Toppurinn að vera í teinóttu?

EmmanuelAdebayorJa, það fannst amk Helga Björns & Co,

En það var ekki toppurinn í kvöld, þegar þeir feit-teinóttu fóru niður í logum gegn Arsenal, sem er nú komið heim, amk um stundarsakir.

Arsenal ku víst hafa haft mikla yfirburði (nema í upphafi síðari hálfleiks) og vann nú Newcastle 3-0 í annað skiptið á nokkrum dögum.

Keegan hefur því tapað 0-6 fyrir Arsenal á nokkrum dögum og ekki byrjar það vel.

Og Adebayor að brillera. Hann virðist sá eini sem getur haldið í við Ronaldo í markaskoruninn í PL.

Sko risann.

mbl.is Arsenal náði þriggja stiga forskoti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skiljanleg ákvörðun

liverpoolhofnEkki mjög erfitt að stökkva á svona tilboð, ekki síst þegar hann mun þá jafnframt losna frá Liverpool. Sick
mbl.is Bjarni: „Ákveðin léttir að vera laus frá Everton“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ástþór í forsetaframboð í Rússlandi?

astthormagnusson

Sjálfskipaður keisari, fjórar keisaraynjur og fjöldi annarra sérvitringa hafa falast eftir að fá að bjóða sig fram í forsetakosningunum í Rússlandi í mars, að því er formaður yfirkjörstjórnar greindi frá í dag. Alls hafa borist yfir eitt hundrað framboðsbeiðnir frá "óháðum" frambjóðendum."

Ástþór í framboði, eða amk einhverjir af svipuðum toga?

En greinilega að Íslendingar og Rússar eiga margt sameiginlegt. Spurning hvort Rússar fylgja þá ekki fordæmi Kínverja og styðji okkur til setu í öryggisráðinu?


mbl.is Þykjustukeisarar og aðrir sérvitringar vilja bjóða fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málið dautt!

goldengateEngin Sundagöng takk! Getum vísast notað 9+ milljarða sem myndu sparast ef Eyjaleiðin yrði frekar valin.

Brýr eru flottari en göng, hagkvæmari að öllu jöfnu (amk í svona stöðum) og miklu skemmtilegra að keyra eftir fallegri brú en hola sér niður í göng eins og moldvarpa.

Burtu með göngin af hinu fræga borði.

Málið dautt.
mbl.is Sæmilegar aðstæður fyrir göng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afbragðs varaþingmaður

rosaog þingmaður almennt.

Ég hef mikla trú á Rósu. Hún á eftir að standa sig vel á þingi, eins og í bæjarmálunum í Firðinum og öðru.


mbl.is Nýr varaþingmaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamlir gæjar í blokk

New-Kids-On-The-Block-This-Ones-For-The-303510Nei takk. Ekki fleiri svona. Nógu erfitt að horfa upp á t.d. ríjúnjon Kryddpíanna, þó þetta bætist ekki við.

Ég efast um að þessir drengir hafi nokkuð sérstakt fram að færa nú, frekar en Kryddpíurnar. Báðar þessar hljómsveitir voru hott í ákveðnum umhverfi. Það umhverfi er liðið. Sjáum nú bara hvernig fór fyrir Lúxor!?

Drengjabönd eru orðin þreytt, sérstaklega þegar drengirnir eru orðnir "gamlir".

En auðvitað verður að gefa þeim "benefit of a doubt", en maður fær grænar bólur til að hugsa til þess að early 90s músík fari að hljóma hér aftur. 
mbl.is New Kids on the Block saman á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fáránlega há forstjóralaun

prohibitedOk, maðurinn vinnur fimm fyrstu mánuði ársins og gerir þá vísast djúsí starfslokasamning. Og fyrir þetta fær hann 412 milljónir króna í laun.

Ég veit ekki hvað fólki finnst um þetta, en mér finnst þetta nú út úr öllu korti. Hver hér á litla Íslandi á skilið að fá 82,5 milljónir á mánuði?
mbl.is Forstjóralaun Straums 467,7 milljónir króna 2007
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spaugstofan

spaugSpaugstofan hefur jafnan haft þá stefnu að gera grín að stjórnvöldum. En að baki gríninu er ádeila. Það er öllum ljóst, að ég tel.

Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkar hafa lengstum orðið fyrir barðinu á Spaugstofumönnum. Sérstaklega hafa Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson "setið fyrir" í þáttum þeirra og stundum hefur grínið verið óvægið á þeirra kostnað.

Útskýring Spaugstofumanna hefur jafnan verið á þá lund, að stjórnvöldin hverju sinni verði fyrir þessu. Þeir velji ekki ríkisstjórnir heldur þjóðin.

En nú er svo komið, að Samfylkingin hefur verið í ríkisstjórn frá því í sumar. Hluti Spaugstofunnar amk er á málum hjá þeim flokki, en lítið hefur borið á gríni t.d. í Ingibjörgu Sólrúnu eða öðrum forkólfum Samfylkingarinnar í ríkisstjórn (eða borgarstjórn) og þá frekar meinleysislegt.

Ég get ekki annað en velt því fyrir mér, hvort Spaugstofumenn séu að taka tillit til eigin pólítískra skoðana og láti frekar "vaða" á "hina", þ.e. aðra en Samfylkingarmenn.

Kannski gera þeir það ekki meðvitað, en þá er það ómeðvitað. Þetta gerir það að verkum, að ég ætla að hætta að horfa á Spaugstofuna, sem mér virðist vera ríkisstyrktur grínflokkur jafnaðarmanna. Og ég sem hef verið meðal áköfustu aðdáenda þeirra alveg frá upphafi og held ég á heima séu til flestir þættir Spaugstofunnar (uppteknir á spólu) frá upphafi og fram á það síðasta.

En nú er nóg komið.

Ég myndi ekki sakna þeirra af skjánum.
mbl.is Spaugstofan sér ekki eftir neinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jónsi kominn úr skápnum!

Ok, ég skildi þessa fyrirsögn Moggans öðruvísi en fréttin bar með sér. Ágætt að Moggamenn hafi smá húmor í þessu. Wink

En glæsilega gert hjá Icelandair að halda svona veglega árshátíð.
mbl.is Jónsi kom út úr skápnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. janúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband