trú og kristna menn hér á blogginu; að ég held frá sömu mönnum sem þykjast berjast gegn fordómum annarra.
En margt er vel skrifað hjá Svenna HJ. framsóknarmanni, eins og venjulega.
![]() |
Samhjálp gerir athugassemdir við umræðu í sjónvarpi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 20. janúar 2007
Eru Framsóknarmenn á Suðurlandi..

![]() |
850 hafa kosið í prófkjöri framsóknarmanna í Suðurkjördæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 20. janúar 2007
Ömurleg frammistaða SAS
Jæja, kominn heim frá Prag. Og það var frekar Skoda að þakka en SAS. Síðarnefnda fyrirtækið hreint til skammar.
Ég hef alltaf haldið, að fyrirtæki ættu að reyna að forðast að gefa skít í viðskiptavini sína og segja þeim að halda kjafti, éta skít eða það sem úti frýs. En það gerði SAS í dag. ERGO: þetta flugfélag mun ég forðast að hafa nokkur samskipti við héðan í frá. Það er því komið á lista minn yfir fyrirtæki sem ég skipti ekki við vegna dónaskapar starfsfólks. Fyrir var þar aðeins eitt fyrirtæki: BYKO. Nú eru þar tvö.
Ég átti bokað flug frá Prag kl. 10.10, með SAS til Kaupmannahafnar. Ég vaknaði fyrir allar aldir og var kominn út á flugvöll kl. 8 að staðartíma, reyndar kortéri áður, eins og mér hafði verið sagt, að væri æskilegt. Jújú, en síðan gerðist ekkert. Ekkert kom um flugið, nema að fært var frá einu hliði til annars, nánast án fyrirvara, svo sumir farþegar biðu lengi vel við vitlaust hlið. En kl. 9.50 var tilkynnt, að "smá seinkun" yrði og yrðu nánari upplýsingar fyrirliggjandi 10.15. En þarna var þegar orðið ljóst, að flugvélin, sem átti að sækja okkur, var biluð og engin fékkst í staðinn. Engu að síður vorum við látin halda áfram að bíða, eða framundir 12.00 þegar fluginu var formlega aflýst. Þetta kom m.a. mikið niður á tveimur ágætis mönnum, þrælskemmtilegum, frá Heklu, forstjóranum og undirsáta hans, en þeir þurftu að vera komnir heim á réttum tíma vegna áríðandi bissnessfundar. Hefðu SAS menn sagt rétt frá stöðu mála þegar í upphafi, hefðu þeir t.d. getað komist heim um London eða Frankfurt.
Nú, jæja, eftir mikið stapp og vesen þarna á flugvellinum, þar sem erindrekar SAS reyndust eiginlega verri en engir, komust tveir af okkur þremur Íslendingunum með far með síðdegisvélinni til Köben og áfram með kvöldvélinni til Íslands - fengum tvö síðustu sætin. Sá þriðji fór á biðlista, en komst reyndar með að lokum. Og meðan þessari 8 klst við stóð, fékk maður í skaðabætur frá SAS lítinn matarmiða, sem dugði fyrir kaldri samloku og vatnsflösku. Ég tók því þennan miða og hentonum, hætti síðan við og fékk mér 2 kaffibolla, meðan maður var að komast yfir verstu syfjuna. En heldur finnst manni þetta nú lélegt hjá SAS: köld samloka og vatnsflaska til 8 klst biðar, samtals. Og lítil og léleg upplýsingagjöf. Og þegar maður loksins komst um borð í næsta flug, gat maður KEYPT þar samloku; þar að auki var ég settur í sæti alveg aftast, við hliðina á klósettinu og útsýnið var glæsilegt; hreyfill vélarinnar. Mér bauðst reyndar að færa mig 3 sætum framar, en ég sá ekki að það breytti neinu og ákvað að sitja áfram í skítalyktinni; það væri við hæfi eftir að SAS flugfélagið gaf skít í mann og aðra farþega sína með morgunfluginu. En taka verður fram jafnframt, að þetta seinna flug var aðeins hálftíma of seint. SAS greinilega í hraðri framför.
Ég veit ekki hvað fólki finnst, en mér fannst SAS standa sig illa. Þar fyrir utan vissi félagið og veit, að ef farþegar bíða þarna tímunum saman hefði verið hægt að gera eitthvað fyrir þá, því á Prag flugvelli er jafn lítið að gerast og á Akureyrarflugvelli. ERGO: ekkert.
En hefði ég ekki fengið að sitja í Flugleiðavélinni heim og orðið að gista í Köben eina nótt, hvar ætli SAS hefði þá holað manni niður; á bekk á Hovedbanegaarden?
Ég hef lesið í blöðum hin síðari ár um slæma stöðu SAS, fjárhagslega. Eftir þessa reynslu er ég ekki hissa. Ef flugfélag segir við farþega sína: Éttu skít, þá fljúgja þeir bara með öðru flugfélagi næst. En ég nenni nú ekki að standa í neinu veseni vegna þessa, enda á maður ekki von á að SAS vilji gera neitt í þessu máli, því þeim er greinilega skítsama um farþega sína. En ég vildi bara koma þessu að. Svo þetta sé komið á "record".
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 09:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 20. janúar 2007
Glæsilega gert hjá Ólafi og Ingibjörgu
Svona eiga bændur að vera!! Ég tek ofan hattinn minn nýja, strýk skallann og klappa saman fótunum.
Að mínum dómi hefur það verið ákveðinn ljóður á framgöngu íslenskra milljarðamæringa, eða multimilla af öðrum toga, að þeir virðast fyrst og fremst hugsa um að græða meiri peninga. Að vísu hafa undantekningar átt sér stað, en t.d. hefur Jóhannes í Bónus, eða Baugur per se, staðið fyrir ýmis konar hjálparstarfi, en manni hefur fundist millarnir frekar fálátir í þessu, þó einstaka verkefni hafi hlotið náð fyrir augum þeirra.
En hér stíga fram Ólafur Ólafsson forstjóri og Ingibjörg Kristjánsdóttir, landslagsarkitekt og eiginkona Ólafs, og veita einum milljarði í velgerðarsjóð. Þetta breytir aðeins skoðunum mínum í þessu og vænti ég, að fleiri en þessi sómahjón taki nú af skarið með myndarlegum framlögum.
Ég ítreka ánægju mína með þessa gjörð.
![]() |
Gefa einn milljarð króna í velgerðarsjóð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 19. janúar 2007
Lokamorgunn í Praha og vel heppnuð augnaðgerð
Jæja, þá er þetta búið. Síðasti morguninn. Ég er búnað tékka mig út, borða þennan morkna morgunmat (kaffið samt ágætt) og stara á löngu leggina á einni griðkunni. Ég meina, hún hlýtur að æfa körfubolta. En jafn fagra leggi hef ég ekki séð lengi. Önnur hefðbundin morgunverk eru einnig búin. Vaknaði um sexleytið, tók sturtu, rakaði mig og setti síðan "bjútíboxið" niðrí tösku. Skrapp niðrí muppetlobbí og losaði mig við klink í kaffisjálfsalann. Í herberginu við hliðina sefur Róbert Harðarson Lagerman Gilfer svefni hinna sjóngóðu.
Augnaðgerð Robba gekk vel í gær og gengur hann nú um með sólgleraugu, til að hlífa augunum. Þetta hljóta að vera flottustu gleraugu sinnar tegundar, enda valdi þau mikill smekkmaður. Óþarfi að nefna hann frekar. En þau fara honum afskaplega vel. En hann var stöðuglega að commenta á "nýju augun" sín í gær, enda hefur hann vísast aldrei séð betur en einmitt nú. Maður getur ekki annað en glaðst fyrir Robba hönd.
Ég vil svo benda lesendum á, að hér fást mjög fullkomnar laseraðgerðir á augum fyrir aðeins þriðjung af því sem gerist heima. Þetta kostaði Robba aðeins 1100 evrur. Heima held ég að þetta kosti um 350.000 kall c.a. Robbi mun taka með sér kynningarbæklinga heim (og fékk við það smá afslátt) og geta áhugasamir haft samband við hann í chesslion@hotmail.com eftir c.a. 1 viku.
Nú, kortér í að hoteltaxinn beri mig út á flugvöll. Ég millilendi í Köben og var ég að áætla í gærkvöldi, að ég hefði komið á þennan fína flugvöll c.a. 50 sinnum, þar af einu sinni verið þar yfir nótt. Þaðan tekur maður síðan hádegisvélina heim og sný heim í snjóinn og kuldann um hálf fjögur leytið. Heima er best, ef maður er íslenskur. Annars bara næstbest. Þótt þetta hafi verið skemmtilegur túr, þrátt fyrir allt, er alltaf gott að koma heim.
Annars er hér nú varla þverfótað fyrir Japönum, sem hafa nanast fyllt hótelið hér síðustu vikuna. Og þeir, ásamt mér, eru þeir einu sem nenna að vakna kl. 6 og fara í morgunmat hálf sjö. Dugnaðarfólk, en áttar sig ekki alltaf á því, að það er ekki eitt hér á hótelinu. En bugta sig á alla kanta þegar það áttar sig á, að það hefur haldið hópfund á versta stað og lokað gönguleiðum. Japanir kunna mannasiði, ólíkt t.d. Skandinövunum hér, sem virðast líta á sig sem herraþjóð innan um Japani og Tékka, nöldrandi út af hverju smáatriði etc.
En jæja, ég kveð að sinni. Flottir leikir um helgina í enska boltanum. Áfram Arsenal. Og síðan er HM eða EM í Þýskalandi. Áfram Ísland.
Allez!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)