Mánudagur, 29. janúar 2007
Guðjón Arnar ótrúverðugur
Þessu mætti líkja við, að Hitler hefði gefið út yfirlýsingu 1938: "Frekar leitt að Gyðingar séu að yfirgefa Þýskaland". (Vil þó alls ekki líkja austurríska skiltamálarnum við vestfirska skipstjórann að öðru leyti).
Þessi ummæli eru, að mínum dómi, síðasti naglinn í kistuna. Hvernig á nokkur maður að geta trúað Guðjóni hér eftir? Hvernig á nokkur að geta treyst honum?
Og þar að auki aðeins FREKAR leitt, en ekki mjög.
Jæja, hvað ætli Frjálslyndi framfaraflokkurinn fái mikið fylgi í næstu kosningum? 5%, eða kannski minna? Og undir hvaða nafni ætli flokkurinn bjóði fram í vor?
![]() |
Guðjón Arnar: Frekar leitt að Margrét skyldi taka þessa afstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 29. janúar 2007
Kaffibandalagið: bara ein mistök af mörgum
Ég skil þetta ekki alveg...af hverju viðurkennir Stefán ekki bara, að Samfylkingin hafi verið mistök...eða síðasta formannskjör? Flokkur, sem stofnaður er til höfuðs einum manni - eða einum flokki, getur ekki virkað traustvekjandi til frambúðar. Og nú, þegar þessi maður er hættur, kemur upp tilvistarkreppa. Hin síðustu misseri hafa síðan kratarnir varla þorað að anda á Sjálfstæðisflokkinn - sem Samfóið var stofnað til að koma frá völdum - af ótta við að gera sjalla fúla og eyðileggja þannig möguleika á stjórnarsamstarfi. En Ingibjörg Sólrún tók af öll tvímæli á Reykjavíkurfundinum fræga um daginn. Skotleyfi veitt á Sjálfstæðisflokkinn. Kratar eru greinilega hættir að láta sig dreyma um nýja "viðreisn", en geta heldur ekki starfað með frjálslyndum, og eftir Kryddsíldina, fer að fjara undan vináttunni við VG.
Mistök Samfylkingarinnar fólust í, að fleygja Össuri út. Með hann í brúnni væri líklegt, að næsta stjórn landsins yrði Sjálfstæðisflokkur og Samfylking. Nú virðist það borin von, nema mjög verulega breytingar verði á hugsunarhætti þjóhnappakratanna.
![]() |
Stefán Jón: Kaffibandalagið mistök |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 29. janúar 2007
Ok, maður fer að fá nóg af svona fréttum
Ég hef annars enga skoðun á þessu máli, en mér finnst þetta vera orðið þreytandi. Svona mál á ekki að reka á netinu, heldur skuli lögregla rannsaka, telji menn sig hafa sök á hendur manni fyrir vafasamt athæfi.
En á hinn bóginn fer þetta að vera erfitt fyrir KFUM, fyrst Ágúst Magnússon og svo þetta.
![]() |
Hefur kært myndbirtingar á netinu til lögreglu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 29. janúar 2007
Æ, nei, Össur, ekki þú líka!
Pólítískir afleikir hafa verið margir og stórir upp á síðkastið. Sá nýjasti þeirra kom fram á Alþingi í dag, þegar Össur Skarphéðinsson sagði eftirfarandi:
Herra trúr. Þingmaðurinn ætti ekki að leika frægustu persónu í leikritum Shakespeares, hirðfíflið," sagði Össur.
Hvernig dettur manni, sem hefur það orð á sér að vera "the funny man", að segja svona um annan þingmann? Er ekki verið að gefa færi á sér? Guðjón Ólafur er t.d. ekki fyndinn og getur því ekki leikið hirðfífl. Össur er hins vegar með fyndnari mönnum á Alþingi, og sá fyndnasti í Samfó, og er þvi mun líklegri í hlutverkið...svona þannig séð. Reyndar hef ég heyrt fleiri en einn mann nota þau orð, að Össur væri hirðfífl Ingibjargar.
Þarna tapaði Össur mikilvægri skák gegn "stigalausum" og fellur niður úr meistaraflokki, a.m.k. um stundarsakir. Mér líkar reyndar ágætlega við kappann Össur, en nú get ég ekki orða bundist. (Og ég vona að hann fyrirgefi mér að vísa á Baggalútsþrífaramyndina).
Samfylkingarþingmenn missa víst aldrei af tækifæri til að missa af tækifæri til að klúðra. Það virðist orðið greinilegt.
![]() |
Þeir sem ráða ekki við einn kjörkassa ráða örugglega ekki við ríkiskassann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir | Breytt s.d. kl. 16:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 29. janúar 2007
Ok, höfum þetta á hreinu
1. Hvers vegna þarf maður, sem er giftur Jolie að leita annað?
2. Hvers vegna giftist Jolie þessum gaur?
3. Hvers vegna giftist Thornton þessari ...?
![]() |
Jolie vildi bjarga heiminum en Thornton vildi horfa á Stubbana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 29. janúar 2007
Þrífarar Baggalúts - nokkrir klassískir
Í gegnum tíðina hefur maður oft getað hlegið að þríförum Baggalúts. Hér var einhver bloggari að nefna síðustu þrífarana, með Stefán Eiríksson efstan. Mig langar til að nefna hér nokkra af mínum eftirlætis þríförum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 29. janúar 2007
Hvernig getur elsti maður í heimi verið látinn?
Ég meina, Jón Sigurðsson t.d. væri þá eldri en frú Emma, já, eða Jón Arason, svo ekki sé minnst á Gamla Nóa!
Þessa fyrirsögn hefði alveg mátt orða öðruvísi, en gaman að þessu samt.
![]() |
Elsta manneskja í heimi látin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 29. janúar 2007
Fyrirsögn á forsíðu Fréttablaðsins
"Stefnuleysi hjá fjölda leikskóla" eða eitthvað svoleiðis. Ég hef lengi haldið því fram, að stefnuleysi hrjái Samfylkinguna. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu, síðustu daga, að ýmsir kratar séu á leikskólastiginu, jafnvel sumir úr innsta hring. Og formaður Samfó hefur síðustu daga komið fram eins og leikskólakennari.
Þetta er mjög skemmtilega hugsað hjá Fréttablaðinu. Það er mikið stefnuleysi hjá fjölda leikskóla, m.a. þeim sem á sæti á Alþingi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 29. janúar 2007
Að sleppa undan sjálfsmorðsárás
Ég greindi frá því, hér fyrr í morgun, þegar ég komst í kynni við sjálfsmorðsárás. Ég vil nú aðeins bæta við:
Hamas segir, að sjálfsmorðsárás sé löggilt tæki í baráttunni. En Shimon Peres heldur því aftur á móti fram, að Eilat skuli vera borg friðar og túrisma. Sú yfirlýsing kemur í kjölfarið á því, að Eilat-borg taldi von á 50% aukningu í túrisma En síðan heldur palestínska heimastjórnin því fram, að Íran og Sýrlandi séu að koma af stað borgarastríði í Palestínu, vísast til að komast þar sjálf til áhrifa.
Ýmislegt að gerast þarna fyrir sunnan.
![]() |
Þrír féllu í sjálfsvígsárás í Ísrael |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 29. janúar 2007
Sjálfsmorðsárás og þegar ég missti af sprengjustrætó
Jæja, þá er þetta byrjað aftur. Islamic Jihad enn og aftur á ferðinni. Fyrir okkur, sem hafa komið að slíkum vettvangi eða jafnvel sloppið "naumlega" úr slíkri árás, er þetta ekki fagnaðarefni. Og þetta verður auðvitað ekki til að auka líkur á friði í þessum heimshluta.
En það var fyrir ellefu árum síðan, að ég var ásamt öðrum að skipuleggja ráðstefnu þarna suðrí Jerúsalem. Ég kláraði minn hluta á miðnætti, aðfaranótt sunnudags, þegar ráðstefnan átti að hefjast. Komst ég síðan heim einhvern veginn, nánast skreið upp þessar 120 tröppur að blokkinni, komst í rúmið og steinlá. Vekjaraklukkan byrjaði síðan að glamra kl. 6 að morgni. Ég skreið framúr, en nennti hreinlega ekki að fara á fætur strax og ná strætó í bæinn. Hafði hreinlega ekki orku í meira. Fór síðan beint upp í. Liðið varð að meika morguninn án mín, enda engin sérfræðistörf óunnin, bara að hengja upp, raða stólum og svo framvegis.
Ég man ekki hvað klukkan var, þegar síminn hringdi heima og samstarfskona mín andvarpaði af feginleik þegar ég svaraði að lokum. Málið var, að strætóinn sem ég tók yfirleitt, en ekki alltaf, á morgnana, hafði sprungið í loft upp í miðbænum og fjöldi manna látist. Þar var sprengjumaður á ferð. Mér brá óneitanlega, enda hefði ég vísast tekið þennan vagn í bæinn, hefði ég nennt á lappir, eða strætó nr. 20, sem fylgdi sömu leið í bæinn en lagði af stað 5 mín seinna. En síðan kom í ljós, að sprengjan sprakk einni stoppustöð eftir að ég hefði ÖRUGGLEGA farið út.
Það var þó lítil huggun. Ég hefði því setið í sprengjuhlöðnum vagni marga kílómetra. En hefði vísast sloppið, því eins og DV lagði mér í munn: "Ekki verður feigum forðað né ófeigum í hel komið." Þetta sagði ég aldrei, þegar DV hringdi í mig, heldur Sigurdór blaðamaður. En þetta urðu ummæli vikunnar og voru tileinkuð mér, merkilega nokk.
Mér var síðar sagt, að þetta eintak DV hefði samasem selst upp, en það hefur varla verið vegna fréttarinnar, heldur hins, að mínir fögru fótleggir voru opinberaðir á forsíðunni. En svona gengur lífið
En nú var sprengt í Eilat, einum albesta sumarleyfisstað í Miðausturlöndum. Þessi staðsetning hlýtur að vera til þess ætluð að benda á, að í Ísrael er enginn óhultur frá sprengjum þessara hryðjuverkahópa.
(Myndin til hægri er tekin fyrir framan Faðir vorið á íslensku, þar sem það hangir í "Faðirvorkirkjunni", sem á að hafa verið reist á þeim stað, þar sem Jesús kenndi drengjunum tólf "Faðirvorið".)
![]() |
Sjálfsmorðsárás í Ísrael |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)