Breaking news

Hafskip í vandræðum og Arnarflug á leiðinni í greiðslustöðvun.

En góðar fréttir. Ronald Reagan er orðinn betri af flensunni.


mbl.is Gömul frétt olli hruni á hlutabréfaverði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rasismi í löggunni?

Sumir hafa verið að halda því fram, undanfarið, að það sé rasismi hjá Mogganum að segja t.d. að "árásarmennirnir voru frá Litháen" eða eitthvað svoleiðis. Þjóðerni sé ekki tilgreint ef um Íslendinga er að ræða. Einnig er verið að troða hugtakinu "rasisma" yfir allskonar mál, sem ekki eiga neitt skylt við rasisma.

Slíkt rugl fólks, sem þarmeð er að gengisfella það, þegar í raun er um rasisma að ræða, hlýtur að vera mjög illa að sér.

En með sömu rökum má segja að það sé rasismi hjá löggunni að birta nafn og mynd af þessum manni, því þannig að deginum ljósara að um útlending sé að ræða. Að vísu er þjoðerni ekki tilgreint, og nafn stundum líka birt þegar um Íslendinga er að ræða, en þetta hlýtur mjög greinilega að kynda undir útlendingahatur, sér í lagi fólks í Frjálslynda flokknum (sem ég tilheyri reyndar ekki), því veslings maðurinn sé innflytjandi, nýbúi eða eitthvað annað, og sé hér skráður hættulegur, en það er ekki alltaf gert þegar talað er um Íslendinga.

Osfrv.

Ergo: rasismi er því miður ofnotað hugtak sem á ekki alltaf við þegar það er notað, þeim sem það gera til minnkunar, þegar misnotkun á sér stað.

 


mbl.is Lögreglan lýsir eftir manni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skotarnir að taka þetta?

Jæja, klaufaskapur er þetta. Hefði Eiður bara sett boltann í markið í stað þess að dúndra, þar sem hann var í dauðafæri rétt fyrir fyrra (fyrsta) mark Skota, hefðu mál e.t.v. þróast öðruvísi.

En auðvelt að vera vitur eftirá.


mbl.is Skotar unnu nauman sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þýskir femínistar sofa á verðinum

Það er nokkuð ljóst. Veggmynd með nöktum stjórnmálaleiðtogum fengi aldrei að standa óárreitt hér á Íslandi amk.

Greinilegt að Ísland er nokkuð bleikara að staðaldri en Þýskaland.


mbl.is Stjórnmálamenn án klæða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kim Jong-il jafnar sig eftir slag

Honum var nær að vera í slagsmálum, kominn vel á sjötugsaldurinn.

Annars held ég það verði N-Kóreu til góðs að skipta um leiðtoga og hætta þessari harðlínudellu sinni.


mbl.is Kim Jong-Il sagður vera að jafna sig eftir slag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lokuð eyru

Gott hjá Hiddink. Óþarfi að vera eitthvað að hlusta á vælið í Tottenham Wink
mbl.is Hiddink hlustar ekki á Tottenham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nærbuxur Mikjáls Djakksons boðnar upp á milljón dollara eða meira

Úff, ég hélt að ég væri ekki í lagi. En þetta slær nú flestu öðru við.

Menn þurfa að vera verulega grillaðir til að kaupa nærbuxur af þessum vægast sagt undarlega manni fyrir 90 milljónir íslenskra eða meira.

En svona er víst heimurinn orðinn í dag.


mbl.is Nærbrækur Jacksons til sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ritskoðunin: Lokað á karlugluna.

bannadBúið að loka bloggi Sigga gamla rugludalls:

http://sigurdursig.blog.is/blog_closed.html


Æjá, nú verður rólegra hér á blogginu, þó eftir standi sumir sem eru enn grófari en karlálkan.


XL

Nú spyr ég eins og fáfróður aðdáandi ítalska fótboltans: Er ekki XL það fyrirtæki sem auglýsir á búningum West Ham?
mbl.is Björgólfsfeðgar tilbúnir að bjarga Eimskip
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvalamorð: Að gefnu tilefni

Að gefnu tilefni skal tekið fram, að ég er enn í fullu fjöri.

Kv

Hvala


mbl.is Hvalamorð á Keflavíkurflugvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband