Föstudagur, 29. júní 2007
Ökufantar
![]() |
Ók á 140 km hraða undir áhrifum áfengis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 29. júní 2007
Zestur
![]() |
Einkennilegur sebrahestur í Þýskalandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 28. júní 2007
Fangabúningurinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 28. júní 2007
Þegar ég var dæmdur fyrir ýmis brot
Já, þetta var snemma á níunda áratugnum. Það kom eitthvað yfir mig og ég framdi fjölda brota á mjög skömmum tíma, allt á sama klukkutímanum.
Svo fór því að lokum, að dómarinn dæmdi mig til að hljóta gula spjaldið, enda hefði ég framið nokkur brot áður og tveggja fóta tækling væri óæskileg.
Afsökun mín, að þarna væri um að ræða KRing, sem ætti ekki skilda neina silkihanska, var ekki tekin til greina.
![]() |
Dæmdir í fangelsi fyrir peningafölsun og fleiri brot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 28. júní 2007
Capello tekur við K.R.
Samkvæmt óöruggum heimildum hefur Fabio Capello, brottrekinn þjálfari Real Madrid, verið ráðinn þjálfari KR út keppnistímabilið. Talið er, að hann muni í kjölfarið þar á gerast yfirmaður knattspyrnumála hjá West Ham United og bankaráðsmaður í Landsbankanum, f.h. Samsons.
Samkvæmt frétt El Toroshitto mun Capello hafa lýst því yfir við nána vini, að meðfylgjandi sé kaupréttarsamningar á hlutabréfum í Landsbankanum og einhverju símafyrirtæki í A-Evrópu.
![]() |
Capello rekinn frá Real Madrid |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 28. júní 2007
Kolvetnajöfnun
Jæja, ég er búinn að kolvetnajafna fyrir daginn. Borðaði smá brauðmeti í morgun, og fór svo og kolvetnajafnaði með því að taka ágætlega á í ræktinni. Skilaði ég þar með kolvetnunum aftur út í náttúruna í beinu framhaldi, þegar ég kom heim.
Manni líður strax betur!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 28. júní 2007
Veðrið
Jæja, maður hefur séð það verra í lok júní. En hvenær ætli komi almennilegt sumar, með yfir 20 stiga hita dag eftir dag, og jafnvel logn hluta af degi?
Átti ekki mengunin og gróðurhúsaáhrifadæmið að auka hitann hjá okkur?
![]() |
Veðurhorfur næsta sólarhringinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 27. júní 2007
Hætta í íbúðahverfi
Jæja, þá er verið að flytja úr Grænuhlíðinni, af næstum því horninu á Stigahlíð. Þetta er góður staður að búa á, eða hefur verið. En nú er best að forða sér, áður en fasteignaverðið þarna í hverfinu fellur enn frekar.
Ástæðan er einföld. Löggilt Liverpool-verslun hefur verið í Suðurveri nú í nokkurn tíma og frá þeim tíma hefur fasteignaverð hrapað.
Ég meina, hvernig stendur á því að borgin leyfir svona starfsemi að vera í íbúðahverfi? Hvað með börnin í hverfinu? Þau er í stórhættu að smitast af rauðu Liverpool-pestinni og stórskemma framtíðarmöguleika sína í lífinu. Af hverju var ekki haldin grenndarkynning, áður en starfsemi þessi fékk heimild til að setja sig þarna niður?
En það er vísast orðið of seint núna, svo ég sé mér ekki annað fært en að flytja, áður en hverfið verður algjörlega ofurselt veirunni!
Og til að vera alveg viss um allt smit, þá færi ég mig fjær KR heimilinu og nær hinum nýju höfuðstöðvum FRAM þarna uppi í sveit.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 27. júní 2007
Gagnkynhneigð belja
Samkvæmt óöruggum heimildum er þetta sama beljan og kyssti Guðna. Greinilegt er, eins og allar líkur benda til, að hún hafi haldið, að stúlka þessi hafi líka viljað kyssa Guðna og því ráðast á hana, til að hrekja keppinautinn frá.
Og þegar hún sneri aftur frá árásarferðinni, var Guðni farinn. Síðan hefur veslings beljan verið í ástarsorg og ekki að undra, enda telja 72% kúa skv. síðustu skoðanakönnun Capacents, að Guðni Ágústsson sé kyssilegastur mannfólksins.
En síðan er auðvitað spurning, hvort Guðni hafi gengið lengra og tekið í spenana á beljunni frægu?
![]() |
Slasaðist í viðskiptum við kú |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 27. júní 2007
Vel valið!
Af krata að vera, er Hrannar Björn Arnarsson mjög fínn! Reyndar er hann að mínum dómi jafnvel í sama gæðaflokki og eðal sjálfstæðismenn.
Eg hef þekkt Hrannar lengi og hef engan efa um að hann eigi eftir að standa sig afburða vel sem aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur í félagsmálaráðuneytinu.
Þarna valdi Jóhanna rétt.
![]() |
Hrannar Björn aðstoðarmaður Jóhönnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)