Britney ólétt?

britneySko, þetta er svona ekki-frétt, sem að mínum dómi á ekkert erindi inn á fréttasíðu Moggans. Í fyrsta lagi, kellingin er ekkert merkileg, í öðru lagi segir í fréttinni að ekkert sé hæft í þessu, í þriðja lagi, er þessi eltingarleikur við hollývúddskan tittlingaskít farinn að ganga út í öfgar.....menn geta svo haldið áfram að telja upp vitleysuna. En svo segir í fréttinni:

Í slúðurmiðlum heimsins hafa verið uppi vangaveltur um hvort Britney Spears sé ólétt enn eina ferðina.

Er þá Mogginn orðið "slúðurmiðill"? Maður fer að velta fyrir sér sögunni um illu andana, sem voru reknir út af andsetnum manni og báðu um, að fá að fara í svínin...eða í nýtt dagblað, þegar hið fyrra gaf upp öndina?


mbl.is Er Britney ólétt í þriðja sinn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband