Nautið sá rautt

Nedved er nú ekki nautsterkur fyrir ekki neitt!
mbl.is Nedved sá rautt í jafntefli Juventus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilvægt framlag Íslands í Afghanistan

Teppaiðnaður hóf að minnsta kosti að blómstra við komu Íslendinganna.
mbl.is Framlag Íslands mikilvægt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskum kortum hafnað

Já, minu korti var hafnað um daginn af Sky Europe. Ég prófaði tvö kort, og hvorugt gekk.

En ég mun amk aldrei reyna að versla við þetta aulafyrirtæki aftur. Málið dautt.
mbl.is Hafna íslenskum kortum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úff, misskilningur af minni hálfu

Hélt að Steingrímur Joð væri að fara á Þingvelli að treysta sín heit við náttúruna og sósíalismann.
mbl.is Skallagrímur bregður sér á Þingvöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gillett að selja Gillette Liverpool?

Og Hicks getur lítið mótmælt vegna hicksta.
mbl.is Hicks og Gillett að selja Liverpool?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dómsmál: Bloggari gegn bloggara. Bloggari vann!

Ómar vann Gauk, málið dautt.

Þetta gæti verið fordæmisgefandi. Óþolandi að menn komist upp með að kalla aðra ýmsum dónanöfnum og segja svo bara: "þetta er mín skoðun", "...málfrelsi", osfrv. Það hefur nú verið stöðvað.

Til hamingju Ómar.


mbl.is Sekur um meiðyrði á bloggi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verulega viðbjóðslegt

Hvaða villidýr láta sér detta í hug að koma svona fram. Þetta er í einu orði sagt viðurstyggilegt.

75 ára fangelsi takk fyrir! Málið dautt.


mbl.is Misþyrmdu fatlaðri stúlku í 6 klukkustundir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getnaðarvörn fyrir karla

Jahérna hér. Kannski er þá viagra bara klæðskerasaumuð lausn fyrir karla sem vilja ekki eignast (fleiri) börn? Og hjálpar til við allt hitt systemið til viðbótar?


Maður sér fyrir línur í Hollywood myndum framtíðarinnar:

Jane Doe: Put the rubber on!
John Doe: No worries, I am Viagra.

Málið dautt.
mbl.is Rannsóknir sýna að Viagra hefur slæm áhrif á sæði karlmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frost á Fróni

Úff, hann er kaldur núna. Við aularnir sem sofum lítið finnum fyrir þessu. Þegar ég vaknaði rúmlega fjögur í morgun var alveg skítakuldi úti og maður fagnaði því ekkert verulega að rúlla af stað á skrifstofuna, frekar en í gærmorgun.

En nú, nokkrum kaffibollum síðar, hefur frostið minnkað aðeins og maður getur rölt af stað. Ennþá er samt leiðinda kuldi en nær enginn vindur, þannig að þetta er viðráðanlegt

En fer þessu leiðinda kuldakasti ekki að ljúka?


mbl.is Úrkomulítið en kalt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. febrúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband