Innbrotsþjófur með tannpínu

teethHann hefur vísast haft alvarlega tannpínu hinn 18 ára gutti, sem gerði sér lítið fyrir og braust inn á tannlæknastofu í nótt.

Margir Íslendingar eiga nógu erfitt með að ganga inn um dyr slíkra fyrirtækja, þegar þær standa opnar. En þetta hlýtur að vera met!

Vísast hefur gutti þessi þó frekar haft í huga að stela deyfilyfjum, gulli/silfri eða öðru verðmætu, en að reyna að gera sjálfur við tennurnar í sér, a la Mr. Bean.

 

Í frétt Moggans segir, að fangageymslur séu nú nær fullar á höfuðborgarsvæðinu. Fleiri innbrot voru í nótt og heilmikið að gerast upp á síðkastið.  Löggan hefur því nóg að gera.

En hvað er annars í gangi? Er innbrotaalda að hefjast? Er verðið á spítti að hækka?


mbl.is Gripinn eftir innbrot á tannlæknastofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband