Hvílíkur unaður!

Smje. Tefldi við morkna Svíann, Emil Hermannsson, með svörtu í kvöld. Ég jafnaði tafli easily eftir byrjunina, en var að láta hann pirra mig með smá brotum á skákreglunum og ákvað að flækja þetta aðeins. En hann sá lengra og um tíma lá við að ég myndi gefa þetta bara, en ákvað að láta hann hafa fyrir þessu. Ég átti nokkrar sekúndur eftir á klukkunni þegar ég hóf að sprikla. Ég náði tímamörkunum, en hann átti hálftíma eftir. Svo fór að hann ætlaði að tefla "menntað", í stað þess að vinna þetta bara beint og málið dautt. Ég hafði að vísu sprikl og þráskákarsénsa, sem hann hefur e.t.v. ofmetið.

En síðan fór svo, að hann tefldi þetta ónákvæmt og missti svo af síðasta jafnteflissénsinum...bara sénsi, og þá var ekki aftur snúið. Hann var kominn í mátnet og gafst upp þegar hann var óverjandi mát í einum.

Ljúft. Ótrúlega ljúft.

1. Maðurinn er Svíi.
2. Maðurinn beitti rangindum
3. Maðurinn er ótrúlega morkinn
4. Ég var með koltapað!

´Loksins næ ég að grísa. Ég er yfirleitt hinumegin borðsins; leik af mér vænlegri stöðu eða unni. Þetta átti ég svo sannarlega inni. Og gott að grísinn skyldi einmitt koma gegn morkna Svíanum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

EeeeeeeeeeeeeemiiiiiiiiL !!!

Gunnar Th. Gunnarsson, 11.3.2008 kl. 22:33

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hvernig rangindum beitti hann?

Gunnar Th. Gunnarsson, 11.3.2008 kl. 22:35

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

ég hef alltaf sagt það.. þú ert laaaaangbeeeestur.....

áFram KR.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 11.3.2008 kl. 22:40

4 Smámynd: Snorri Bergz

Braut reglur FIDE amk þrisvar. Og viljandi....svona gera menn ekki þrisvar ef þetta er bara óvart!

Snorri Bergz, 11.3.2008 kl. 22:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband