Dónaskapur og frekja er þetta!?

Hvernig dettur konum í hug að þær eigi rétt á að keyra bíl í Saudi-Arabíu?! Vita þær ekki að þeirra hlutverk er að vera eldabuska og útungunarvél?

Og merkilegt að femínistaflokkur Íslands skuli ekki mótmæla kvennakúgun Saudanna?

En þessi hugdjarfa kona á bæði stuðning og samúð frá mér.
mbl.is Konur í Sádí-arabíu vilja fá að aka bílum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halla Rut

Heyrði þetta einmitt í dag. Að þetta skuli gerast árið 2008 er með ólíkindum. Kannski er þetta byrjunin á einhverju meiru, vonandi. Eitt sinn höfðu konur lítinn rétt hér á landi og svo breyttu þær því og eru enn að.

Halla Rut , 11.3.2008 kl. 23:18

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sammála þessu. Og aftur til hamingju með skákina. Þó Svíinn væri yfir í mannskap náði hann ekki að láta hókana vinna saman. Það var gaman að fylgjast með þessu og ég býst við að þú hækkir eitthvað.

Sigurður Þórðarson, 11.3.2008 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband