Útlistun á VG

12juli 102Rakst á þessa útlistun í commentakerfi Hans Haraldssonar. Datt í hug að lauma henni inn, en hún er eftir HH.

 

"VG eru hugmyndarfæðilega áttaviltir eftirlegusósíalistar sem vita ekki hvort þeir eru að koma eða fara. Það er búið að kippa fótunum undan þeirra gömlu kennissetningum og þeim hefur ekki tekið að púsla neinu nýju saman ennþá. Þess vegna sitja þeir fastir í einhverskonar ruglingslegri blöndu af þjóðlegri íhaldssemi gagnvart leifum hafta- og biðstofuhagkerfisins, náttúrurómantík og ungæðislegri, hálf-anarkískri "róttækni" sem sérstaklega mótar hugmyndir þeirra um utanríkismál. Útkoman er sú að kerfiströllið Steingrímur J., skýjaglópurinn Ögmundur og ólæsu "róttæklingarnir" af krúttkynslóðinni halda að þeir séu í sama flokki."

 

En síðan má ekki gleyma því, að VG er fyrst og fremst femínískur flokkur, en sú stefna virðist vera mest ráðandi á þeim bænum. En ágæt skilgreining að öðru leyti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband