Fimmtudagur, 14. febrúar 2008
Magnað - stórkostleg vísa
Fékk eftirfarandi sent frá Kokknum:
Bóndi úr Laxárdalnum kom til læknis í Búðardal. Þegar læknirinn innti manninn eftir því hvað að honum amaði rétti hann honum blað með eftirfarandi texta: | |
Nú líður mér illa, lasinn er ég, margs konar kvilla merki ber ég, um allan skrokkinn frá skalla að il mér finnst ég alls staðar finna til. Þessi andskoti birtist í ýmsum myndum, - fjölbreytnin er með ólíkindum: í vindverkjum sterkum, vondu kvefi, ræmu í kverkum rennsli úr nefi, svo er þrálátur hósti og þyngsli fyrir brjósti, en beinverkir þjarma að baki og fótum, og það brakar í öllum liðamótum, þar grasserar sem sé giktarfjandi, sem almennt er talinn ólæknandi. Þá er sljóleiki í augum, en slappelsi á taugum, og svo þessi eilífa syfja, eða sárindin milli rifja, og óþægindi í einhverri mynd, oftast báðu megin við þind. Yfir höfðinu er þessi þráláti svimi, en þreyta gagntekur alla limi. Loks fylgir þessu lítill máttur, óreglulegur andardráttur, bólgnir eitlar og blásvört tunga, bronkíttis í hægra lunga. Svo safnast á skrokkinn skvapkennd fita þótt ég skeri við nögl hvern matarbita, og í sjö vikur hef ég, segi og rita, sofnað með köldu og vaknað með hita. Samt hefði ég aldrei uppphátt kvartað, ef lasleikinn væri ekki lagstur á hjartað, þar hef ég nú stöðuga stingi, sem stafa af of háum blóðþrýstingi. Og lon og don hjá læknum er ég, með litla von frá langflestum fer ég, því að lítið er gagnið að geislum, bökstrum og sprautum við svona fjölbreyttri vanlíðan og þrautum. Það ber helst við að mér batni á köflum af brúnum skömmtum og magnyl töflum. Sem sagt: ég er á eilífum hlaupum milli sérfróðra lækna og í lyfjakaupum. Já, útlitið er ekki gott. Ég þoli orðið hvorki þurrt né vott, það er að segja fæði. Og friðlaus af fjörefnaskorti til fróunar mér ég orti þetta kvalastillandi kvæði. Böðvar Guðlaugsson | |
Varla þarf að taka það fram að læknirinn gat ósköp lítið fyrir sjúklinginn gert. Höfundur ljóðsins mun vera móðurbróðir bóndans og vita þá kunnugir við hvern er átt. |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 14. febrúar 2008
Á að kæra Rauða krossinn, SÁA og önnur veðmálafyrirtæki?
Það er spurning. Þessi fyrirtæki, sem hafa það hlutverk að hjálpa fólki, hafa ásamt öðrum eyðilagt líf hundruða Íslendinga með því að lauma þessum spilafíknarvélum sínum hist og her um landið.
En en ég held þó að lagaheimildir skorti. En persónulega hef ég amk litla samúð með SÁÁ sem gefur sig út fyrir hjálpa fíklum, jafnvel þeim sem félagið hefur búið til sjálft.
En en ég held þó að lagaheimildir skorti. En persónulega hef ég amk litla samúð með SÁÁ sem gefur sig út fyrir hjálpa fíklum, jafnvel þeim sem félagið hefur búið til sjálft.
![]() |
Í mál við veðmangarann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 14. febrúar 2008
Opið bréf til opinberra starfsmanna í Bretlandi
Ef þið elskurnar mínar hafið einhverjar milljónir aflögu megið þig gjarnan senda þær á eftirfarandi heimilisfang:
Snorri Bergz
Reykjavik
Iceland
![]() |
Hundruð milljóna á rangt heimilisfang |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 14. febrúar 2008
Varnir Íslands
Ég hef lengi haldið því fram, að mesta hættan við öryggi Íslands og Íslendinga komi frá Svíþjóð. Þá ég ekki aðeins við ytra öryggi, heldur einnig verndun og viðhald íslenskrar menningar og siðvenja. Af einhverjum ástæðum hafa menn, sem flutt hafa til Svíþjóðar, breyst í Svía og síðan orðið fimmta herdeild þeirra á Íslandi.
Ef við ætlum okkur að sigra Svía reglulega í handbolta eða fótbolta á komandi árum verðum við að stöðva þessa fimmtu herdeild sænskrar ómenningar. Framtíð Íslands er í húfi.
Ef við ætlum okkur að sigra Svía reglulega í handbolta eða fótbolta á komandi árum verðum við að stöðva þessa fimmtu herdeild sænskrar ómenningar. Framtíð Íslands er í húfi.
![]() |
Svíi grunaður um hryðjuverk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 14. febrúar 2008
Lymskufullur ökumaður
En hefði ekki verið auðveldara að stunda veiðiþjófnað að sumri til?
![]() |
Ók út í Elliðaá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 14. febrúar 2008
Feitir Spursarar
Eins og einn sagði: Spursarar eru feitir, ljótir og lélegir í fótbolta.
Getur það verið?
Getur það verið?
![]() |
Tottenham-menn í megrun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)