Ömurlega svekkjandi

Fátt er eins morkið og að tapa fyrir Dönum. Þá er sama í hverju er. Það er aðeins eitt verra, í þessu samhengi, og það er að tapa fyrir Svíum.

En vonandi gerist það ekki.


Hannes Hlífar lék illilega af sér gegn Peter Heine Nielsen, sem hefur meira eða minna verið sterkasti skákmaður Norðurlanda síðustu árin. Hann hefur nú unnið flesta þá Íslendinga, sem hann hefur teflt við í hraðskák, nema mig (!!) og kannski einhverja nokkra aðra Wink

Héðinn var með e.t.v. aðeins betra, en varla nóg til að knýja fram sigur gegn Súna. Schandorff tefldi stíft til jafnteflis með hvítu gegn Danielsen, okkar manni. Scandorff er í TR en Henrik í Haukum!

Þrölli fékk lítið úr byrjuninni, en er fjölkunnugur eins og menn vita. Hann náði skiptamun af Baunanum, en staðan var þannig, að að var erfitt að vinna, þó vissulega hefði e.t.v mátt reyna aðeins lengur. Karsten gamli hefði fljótlega orðið þreyttur, en of seint núna.

En þetta er semsagt frekar svekkjandi. En svona er skákin. Það gengur ekki alltaf allt upp. Strákarnir hafa þó staðið sig heilt yfir litið nokkuð vel og mega vel við una.
mbl.is Tap fyrir Dönum á EM í skák
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Burger King græðir!

Og kemur mér ekki á óvart. Nýlega keypti ég mér Burger King matseðil; meðalstórann borgara, franskar og diet Coke, á Antalya flugvelli í Tyrklandi. Þar þurfti ég að greiða 17,85 evrur fyrir matinn.

Og svo segja menn, að maturinn sé dýr á Íslandi. EN með þetta okur í huga, kemur mér ekki á óvart þótt Burger King græði (jafnvel þótt flugvallaryfirvöld í Antalya rukki vísast hressilega fyrir aðstöðuna!)
mbl.is Hagnaður Burger King eykst um 23%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt

Ég get aldrei samþykkt svona. En skv. amk kristinni trú er lífið heilagt. Það ætti að vega þyngra en einhver "sérskilningur" Vottanna á bloðdæminu. Lífið er í blóðinu, skv. 3. Mósebók, en ef lífið fjarar út við að þiggja ekki blóð, er eitthvað skrítið við þennan sérskilning Vottanna.


Og þar að auki er sérskilningur Votta mjög útbreiddur, enda hafa þeir öðruvísi Biblíuþýðingu en aðrir, þ.e. í þýðingu, sem þeir sjálfur hafa látið gera eða gerðu, er önnur merking á ýmsum stöðum og samræmist sú merking betur þeim sérskilningi, sem Vottarnir hafa á ýmsum málum.


En þannig er t.d. auðveldara að samsemja hæpnar guðfræðikenningar. Í stað þess að breyta kenningum, sem eru hæpnar eða e.t.v. rangar, er auðveldara að breyta bara Biblíunni, eins og Vottarnir hafa (að mér skilst) gert...og nú síðast íslenska þjóðkirkjan, að því að sumir segja a.m.k.


En þetta blóðmál Vottanna er sorglegt.  Ég veit ekki hverra vottar þeir eru, en ég get ómögulega séð að þar eigi í hlut Jehovah Biblíunnar, amk ekki sá sem boðaður var í orginal útgáfunum, eða þeim mest orginal sem við höfum.

Sigurbjörn biskup sagði í den, í riti sínu um Vottana, að þeir gætu ekki talist til kristinna kirkjudeilda. Ég get ekki annað en tekið undir með frænda. Hann veit sínu viti.


mbl.is Þáði ekki blóð og lést af barnsförum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður Hellismafían næst

Í skákinni þekkja orðið flestir hugtakið "Hellismafían", en hún ku víst ráða eiginlega öllu í íslenskum skákheim, nema Taflfélagi Reykjavíkur, en þar segja illar tungur að einn stofnenda Hellis ráði öllu, og sé í raun Trójuhestur Hellismafíunnar, sem nái þannig völdum í TR innanfrá.


Þetta er a.m.k umræðan á Skákhorninu.


En nú er spurningin hvort skáklögreglan nái að knésetja Hellismafíuna, en 5/7 stjórnarmönnum í SÍ eru í "mafíunni", ritstjóri www.skak.is og stjórnendur og eigendur umræðuhorns skákmanna. Og einn stofnandi Hellis er vefstjóri á síðu Taflfélagsins og er sagður, ranglega að vísu, stjórna núorðið nær öllu í Taflfélaginu.


En munurinn á ítölsku mafíunni og Hellismafíunni er m.a. sá, að hin síðarnefnda er ekki til, enda aðeins hugarburður einstakra manna, sem hafa gaman af því að hnýta í Neanderdalsmennina.
mbl.is Hátt settir meðlimir ítölsku mafíunnar handsamaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðræði og Miðausturlönd

Ég skil ekki þessa þráhyggju Kana og annarra að vilja troða vesturlandalýðræði upp á múslima sunnan og austan Tyrklands. Þetta passar ekki og mun aldrei ganga til lengdar. Þar, sem reynt hefur verið að koma á lýðræði, hefur það jafnan mistekist. Einna helst að Jórdanía sé komin "á veg til lýðræðis", en jafnvel þar er pottur brotinn, en þó aðeins lítillega. Jafnvel í Egyptalandi er í raun og veru einræði, þó þar sé málamyndalýðræði á yfirborðinu.


Lýðræði passar einfaldlega ekki við samfélagshætti og trúarbrögð múslima. Og annað hvort verða menn að afleggja lýðræðið eða íslam. Ég held að flestir amk velji frekar að losna við lýðræðið.


mbl.is Bandaríkjamenn hvetja Musharraf til að snúa aftur til lýðræðis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húsaleiga

Tek undir með Hlíf. Það er hreint með ólíkindum, að lítil og ljót íbúð fari á 100.000 kall á mánuði í leigu. Ég fatta þetta ekki.

En þá er á hinn bóginn miklu einfaldara að kaupa, ef menn geta. Þannig verður minni greiðsla á mánuði, amk að jafnaði.

En þá verður 20 milljóna króna íbúð að 50 milljóna króna íbúð þegar upp er staðið.
mbl.is Lágmarkslaun duga ekki fyrir húsaleigu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tap með minnsta mun sterkum Ungverjum

Jæja, þetta gat verið verra. En gat líka verið betra.


Hannes og Henrik gerðu easy jafntefli með hvítu gegn sterkum andstæðingum, og Héðinn hélt jöfnu, eftir að Ungverjinn sá ekki magnaðan leik, sem hefði tryggt honum sigur með det samme. En svona er skákin, menn sjá ekki alltaf bestu leikina. Stefán tapaði hins vegar, hefur vísast sofnað á verðunum við hina leiðinlegu taflmennsku Ungverjans. En svona er skákin líka. Það er ekki alltaf hægt að tefla skemmtilegar skákir.

En ágætis árangur hjá strákunum það sem af er og engin ástæða til að ætla annað, en að "strákarnir okkar" haldi áfram að berja frá sér.

Áfram Íslandhannes2
mbl.is EM í skák: Þrjú jafntefli og eitt tap hjá Íslendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Starfsmaður óskast

á White Hart Lane. Viðkomandi þarf að kunna á sláttuvél og geta slegið grasið á ókristilegum tímum sólarhrings.


Hollendingar sérstaklega velkomnir.


Jújú, aldrei að vita nema Martin Jol snúi aftur til Tottenham.


mbl.is Jol: Ég gæti komið aftur til Tottenham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leitað að mörgum mönnum í nótt

Ja, mig grunar að hundruðir, ef ekki þúsundir, kvenna (og karla!) hafi verið að leita að manni í nótt.Og einnig er ljóst að margir menn (og konur) voru að leita að konum í nótt.


En svona er aðfaranótt sunnudags á Íslandi 2007.


mbl.is Leitað að manni í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Særindi Fergusons

Mér fannst nú dómarinn frekar hliðhollur Man Utd. Hann sleppti t.d. amk einni vítaspyrnu og hefði getað dæmt aðra, í bæði skiptin á Man utd, þegar Hargreaves fékk boltann í höndina inní vítateig.


Og ég sá ekki betur en að mörg vafaatriði hafi fallið Man Utd í skaut, en önnur féllu vissulega Arsenal í skaut. En amk græddi Arsenal ekki á dómaranum, það er ég sannfærður um.


Ómaklegt hjá Ferguson. Liðið hans var einfaldlega verra í gær, en náði næstum því að stela sigrinum. Það hefði hann átt að vera ánægður með, en auðvitað skilur maður að hann sé spældur eftir að hafa fengið á sig jöfnunarmarkið í uppbótartíma.
mbl.is Ferguson: Dómarinn var hlutdrægur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband