Jájájájá

Ég vil fá Boccia og Curling í sjónvarpið og ekki seinna en strax!
mbl.is Ný íþróttasjónvarpsstöð stofnuð?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áheyrnarprufur á laugardaginn

Einhleypum stúlkum á þrítugsaldri er hérmeð boðið í áheyrnarprufur....ok, þið fattið restina.

Ok, Tom er kannski ríkari og frægri, en ég er amk ekki dvergur og læt mér nægja að sitja eða leggja mig í sófum.
mbl.is Vísindakirkjan í kvinnuleit fyrir einmana Cruise
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almennt góður árangur

Íslendingar stóðu sig almennt vel á Reykjavíkurskákmótinu. Hannes Hlífar efstur ásamt tveimur kínverskum maskínum, Bjössi næstum því búnað ná GM normi (en náði síðasta IM norminu) og almennt voru menn að gera það ágætt, sérstaklega ungviðið.

Svo segir á www.skak.is

 

Mótið var gott fyrir íslenskt skáklíf og hækka skákmenn búsettir hérlendis umtalsvert á stigum.  

Mestu hækkanir eru:

  • Bjarni Jens Kristinsson 35,3
  • Björn Þorfinnsson 35
  • Jóhann H. Ragnarsson 31,5
  • Elsa María Kristínardóttir 30,5
  • Atli Freyr Kristjánsson 26
  • Hannes Hlífar Stefánsson 18,6
  • Helgi Brynjarsson 17,8
  • Dagur Andri Friðgeirsson 15,5
  • Sigurbjörn Björnsson 15
  • Sverrir Þorgeirsson 14,9
  • Snorri G. Bergsson 13,8
  • Hjörvar Steinn Grétarsson 12,3
  • Davíð Kjartansson 12

Samtals hækka íslenskir skákmenn búsettir hér á landi um 170 skákstig umfram lækkanir sem verður að teljast umtalsvert og ánægjulegt að hversu vel okkar yngstu skákmönnum gekk.


mbl.is Hannes Hlífar og tveir Kínverjar unnu Reykjavíkurskákmótið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veslings stelpan

er í erfiðri stöðu. Hún er gift meiriháttar fífli en ákveður að reyna að láta þetta virka. Cashley Cole er mjög ofarlega á lista yfir idíót í breskum "stjörnuheimi", og á nokkra forsögu í þeim efnum. Og ekki fer hann skánandi.

En stelpugreyið á mína fyllstu samúð...


mbl.is Sex mánaða kynlífsbann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dónaskapur og frekja er þetta!?

Hvernig dettur konum í hug að þær eigi rétt á að keyra bíl í Saudi-Arabíu?! Vita þær ekki að þeirra hlutverk er að vera eldabuska og útungunarvél?

Og merkilegt að femínistaflokkur Íslands skuli ekki mótmæla kvennakúgun Saudanna?

En þessi hugdjarfa kona á bæði stuðning og samúð frá mér.
mbl.is Konur í Sádí-arabíu vilja fá að aka bílum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvílíkur unaður!

Smje. Tefldi við morkna Svíann, Emil Hermannsson, með svörtu í kvöld. Ég jafnaði tafli easily eftir byrjunina, en var að láta hann pirra mig með smá brotum á skákreglunum og ákvað að flækja þetta aðeins. En hann sá lengra og um tíma lá við að ég myndi gefa þetta bara, en ákvað að láta hann hafa fyrir þessu. Ég átti nokkrar sekúndur eftir á klukkunni þegar ég hóf að sprikla. Ég náði tímamörkunum, en hann átti hálftíma eftir. Svo fór að hann ætlaði að tefla "menntað", í stað þess að vinna þetta bara beint og málið dautt. Ég hafði að vísu sprikl og þráskákarsénsa, sem hann hefur e.t.v. ofmetið.

En síðan fór svo, að hann tefldi þetta ónákvæmt og missti svo af síðasta jafnteflissénsinum...bara sénsi, og þá var ekki aftur snúið. Hann var kominn í mátnet og gafst upp þegar hann var óverjandi mát í einum.

Ljúft. Ótrúlega ljúft.

1. Maðurinn er Svíi.
2. Maðurinn beitti rangindum
3. Maðurinn er ótrúlega morkinn
4. Ég var með koltapað!

´Loksins næ ég að grísa. Ég er yfirleitt hinumegin borðsins; leik af mér vænlegri stöðu eða unni. Þetta átti ég svo sannarlega inni. Og gott að grísinn skyldi einmitt koma gegn morkna Svíanum.


Aftaka í Saudi

Nú, er það rétt sem segir að aftaka fylgi nauðgun í Saudi-Arabiu? Ef ég man rétt, þá fékk stúlka, sem nauðgað var, refsingu fyrir að láta (hóp?) nauðga sér. Annars man ég þetta ekki gjörla, en alþjóðlegur þrýstingur kom á málið og stúlkan náðuð...ef mig brestur ekki minni (sem þó kæmi ekki á óvart).

En ekki man ég eftir heldur að gerandinn / gerendurnir í málinu hafi verið teknir af lífi?


mbl.is Hálshöggvinn fyrir morð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftirlíkingum stolið í Danmörku

Skúbb. Eftirlíkingum Múhameðsteikninganna var í morgun stolið af skrifstofu Jótlandspóstsins.


mbl.is Eftirlíkingum stolið í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný landategund komin á markaðinn

Nýi landinn, sem ber hið sunnlenska nafn Ráð, hefur verið bruggaður í nokkrum afdönkuðum fjárhúsum í sveitum Árnes- og Rangárvallasýslna.

Greinilegt að bændur og búalið i þessum sýslum hefur sameiginlega staðið að þessu Ráðabruggi.


mbl.is Sektaður fyrir landabrugg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vopnahlé?

Æ, vonandi verður þetta til þess að fólkið þarna suðurfrá hætti að drepa hvert annað. En mig grunar þó að þetta verði aðeins logn á undan nýjum stormi...ef þessi frétt er á rökum reist.

mbl.is Segir Ísraela hafa samið við Hamas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband