Ríkarður hjá Arsenal við æfingar

3Jæja, hvað hafa margir Íslendingar keppt með Arsenal?

 

Albert Guðmundsson
Sigurður Jónsson
Valur Fannar Gíslason
Stefán Gíslason
Ólafur Ingi Skúlason


Og síðan hafa einhverjir, t.d. Kolbeinn Sigþórsson, æft með Arsenal.


Ég var að fletta gamalli Lesbók Mbl, 11. október 1959, þar sem segir frá:


"Ríkarður Jónsson, hinn kunni knattspyrnumaður, fer til Englands og verður hjá knattspyrnufél. Arsenal um 2 mánaða skeið".


Ég skal viðurkenna, að ég hafði ekki hugmynd um þetta.


Ætli lengi sé von á einum...enn?


Nú verður Siggi glaður

Enda er hann ekki kallaður Siggi stormur fyrir ekki neitt.


En voðalega er þessi íslenski vetur (eða síðhaust) þreytt.is



Rigning, rigning og aftur rigning. Og síðan bætist rokið við.


Fussum svei.


mbl.is Stormviðvörun við vesturströndina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvílíkur unaður

Svo menn snúi aftur til umræðunnar í gær; margir harðir Arsenal menn þurftu ekki að taka inn viagra í nótt, en hugsanlega hafa einhverjir þurft að létta vatni.


Jú, Spurs auðmýkt einu sinni enn.  Ef þetta boðar ekki skjálfta á Upptyppingum, þá veit ég ekki hvað.


En mikið rosalega held ég að Spurs aðdáendur hér á landi séu byrjaðir að útbúa felulitina. Feis it! Spurs getur ekkert, alveg sama þó félagið eyði og eyði í leikmenn.


 


mbl.is Newcastle lagði Tottenham, 3:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brann Bergen

Mér finnst ekki svo mjög langt síðan, að ónefndur náungi, sem ég þekkti eitthvað aðeins, hafði samband við mig. Hann er eða var víst framarlega í stuðninsmannaklúbbi Brann, Bergen. Hann hafði það erindi, að spyrja mig hvort þessi nýi leikmaður, Kristján Sigurðsson, væri jafn lélegur og hann virðist vera skv. fyrstu leikjunum að dæma.

Ég sagðist nú ekki þekkja hann neitt sérstaklega, en miðað við genasamsetningu ætti hann eftir að sanna sig og það ágætlega. Hann myndi semsagt koma til þegar á liði og reynast vel þegar á hólminn væri komið.


Náungi þessi trúði mér svona rétt mátulega en ákvað að gefa honum séns og biðja aðra að gera það líka.


Nú skilst mér að Kristján sé dáður og dýrkaður í Brann...


Já, mikið vatn getur runnið til sjávar á skömmum tíma, ef straumar eru harðir.
mbl.is Allt á hvolfi í Bergen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upptyppingar enn og aftur

Já, í dag eru það pissufréttir og standpínur sem ríða húsum og brynna músum hér á þessum slóðum.


Já, upptyppingarnir skjálfa og nötra hér á Íslandi, en í USA eru menn byrjaðir að gefa út viðvarandir gegn því að æsa upp þarlenda upptyppinga með lyfjum.



En hvernig stendur á því, að viagra geti valdið heyrnartapi? Einn gaur sem ég þekki var einn harðasti neytandi þessa varnings og hafði það engin áhrif á heyrnina.


En ég veit ekki hvort samhengi sé á milli, en viagrað hafði meiri áhrif á ýmsar venjur hans, en t.d. fór hann að fara á Bóhem í staðinn fyrir kaffihúsin.


Svipað eins og ef ég færi að leika mér með eldspýtur og bensín. Ég myndi frekar brenna mig en fá njálg í Ashotið.
mbl.is Greinilegri aðvaranir á stinningarlyf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með lögum skal land byggja

Jæja, löggan stendur sig vel í að handsama allskonar bófa og misyndismenn, hvort sem þeir pissa á almannafæri eða keyra ölvaðir.


En svo virðist sem fleiri hafi verið gómaðir við pisseríið en stútaðir undir stýri. Greinilegt hvar mesta ógnin við íslenskt samfélag liggur.


En spurning að hafa fleiri almenningssalerni í miðbænum?


mbl.is Tólf teknir fyrir ölvunarakstur og fimm undir áhrifum fíkniefna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið pissað um helgina?

Þá hlýtur mikið að hafa verið drukkið.


Annars eru þessar pissufréttir orðnar þreytandi.


mbl.is 34 teknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Héraðsbann á áfengi í Reykjavík

Ég var að fletta gömlum Mogga, nánar tiltekið frá 9. júlí 1955. Þar segir frá því, að bæjarstjórn Rvk hafi samþykkt að stofna til atkvæðagreiðslu með Reykvíkinga um, hvort setja eigi héraðsbann á áfengi í Rvk, þannig að áfengi væri bannað í Rvk.

Nú, en ríkisstjórnin gaf síðan út þá yfirlýsingu, að burtséð frá þessu banni gæti ÁTVR áfram selt áfengi í verslunum sínum í Rvk og taldi þá bæjarstjórn, að jafnvel þó héraðsbann yrði samþykkt, yrði það marklaust.

Merkilegt samt, að borgarstjórn/bæjarstjórn Rvk skuli hafa látið sér detta þetta í hug. 


Dópaðir bílstjórar

Maður er næstum farinn að heyra oftar um, að menn séu teknir fyrir að aka undir áhrifum eiturlyfja en áfengis. Ég hef ekki hugmynd um, hvort sé hættulegra, en grunar þó, að í báðum tilvikum sé það magnið sem hafi mest áhrif.


Og í báðum tilvikum er bílstjórinn óhæfur til að stjórna ökutæki.


En greinilega hafa stjórnvöld ekki náð neinu taki á eiturlyfjavandanum. Ég sé ekki betur en, að vandinn sé frekar að aukast en hitt. Spurning hvort ekki sé kominn tími til að endurskoða stefnuna og reyna að finna nýjar aðferðir til að stemma stigu við þessum vágesti, t.d. með því að herða löggjöfina, svo menn sitji lengur inni fyrir dópsölu eða smygl en nú er.


Og jafnvel að herða löggjöfina gagnvart þeim, sem teknir eru með dóp í fórum sínum, og þá er ég sérstaklega að hugsa um sterkari efnin.
mbl.is Hvítt ský barst frá bílnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sieg! Sieg!

Þjóðarflokkur í Sviss? Er það hægt, eins margar og "þjóðirnar" þar eru.


Mér er annars meinilla við þau stefnumál, sem flokkur þessi heldur á lofti. Fólk er fólk, hvernig sem það er á litinn eða hvar það fæddist. Þessi stefna sem Framsóknarflokkurinn fylgdi forðum, að flokka fólk eftir þjóðerni og/eða fæðingarstað og henda þeim óæskilegu úr landi, hefur nú borið sigurorð í Sviss, ef marka má útgönguspár.


Þetta eru slæmu fréttirnar.


Góðu fréttirnar eru þær, að sósíalistar munu víst uppskera afhroð sem er nákvæmlega það sem þeir eiga skilið.
mbl.is Spá afdráttarlausum sigri Þjóðarflokksins í Sviss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband