Gagnkynhneigð belja

gudniSamkvæmt óöruggum heimildum er þetta sama beljan og kyssti Guðna. Greinilegt er, eins og allar líkur benda til, að hún hafi haldið, að stúlka þessi hafi líka viljað kyssa Guðna og því ráðast á hana, til að hrekja keppinautinn frá.

Og þegar hún sneri aftur frá árásarferðinni, var Guðni farinn. Síðan hefur veslings beljan verið í ástarsorg og ekki að undra, enda telja 72% kúa skv. síðustu skoðanakönnun Capacents, að Guðni Ágústsson sé kyssilegastur mannfólksins.

En síðan er auðvitað spurning, hvort Guðni hafi gengið lengra og tekið í spenana á beljunni frægu?


mbl.is Slasaðist í viðskiptum við kú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er samt merkilegur dómur. Ekki er hægt að saka bóndann um gáleysi frekar en stúlkuna. Hefði ekki verið nær að vísa málinu frá?

Björn (IP-tala skráð) 27.6.2007 kl. 16:32

2 Smámynd: Snorri Bergz

Já, mér fannst þetta svo mikið rugl, að ég varð að gera svoldið grín. Ég meina, 2 millur! Comeon. Þetta er á leiðinni í sama ruglið og í USA.

Snorri Bergz, 27.6.2007 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband