Föstudagur, 12. október 2007
Að horfast í augu við fortíðina
Um það leyti voru hér flakkarar á ferð, menn sem kölluðu sig Armena og sögðust vera að safna fyrir ofsótta kirkju sína.
Um svipað leyti hófust fyrir alvöru ofsóknir Tyrkja gegn Armenum og í þeirri hrinu féll óheyrilegur fjöldi fólks, flestir saklausir borgarar, sem Tyrkir tóku af lífi án dóms og laga. Hér átti sér stað þjóðarmorð og finnst mér eðlilegast hjá Tyrkjum, að játa á sig glæpinn, eins og Þjóðverjar gerðu í stríðslok 1945 og áfram, heldur en að berjast áfram fyrir því, að halda augunum lokuðum.
Ég var að koma frá Tyrklandi í gær og átti ég þar góða tíma. Ég þekki sögu Tyrkja nokkuð og ber virðingu fyrir þessari þjóð, sem að mörgu leyti er mjög merkileg.
En þetta atriði get ég ekki skilið. Þetta gerðist fyrir 100 árum. Kominn tími til að viðurkenna söguna eins og hún gerðist samkvæmt traustustu heimildum.
![]() |
Tyrkir kalla heim sendiherra sinn í Bandaríkjunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 11. október 2007
Hissa á Framsóknarflokknum
![]() |
Vilhjálmur: Ákvörðun Björns Inga um samstarfsslit fyrirvaralaus |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 10. október 2007
Síðasti dagurinn í Kemer: Evrópumótinu lokið
Jæja, þá er þetta búið. Evrópumóti taflfélaga, a.m.k. Meistaradeild Evrópu í skák, er lokið þetta árið. Hér voru saman komnir flestir af sterkustu skákmönnum heims,bæði meðal karla og kvenna. Hreint alveg með ólíkindum, að allir þessir miklu meistarar skuli safnast svo saman á hverju ári.
Mótið núna var óvenju sterkt, a.m.k. sterkara en síðustu árin. Hópurinn í miðjunni var líka þéttari en áður, þ.e. það voru færri léleg lið en oft áður.
Í fyrra lenti T.R. mjög óvænt í 5.-12. sæti, þrátt fyrir að hafa þá tiltölulega veikt lið. Það helgaðist mikið af því, að í þremur síðustu umferðunum fengum við lið, sem voru svipuð að styrkleika og við, eða ekki það mikið sterkari, að við gætum staðið í þeim og, eins og reyndin var, að knýja fram sigur. En að þessu sinni fengum við nær aðeins overkill lið, þau sem skipuð voru sterkum stórmeisturum á öllum borðum, eða frekar slök meðallið. Það var einna helst Svíaliðið sem var nálægt okkur í styrkleika. Og þar féll flest þeirra megin, svo þeir unnu 3,5 2,5 og urðu eftir Norðurlandaliða með 9 stig. Við fengum hins vegar fleiri vinninga, ef ég man rétt, en bara 8 stig. Samkvæmt vinningum vorum við mjög ofarlega, en skv. röðun mótins lentum við í 18. sæti. Hellir lenti í 35. sæti eftir frábæran endasprett. Þeirra hlutskipti varð að tefla í kjallaranum nær allt mótið og lyftu sér upp með góðum sigrum í 2. síðustu umferðunum, fyrst gegn hlutfallslega sterkri sveit Finna en síðan afar slöku svissnesku liði.
Nánar um úrslitin má lesa á www.skak.is
En jæja. Hellismenn fóru með bussinum kl. 2 í morgun. Við Húnóvitz, liðsstjóri Neandersdalsmanna, vorum hvorugir á liðsstjórafundinum í upphafi móts, þar eð við komum um miðja nótt og höfðum því ekki allar nauðsynlegar upplýsingar, t.d. um að panta far á flugvöllinn í tíma. Liðsstjóri T.R. var þó aðeins sneggri að átta sig að vísu fyrir tilviljun og náði fari á góðum tíma, en Húnninn fékk ekki far fyrir liðið kl. 4 að morgni, eins og best hefði verið. Sú rúta var uppbókuð í morgunflugin, en flug þeirra til London fór núna kl. 6.30. Þeir koma heim í kvöld. Við T.R. eigum flug til Frankfurt kl. 15.15 í dag og tökum hádegisbussinn. Við náum semsagt tíma í sólinni fyrir ferð og verður það eitt af mínum síðustu liðsstjóraverkum að vekja liðið í morgunmat og smá strandferð, en enginn þeirra fór á ströndina á meðan á móti stóð sumir kíktu í laugina stöku sinnum.
Annars var lánið misskipt. Ég kom í gær í fyrsta skipti í herbergi þeirra Löngumýrarbræðra, en það var c.a. helmingi minna en mitt, og loftræstingin í ólagi. Þar var semsagt nær ólíft. Furðulegt, en hótelstarfsmennirnir hafa greinilega tekið eftir greinilegum yfirburðum okkar TRinga skákaðals Íslendinga -- yfir Hellisbúana og látið okkur hafa bestu herbergin. Mjög eðlilegt, en vísast sárt fyrir Hellismenn. Sig. Daði og Kristján fengu svipað herbergi og bræðurnir, en gömlu kallarnir, Trölli og Stóritími, fengu herbergi, sem var næstum því eins flott og okkar TR-inga.
Jæja, framundan er Íslandsmót skákfélaga næstu helgi, þar sem TR og Hellir, og hugsanlega eitthvað annað lið líka, munu berjast um dolluna eins og oft áður. Merkilegt er samt, í þessu ljósi, að hér í Kemer voru í raun ekki Hellismenn og TR-ingar, heldur bara Íslendingar. Á þessum mótum hefur sú venja skapast, að hér eru allir fyrir einn og einn fyrir alla. Það skiptir engu í hvaða félagi menn tilheyra. Enda á maður ekki færri vini í Helli en TR og allir hafa þekkst lengi. Hér var því góð samkennd og fínn félagsskapur, enda er félagsskapurinn eitt af því sem gerir svona ferðir skemmtilegar, þó ekki sé mikill tími til að sósíalæsa.
Þetta hefur gengið áfallalaust fyrir sig, enda erum við allir orðnir mjög vanir að ferðast. Til að mynda er þetta í 5. skiptið, síðan á sama tíma í fyrra, að ég fer á skákmót erlendis: EM í Austurríki um miðjan október 2006, mótið hörmulega í Serbíu í nóvember, Prag í janúar, Lúxemborg í júlí og svo Tyrkland núna. En nú er maður kominn á leiðarenda, að minnsta kosti í bili. Það er ekki hægt að leggja þetta lengur á gamlan og þreyttan búk. Alvöru skákmót eru erfið og það tekur á bæði líkama og sál að sitja nær alveg fastir við borð í 5 klst og horfa á skákborð, og upphugsa leikjaraðir. Ég las einhvers staðar að orkueyðsla skákmanns sé með því mesta sem gerist í heimi íþrótta, enda er maður eins og barinn hundur eftir hverja skák, sem tefld er í botn. Og sem dæmi, þá fuku af manni yfir 3 kíló á mótinu í Lúx, jafnvel þó maður hefði amk flesta daga lifað á T-bone steikum og 12 tommu pizzum, og lítið hreyft sig nema að labba út í bíl.
Jæja, klukkan er nú 8.15 að staðartíma, 5.15 heima á Íslandi. Ég sit hér úti á verönd og horfi út á haf var að klára omelettuna og kaffið. Ég sá í morgunsjónvarpi Tyrkjanna að spáð er 30 stiga hita í dag í Antalyu. Planið er semsagt: morgunmatur (hjá óbreyttum liðsmönnum TR) kl. 9, afslöppun við stóru laugina og strandferð kl. 9.30, lobbí og checkout 11.30. Við verðum síðan eina nótt í Frankfurt og komum heim á fimmtudaginn.
Í heildina hefur þessi ferð verið mjög skemmtileg. Flestir eru þreyttir, en ná vonandi að láta þreytuna líða úr sér fram að hádegi. Árangurinn var ágætur hjá báðum liðum og bæði lið voru aðeins yfir pari. Menn geta því vel við unað. Stefán Kristjánsson fékk flesta vinninga TR-inga, eða 5/7, en Björn Þorfinnsson fékk flesta punkta Hellisbúa, 4,5/7 ef ég man rétt.
Sjálfur er ég sáttur með minn hlut. Liðsstjóradæmið, sem ég er nú að takast á hendur í fyrsta og vonandi síðasta skipti, reyndi svoldið á, en það voru endalaus mál sem þurfti að leysa og var maður því miður ekki í fríi hérna, eins og ég hafði vonað. Og innkoman í lokin, þar sem ég leysti Arnar og Jón Viktor af í liðinu, gekk framar vonum og sný ég heim með solid 18 stig í plús. Og ég tefldi tvær fallegar sigurskákir, þar sem ég fann jafnan besta leikinn í hverri stöðu. Maður snýr því heim sáttur og vonandi með smá brúnku á kroppinum.
Og myndir frá ferðinni munu birtast hér síðar, en ég fann ekki millisnúruna mína, úr myndavél í tölvu, en því máli verður reddað á fimmtudagskvöld eða föstudag.
Jæja, þá er að vekja strákana.
Áfram Ísland.
Skák | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 9. október 2007
Tjallarnir væóleitaðir
Jæja, Hellismenn tefldi í dag, 7. og síðustu umferð á EM í skák við afburða lélegt lið frá Sviss og voru með 4-1 þegar ég frétti síðast. Skjaldbakan var þá að reyna að svíða á 5. borði. Jafnteflin komu á 3. borði hjá Ostinum og 4. borði hjá Stóratíma.
Sama staða hjá T.R. 4-1 og Uglan að reyna að svíða á 5. borði. Jafnteflin komu á 3. borði hjá Þrölla og 4. borði hjá Punkinu.
Vér tefldum annað glanspartí. Ég hef aldrei áður teflt sóknarskák í Caro-kann með svörtu. En þetta var frekar auðvelt, en andstæðingurinn minn er nemandi Igors Natafs, 2. borðsmanns TR, og hefur hækkað um yfir 100 stig á tæpu ári og náð 2 AM normum. En í liðsstjórahöndum var hann eins og barn. Ég er semsagt mjög ánægður með taflmennskuna í dag, eins og í gær. Ég hrifsaði frumkvæðið til mín með peðsfórn, hirti síðan peðið aftur með sterku miðborði í kaupbæti og leyfði honum að sprikla á drottningarvæng, meðan ég ruddist fram á miðborðinu. Óvenjulegt fyrir Caro-kann, en gaman þegar þetta heppnast.
Og solid 18 stig í plús í 2 skákum. Þetta gerist varla betra.
Hitinn í dag var sá mesti síðan við komum hingað og voru menn að stikna í sólinni. Ég skrapp í smá sundlaugarferð um 9 leytið, en þurfti síðan að sinna liðsstjóraskyldum mínum; senda inn liðsskipan, panta far á flugvöllinn og fleira. TÖluvert vesen, merkilegt nokk. Ég kom því óundirbúinn í skákina, því Tjallarnir breyttu um lið frá síðustu umferð. Ég hafði því stúderað rangan aðila um morguninn. En feginn er ég. Andstæðingurinn var sterkari, en tefldi ekki jafn morkið.
Rúnar Berg tefldi flotta sóknarskák, en annað sá ég ekki svo gjörla.
Áfram Ísland.
Skák | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 9. október 2007
Framarar í Tyrklandi
Jæja, það eru nú nokkrir Framarar þegar í Tyrklandi. Svo skemmtilega vill til, að við liðsstjórar íslensku liðanna á EM í skák höfum báðir afburða vit á fótbolta, þ.e. við höldum semsagt með FRAM og Arsenal.
Og einhverjir fleiri Framarar eru hérna í íslensku liðunum.
Áfram Ísland. Áfram FRAM
![]() |
Framarar í Tyrklandsferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 9. október 2007
Þriðjudagur í Kemer
Jú, er ekki örugglega þriðjudagur? Maður er hættur að telja dagana, því þeir eru allir eins hér í Kemer.
Jæja, ég setti í gær skákina gegn Ernst inn á skákhornið, með skýringum: http://skak.hornid.com
Bara til að koma því inn áður en ég gleymdi því.
En jæja, síðasta umferð Meistaradeildar Evrópu mun eiga sér stað í dag, kl. 12 að íslenskum tíma.Við töpuðum fyrir Svíunum í gær fyrir einskæran aulaskap. ALgjör óþarfi, þó þeir væru reyndar stighærri á öllum borðum, þá höfðu þeir ekkert sérstakt fram að færa.
En Hellismenn stóðu sig loksins vel og tóku Finnana, sem fyrirfram voru taldir sterkari.
Við fáum ENglendinga í dag, Hilsmark Kingfisher. Þar teflir m.a. gömul vinkona mín, og síðan Lawrence Cooper sem er captain, en hann er grjótharður Arsenal maður og ræðum við jafnan mikið um fótbolta á þessum Evrópumótum. Við eigum að geta unnið þetta lið auðveldlega.
Hellismenn fá frekar slakt lið í dag og eiga að vinna auðveldlega.
Hér er enn steikjandi hiti. Menn fóru snemma að sofa í gær og verður farið á ströndina, en að mér undanskildum eru hinir að fara þangað í fyrsta skipti. Robbi gekk þar reyndar um, en nú á að synda út að bauju.
Jæja, við höldum svo heim á morgun. Hellismenn fara beint heim, en við stoppum eina nótt í Frankfurt, Egilsstöðum Mið-Evrópu. Og síðan tekur við Íslandsmót skákfélaga og í fyrstu umferð fáum við TRingar sterka sveit Fjölnis.
Áfram TR.
Áfram Ísland.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 9. október 2007
Óþverrinn smitar
Æ, að menn nenni að lesa þetta sorpblað er ofar mínum skilningi.
![]() |
Dorrit segir frétt DV móðgandi og særandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 8. október 2007
Væóleisjón
Jæja, ég kom inn á í dag á EM taflfélaga fyrir Jón Viktor, sem var eikkað sloj. Og ég fékk í fyrsta lagi Svia, og í öðru lagi stórmeistara og í þriðja lagi teoríuflóðhest sem kann byrjanir sínar út og inn. Svo ég veðjaði á eina byrjun af fimm sem hann teflir, kíkti aðeins á hana og ákvað að ráðast bara á hann. Og eg hitti á rétta byrjun. Rauzer afbriðið í Sikileyjarvörn.
Fyrst fórnaði ég peði, en vissi að hann mátti ekki taka peðsfórnina, en mundi bara ekki af hverju. Svo ég fórnaði bara manni. Staðan var unnin eftir þennan hörkuleik, sem ku vera NÝJUNG. Hann var semsagt dauður eftir 10 mín, en það þurfti að klára. Ég réðst á hann, fórnaði öðrum manni, hann mátti ekki taka, fórnaði þá enn öðrum og síðan öðrum og síðan hrók, sumt tók hann en annað ekki. Verst var að missa af sjö leikja fórnarþema, sem hefði endað með þvinguðu máti. En þetta var solid slátrun þrátt fyrir það.
Hannes tapaði á 1. borði eftir hrikalega afleik, en Nataf samdi á 2. borði.
Bragi vann loksins á 1. borði fyrir Helli.
over and out.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 8. október 2007
Kemer: 6. dagur á EM
Jæja, nýr og fagur dagur runninn upp í Kemer, Antalyu. Vér, liðsstjóri Evrópuliðs Taflfélags Reykjavíkur, sitjum hér úti á veröndinni á veitingahúsinu, narta í morgunmatinn og drekk ónýtt kaffi með, enda of þreyttur til að nenna að standa upp og fá mér nýtt.
Ég vaknaði ubermorkinn í morgun, eitthvað rétt fyrir sex. Ég hafði auðvitað gleymt að slökkva á loftkælingunni í gærkvöldi, enda sofnaði ég óvart en ég var að horfa á fótboltaleik og lá í mestu makindum undir lakinu og síðan vissi ég ekki fyrr en ég vaknaði morkinn og kaldur rétt um sexleytið.
En ég slökkvi á skaðvaldinum, sótti sæng upp í skáp, stillti GSM-inn að hringja kl. 6.50 og lagði mig aftur. Solid, eins og Ágúst Sindri lögmaður hefði sagt í þessari aðstöðu.
Dagurinn í gær var furðulegur. Ég þurfti að sinna ýmsum morgunskyldum liðsstjóra, senda pistil heim og fleira, svo ég komst ekki í laugina fyrr en hálf ellefu. Þá voru mínir menn mættir, að undanskildum Natafrós, sem sefur gjarnan til hádegis eða lengur, og Róbótnum (Hannesi), sem er illa við hita og sól. Þar voru líka fjórir Hellismenn, nema hvað Húnninn (Bjössi) og (Ata)kisi lágu morknir á meltunni eins og stundum áður, og fóru síða að lesa bókmenntir þegar þeir vöknuðu. Muppetz. Menn stoppuðu þó ekki lengi í sólinni og fóru heim á herbergi að stúdera. Ég varð þó að skreppa í sjóinn aðeins, en fór síðan heim skömmu síðar um leið og Punkið.
En að skákunum.
Bæði lið fengu yfirburðastöður nánast á öllum borðum í gær. Við T.R.ingar létum kné og skanka fylgja kviði og tókum þetta 5,5, -0,5. Aðeins Uglan missti niður hálfan, en efnilegur mótherji hans kom sér upp óvinnandi vígi úr Sveshnikov-varíantnum og lék bara fram og aftur, og það var ekkert sem Ugli gat gert við því. Hinir unnu flestir frekar auðveldlega, en Hannes og Addi urðu þó að láta sér nægja að fara peði yfir í endatafl og hefja svíðing dauðans á Tyrkina.
Hellismönnum var hins vegar illt í hnjánum og fóru svoldið illa að ráði sínu. Á efsta borði fékk Bragi Atakisi á sig vafasama mannsfórn, sem séra Torfritz Grumpy hefði gefið tvö spurningamerki, en það reyndist erfitt að sitja stöðugt undir þrýstingi og að lokum gaf sig staðan hjá Braga og tap var raunin. Stóri bróðir, Húnn Þorfinnsson, greifinn af Monte Kemer, lét öllum illum látum að venju og fór svoldið illa með 2. Borðsmanninn. Staðan var nú 1-1. En Hellismenn voru með unnið á öllum hinum borðunum. Næsta skák til að klárast var skák Sig. Daða (Ostsins), en hann hafði verð solid 2 peðum yfir, en skyndilega gerðist eitthvað og þegar ég kom aftur að borðinu var hann kominn með illa verjanlega stöðu og í tímahraki í ofanálag. Á endanum þurfti hann að lúta í gras, eftir að hafa orðið fyrir hnjaski. 2-1 fyrir Litháana, sem við TRingar unnum reyndar 5-1 í fyrstu umferð.
En Hellismenn voru með unnið á hinum þremur, en skyndilega lék Rúnar Berg, sem var með þeirra mest unnu stöðu, gróflega af sér og þurfti að lúta í gras einnig. Og síðan náði andstæðingur Robba að trikka sig út úr tapstöðunni og jafntefli var niðurstaðan. Þá var Stjáni eftir og var hann að reyna að svíða frameftir kvöldi, en mér skilst að skákin hafi farið jafntefli. Semsagt 2-4 hjá Helli. Þetta var algjör hörmung að sjá, eins og Hellisbúarnir tefldu vel framan af.
Hellismenn og tríeykið Þröstur Hlífar Kristánsson fóru niður í Kemer-bæ í gærkvöld og fengu sér að borða á besta veitingastað bæjarins, en við minni spámennirnir urðum eftir. Bæði Barbi (Arnar) og Ugli (Jón Viktor) kenndi sér meins, og sjálfur var ég hálf slappur. Þeir hafa nú reyndar braggast báðir, síðast þegar ég vissi og mun ég ákveða það, á næsta hálftíma, hvort ég gefi öðrum þeirra frí í dag, eða biðji þá að harka af sér. Málið er, að við fáum morknu Svíana í dag og við getum ekki látið það spyrjast um okkur, að hafa ekki náð að taka Svíana. Að vísu eru þeir stigahærri en við á öllum borðum, nema hvað Nataf er á svipuðu róli og Agrest á 2. Borði, og mun stigahærri á fjórum neðstu. Af þessum sex skákmönnum hefur aðeins einn þeirra, Pontus Carlsson, sést brosa í ferðinni.Hinir líta allir út eins og þeir séu að horfa á Liverpool spila fótbolta. Að vísu eru bara tveir norrænir Svíar þarna, en 2 Rússar, einn Rússa-Svíi og síðan Pontus, sem er mjög skemmtilegur náungi, enda aðfluttir, vísast ættleiddur frá einhverju Afríkuríki. Pontus hefur búið í Svíþjóð held ég nær allt sitt líf og hefur ekki enn orðið fyrir skaða, amk ekki sjáanlegum. Það er góðs viti. Þá er semsagt hægt að búa í Svíþjóð án þess að verða morkinn að staðaldri og í hugsunum.
Aðrir eru heilir, nema hvað KR-bölvunin virðist hafa elt Punkið (Stefán) hingað út. Eitt það besta við þennan stað er, í samanburði við t.d. svipaða staði á Grikklandi, að hér eru nánast engar flugir og aðeins einstaka sakleysisleg skordýr. Ég hef bara séð nokkrar húsflugur allra ferðina, en engu að síður tókst Stefáni að láta einu moskítófluguna á svæðinu bíta sig og það margsinnis. Greinilegt að þessi fluga, sem hér býr, er með forgangsatriðin á hreinu, en hún virðist aðeins bíta KRinga. Að vísu mjög skiljanlegt, en bagalegt fyrir Stebba.
Jæja, við liðsstjórarnir tveir, og Þrölli, erum ánægðir með stigin þrjú, sem fengust gegn Sunderland í gær. En óþarfi að hleypa þessum muppetum svona inn í leikinn.
En að lokum: það verður Norðurlandaslagur í dag. T.R. fær Sollentuna frá Svíþjóð, en Hellismenn fá Finnana, en þá hefði Ble kallað ubermuppetz á háu stigi, en þeir ganga hér um öllum stundum í svörtum einkennisbúning skákliðs síns. Ok, það er 35 stiga hiti hér flesta daga. Ég ætla rétt að vona að þeir hafi aukabúninga með sér.
Jæja, gott í bili. Robbi er væntanlegur og síðan verður synt út að bauju, eins og það er kallað. Ég sem hélt að það væru eintómir kjúklingar hérna.
Áfram Ísland
Skák | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 7. október 2007
How are you Þröstur? spyr heimsmeistarinn
Í gær var ég að fara úr skákhöllinni út í "netið", þegar ég þurfti að snarstansa í dyrunum til að forða árekstri við sjálfan heimsmeistarann, Vishy Anand. Hann er semsagt mættur og tefldi í dag.
Nú, þegar hann gekk í salinn í dag var klappað fyrir honum, nýkrýndum heimsmeistara. Hann settist síðan, fór úr jakkanum, stóð síðan upp og gekk fram.
Á sama tíma var Þröstur Þórhallsson, 3. borðsmaður T.R., að ganga um, þegar skyndilega var hönd drepið rólega á öxl hans, þ.e. þungt högg á öxlina eins og Sævar myndi orða það. Þar var sjálfur Anand kominn: "How are you Þröstur" var svarið. Þrölla dauðbrá, bæði við puttann á öxlina og síðan þetta. Æjá, þeir eru gamlir vinir, báðir 1969, eins og við Ivanchuk, og þekktust frá unglingamótunum í den.
En staðan. Hjá Helli: Bragi tapaði á 1. borði, eftir að ná ekki að finna vörn við fórnum mótherjans. Húnninn vann auðveldlega á 2. borði, en Sig. Daði tapaði slysalega á 3. borði.
Ég spái Robba sigri á fjórða, Stjána á 5. og RB á 6. borði. Ergo: 4-2 eins og ég spáði fyrr í dag.
Hjá TR er staðan 3,5 - 0,5. Jón VIktor gerði jafntefli, en hann er með hálsbólgu kallinn og hefur beðið um frí á morgun. Þrölli, Stebbi og Nataf unnu allir auðveldlega. Arnar er peði yfir í endatafli, en hann gengur heldur ekki heill til skógar og hefur jafnframt beðið um frí á morgun. Og Hannes er peði yfir í Drottningar-hróks tafli, þ.e. báðir aðilar hafa drottningu hrók og nokkur peð, Hannes fimm en Atakisi 4.
5,5, stefnir allt í. 4-2 hjá Helli.
En við förum ábyggilega niður í logum á morgun, úr því ég kem inn á. Mun tékka stöðuna á strákunum í kvöld eða snemma í fyrramálið til að komast að, hvor er í skárra ástandi. En T.R. mun senda vængbrotið lið til leiks á morgun.
Áfram Ísland
![]() |
Tilkynnt um eld í einbýlishúsi á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)