Föstudagur, 23. maí 2008
40 ár til hægri
Jæja, 40 ár frá þeim merka tíma, þegar landsmenn skiptu yfir í hægri umferð. Sú breyting hefur reynst vel, enda jafnan breyting til batnaðar þegar vinstri sinnar færa sig yfir til hægri. Bretar og fylgihnettir þeirra keyra þó ennþá vinstra megin, en kannski það breytist amk á eylandinu þegar Íhaldsflokkurinn kemst til valda í næstu kosningum og kemur hálf-vinstra liðinu frá völdum.
Þegar ég bjó í Englandi varð ég að nota smá aulahúmor á þennan mismun á hægri og vinstri, og smá lingústík. Til að mynda seig hressilega í enska ungfrú, sem ég átti þá töluvert vingott við, þegar ég sagði að við Íslendingar færum ferða okkar keyrandi "on the "ræt" side of the road". Nú, hún taldi vitaskuld að þar hefði ég átt við "réttu megin" og innst inni gerði ég það, en gleymdi skamma stund að "ræt" getur einnig þýtt "hægra megin". Ótrúlega gaman að djóka aðeins í Tjöllunum með allskonar aulahúmor.
Það þarf varla að taka fram að við hættum saman skömmu síðar. Ég á því góðar minningar frá hægri umferð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 23. maí 2008
Lúðvík Bergvins ánægður

![]() |
Lúðvík: Niðurstaðan í takt við sjónarmið Samfylkingarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 23. maí 2008
Stormsker all in á Stefán Hilmars
Jæja, deila þeirra Sókratesarfélaga heldur áfram. Stormsker segist hafa gert Stefán frægan. Stefán þvertekur fyrir það og Stormsker svarar fullum hálsi, "all in" eins og við segjum það í skákinni. Ætli hann sé að stúdera dónaorð á kvöldin með Torfa Stefáns?
Ég skal bara útkljá málið. Easy. Ég fylgist ekki vel með músík, hef aldrei gert. En 1986 byrjaði ég að starfa með skólanum í Litaveri, að selja dúka, teppi og svoleiðis stuff. Fyrsti kúnninn var Þórir Baldursson, sem allir þekkja, og síðar sama dag eða daginn eftir kom ungir maður að kaupa smá dúk fyrir ömmu sína. Hann hét Stefán Hilmarsson...og ég vissi vel hver hann var, ég sem hlustaði nánast aldrei á Rás 2. Vormenn Íslands! Málið dautt.
Ergo: ef ég þekkti Stefán Hilmarsson vegna söngferils hans 1986, var hann þegar orðinn frægur.
Málið dautt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 23. maí 2008
Stjórnin eins árs

![]() |
Ríkisstjórnin ársgömul |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 23. maí 2008
Skutlan helmingi dýrari en í fyrra
Já, skutlurnar eru orðnar dýrari en í fyrra. Nú kostar meira að bjóða henni út að borða, keyra rúntinn og svo framvegis.
Það er ekki aðeins það, að bílarnir séu orðnir dýrari í rekstri, heldur skutlurnar líka.
![]() |
Skutlið helmingi dýrara en í fyrra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 23. maí 2008
Óþarfi að spá í þetta
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)