Svikari í innsta hring?

Yrði "gaman" að hafa þá kumpána, Mladic og Karadzic, saman í búri í Haag?

Gæti orðið fjörugt.

 


mbl.is Mladic kom upp um Karadzic
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Iss, ekkert merkilegt

Annar hættur hvort sem er. Hinn pirraður, og segja sumir að það hafi verið af mjög eðlilegum ástæðum líka.

En gott að KSÍ skuli geta komið fram undir nafni og bannað viðkomandi með siðmenntuðum hætti, ólíkt sumum sem nota nafnlausa sendisveina til að vinna fyrir sig skítverkin.


mbl.is Tveir þjálfarar í bann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Olíufyrirtækin

BPJæja, smá lækkun, en af einhverjum ástæðum er maður hættur að trúa þeim. Maður fær það alltaf á tilfinninguna að þau séu ekki alveg samkvæm í hækkunum og lækkunum.

En olíufélögin selja þó amk kúnnunum vöruna á sama verði í smásölu, annað en BP útibúið við Hverfisgötuna í Hafnarfirði Wink

 


mbl.is Eldsneytisverð lækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvittað fyrir sig

Afsakið, en ég er verulega pissed akkúrat núna, eins og vandræðamanna er siður. En í stað þess að byrgja reiði niðri eða gera eitthvað róttækt, læt ég mér nægja, að fá útrás með smá leirburði:


Vont er að eiga í vanda
og víðsjá til beggja handa.
En feginn er þó
að eiga fullnóg
Og vera ekki Boris Panda.

red_panda_close_upJá, Boris Panda er rauður í framan, eins og svo oft áður þegar hann a.m.k. ætti að skammast sín.


Sjálfsvörn

Ætlar Karadzic virkilega að beita sjálfsvörn og e.t.v. bera við sjálfsvörn. Er þetta ekki samasem sjálfsmorð hjá honum?

Eða treystir hann engum...?


mbl.is Hyggst verja sig sjálfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórfrétt úr viðskiptalífinu

Maður selur hlutafé fyrir 29 milljónir króna.

Vá, efnahagsástandið hlýtur að vera á uppleið LoL


mbl.is Selur nær allan hlut sinn í HB Granda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svíar enn og aftur

Af hverju birtir Mbl. bara einhverjar klúðursfréttir af Svíum? Þeir fara í rangar flugvélar, ruglast á löndum og gera eintóma króníku; og þessir mölva hótelhúsgögn í ölæði. Góðar fyrirmyndir!


En hver svo sem ástæðan er, er ég sáttur. Fleiri svona fréttir af Svíum, takk!


mbl.is Sænskir landsliðsmenn í handknattleik í bann vegna ölæðis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snilld hjá varaformanni Samfó

agaÁgúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfó, skrifar á bloggið um bandarísku forsetakosningarnar. Þar segir hann m.a.:


"Það er fróðlegt að vera í Bandaríkjunum og fylgjast með umfjöllun þarlendra fjölmiðla af  forsetakosningunum. Þrátt fyrir nánast stöðuga umræðu á fréttastöðvunum um Obama og McCain er maður litlu nær um málefnin sem liggja að baki framboðunum."


Það var líka fróðlegt fyrir Íslendinga að vera í Reykjavík á síðasta vetri, því þrátt fyrir að stjórna í 100 daga náði Samfó-bandalag Dags B. Eggertssonar ekki að semja málefnaskrá/samning. Menn vissu því ekki hvaða málefni stóðu að baki Dags-stjórninni...enda eins gott fyrir Dag og co, því þau voru greinilega engin - því hér var á ferðinni valda- og bitlingabandalag.

En hið sama mætti eiginlega segja um Samfó? LoL


Vill Haarde hitta elgi af ætt Óskars?

Æjá, elgurinn Óskar er klassískur brandari sem Margeir Pétursson, stórmeistari í skák og bankastjóri MP, hélt gangandi forðum. 1990 vorum við Margeir og fleiri á skákmóti á norsku fjallahóteli og pöntuðum elginn Óskar í kvöldmat eitt kvöldið. Sá reyndist ekki mjög þjáll undir tönn og samdi Margeir framhaldssögu í upphafi hvers kvöldverðar um ævintýri Óskars hinn seiga undir tönn, allt frá því hann var á beit í nágrenni Tjernóbyl 1986, uns hann féll fyrir byssukúlu veiðimanns í mið Noregi 1990 og var seldur Gausdal fjallahótelinu.

EN mig grunar að hinn öflugi elgur, Óskar, hafi náð að skilja eftir sig afkvæmi í Noregi og legg ég til við hæstvirtan forsætisráðherra að hann tékki á ættingjunum og bjóði þeim jafnvel pólítískt hæli hér á Íslandi.

After all, elgir þessir eru af ætt Óskars...


mbl.is Geir heimsækir vini í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rakarinn í Belgrað

Já, rakarar eru víðar en í Sevillu. Hef hvergi séð eins marga rakara og hárgreiðslustofur eins og í Belgrað, hlutfallslega amk.

En mig grunar að sami hárgreiðslumaður hafi meðhöndlað Karadzic og Fischer á sínum tíma.


mbl.is Hyggst áfrýja framsalsúrskurði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. júlí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband