Dýr yrði Hafliði allur...

...ef hvert nart kostar 100.000  krónur.
mbl.is Þarf að borga fyrir bitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að einkavæða Reykjanesbraut?

Ja, hér segir í titli: "Sjö buðu í Reykjanesbraut"?  Hvað á maður að halda? Wink
mbl.is Sjö buðu í Reykjanesbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

París Hilton er barn

Ja, hún hegðar sér a.m.k. eins og barn.


EN vilji hún virkilega setja köku í ofninn eru vitaskuld margir mjög færir bakarar á Íslandi.


mbl.is Paris Hilton vill barn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reykjavík einangruð?

Ég sé hér þrjár fréttir á Mbl.is í röð um vandræði á þjóðvegunum umhverfis Reykjavík.

Hellisheiði að vísu opin, en þar er hálka og skafrenningur. Vesturlandsvegur lokaður vegna umferðaróhapps í Hvalfjarðargöngum (eða við, man ekki hvort), og Reykjanesbraut lokuð vegna umferðaróhapps við Vogaafleggjara.


Feginn er ég að eiga ekki brýnt erindi út á land á þessum fallega en veðurskrítna miðvikudagsmorgni.


mbl.is Hálka á Hellisheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heiðursmaður genginn

Jón S. Guðmundsson er látinn.


Genginn er maðurinn sem hefur ásamt öðrum gert það að verkum að hluti Íslendinga kann enn að rita móðurmál sitt með sæmandi hætti. Maður af gamla "skólanum", íslenskukennari þúsunda landsmanna.

Ég stundaði reyndar ekki nám í M.R. en ég kynntist Jóni síðar þegar við vorum báðir að lesa yfir bókarhandrit og sat stundum með honum að spjalla um íslenskt mál eða landsins gagn og nauðsynjar. Ég hafði mjög gaman að þessum heimsóknum og lærði margt.


Það er e.t.v. ekki við hæfi fyrir mig, sem þekkti Jón í sjálfu sér ekki það mikið, að kasta fram nokkrum minningarorðum, en ég geri það samt.


Jón S. Guðmundsson. Hvíl í friði.


mbl.is Andlát: Jón S. Guðmundsson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dóp í tösku

Merkilegt að menn sem hafa áður "komið við sögu lögreglunnar" skuli yfirleitt nenna að reyna að smygla dópi til landsins. Ég býst fastlega við að tollurinn í Keflavík tékki farþegaskrár og beri saman við gagnabanka, þar sem kemur í ljós hvaða farþegar hafa áður verið nefndir á nafn í sögubókum dómsyfirvalda og lögreglu.

Og ef einhver farþegi telst grunsamlegur í þessu ljósi er hann auðvitað tékkaður sérstaklega, það segir sig sjálft.


mbl.is Með þrjú kíló af amfetamíni í tösku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Absolut afsökun?

Hvað ætli auglýsingastofa Absolut hafi verið búin að innbyrða marga Absolut-kassa þegar hún hannað þessa auglýsingu?
mbl.is Absolut biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umferðarslys

Bara smá spurning: var ekki margra-bíla-árekstur í Ártúnsbrekkunni í morgun, eða voru bílstjórar að mótmæla einu sinni enn?

 

A.m.k. hef ég ekkert séð um þann atburð hér á mbl.is. Eða var mig kannski bara að dreyma?


mbl.is Alvarlegt umferðarslys
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ranglega greind í fyrstu"

Jæja, Neighbours stjarnan var ranglega greind í fyrstu. Soleiðis! En gott að hún skuli nú hafa orðið greindari með tímanum. En ég þekki marga sem eru ranglega taldir greindir.
mbl.is Var ranglega greind í fyrstu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttir á ensku

Jæja, þetta er nú ágætt, sér í lagi að blm. Moggans hvorki skrifi þessar fréttir sjálfir né afriti þær frá erlendum fréttamiðlun.

Copy/paste er leiðinleg aðferð, en hvað hitt atriðið snertir þá eiga blm. Moggans nógu erfitt með að skrifa á íslensku...:) 
mbl.is Fréttir á ensku á mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband