Mánudagur, 28. janúar 2008
Serbarnir
Mér og Robba Harðar Lagerman er boðið á skákmót í Serbíu. Held að það byrji 14. febrúar! Frekari upplýsingar á leiðinni.
Úff, maður hefði nú viljað fá meiri og betri fyrirvara. En alltaf gaman að fara til Serbíu, var þarna síðast í nóv-des. Spurning hvort maður skelli sér bara? Aldrei að vita, ef boðið er gott.
Vonandi ná Serbar, sem hafa reynst ágætis fólk í samskiptum við mig amk, einhverri lendingu á þessi mál þarna suðurfrá og nái að stíga upp úr niðurgangi kommúnistatímabilsins.
![]() |
Serbum boðið samkomulag við Evrópusambandið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 28. janúar 2008
Úff, ég fékk sjokk
Ég var farinn að óttast að hún væri farinn að halda framhjá mér
![]() |
Neita orðrómi um ástarsamband |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 28. janúar 2008
Eiður til Bolton?
Jæja, Óttar Felix Hauksson og Guðni Bergz myndu vísast verða nokkuð sáttir með þetta.
En Eiður hefur nú verið orðaður við ýmis félög á Englandi. Það er þó líklegra að Eiður samþykki lánssamning en varanlega sölu, og ekki síst til Bolton, sem vísast á stað í hjarta sínu fyrir Bolton.
Eiður Smári gæti notað fulla leiktíma með Bolton...í staðinn fyrir nokkrar mínútur í leik með Barca og síðan komið sterkur inn með Barca á næsta ári.
Maður veit aldrei?
![]() |
Eiður Smári orðaður við Bolton |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 28. janúar 2008
Lægðatregða framundan?
"Spáð er mikilli kuldatíð næstu daga en um miðja vikuna snýst vindurinn í norðanátt. Að sögn Veðurstofu Íslands er komið hlé á þeim lægðagangi sem verið hefur að undanförnu og mega landsmenn nú búast við að sjá tveggja stafa frosttölur víða."
Jahérnahér og Mr. Jeremías minn and Mrs. Dúddamía. Kuldaskeið framundan. Og ég var að vona að þetta væri nú allt að lagast.
En jæja, það verður semsagt lægðatregða á næstum dögum og/eða viku. En hvernig er það, þegar eintómar lægðir ganga yfir og engin tregða er á rigningu og roki.
Er það þá ekki kallað hægðatregða?
En vonandi gengur mönnum vel að ferðast, því ég vil ógjarnan sjá menn ganga um götur bæjarins í hægðum sínum.
![]() |
Kuldatíð framundan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 28. janúar 2008
Hvað með karlaathvarfið?
Spurning hvort ekki veiti af slíku?
Ég þekki nú nokkra ofur-kúgaða eiginmenn, sem hefðu gott af því að komast á svoleiðis; já, sumar konur berja kallana sína...og þeir vilja ekki slá á móti, því þeir berja ekki konur!
Jafnrétti -- fer til beggja átta.
![]() |
Á sjúkrahús eftir heimiliserjur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 28. janúar 2008
Ódýr nýmjólk?
Nú þekki eg ekki niðurgreiðslukerfi Norðmanna og Dana (ef einhver eru), en mig grunar samt að mjólkurlítrinn hér sé, þegar á heildina er litið, dýrari hér en amk í Danmörku.
En Noregur er fantadýr í flestu, svo maður veit aldrei með þá frændur vora.
![]() |
Ódýr nýmjólk á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 28. janúar 2008
Kemur vel á vonda
Sjaldan hefur eplið fallið jafn langt frá eikinni.
![]() |
Náttúruverndarsinnar orðnir olíulausir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 28. janúar 2008
Skiptir aldurinn öllu máli?

Persónulega skil ég ekki hvað McCain er að þvælast þetta. Hann er kominn á áttræðisaldur, á fullt af peningum og gæti sest í helgan stein á solid eftirlaunum og haft það náðugt það sem eftir er.
Ég er ekki að gera lítið úr hlutverki aldraðra (þó 71 ár sé nú varla "aldrað" í dag!) en það að vera forseti Bandaríkjanna er erfiðara hlutverk en flest önnur. Og þó McCain sé e.t.v. í fínu formi núna og verði eitthvað áfram, kemur að því að elli kelling bankar upp á og vill fara út á deit.
Ég sé ekki pointið í að kjósa yfir sig forseta (eða forsetaframbjóðanda) á áttræðisaldri. Og ég er enn meira hissa á McCain að hafa asnast út í þessa eldraun, kominn á þennan aldur.
En hann telur e.t.v. að hlutur sinn í sögubókum framtíðarinnar sé ekki nægur og vill skapa sér nafn, hvort sem hann verður forseti eða ekki. Og það mun honum vísast takast.
![]() |
Mikið spurt um aldur John McCain |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 28. janúar 2008
Rambó
Ég hef eðlilega ekki séð þessa mynd, en mig grunar að hún sé ýkt útgáfa af Rambo II og Rambo III, þ.e. að menn falli á báðar hendur umhverfis Rambó, sem sjálfur sleppi með smá sár eða skrámur.
Þannig eiga hasarhetjur að vera, amk skv. formúlunni. Hver man ekki eftir Commando með Arnaldi ríkisstjóra. Þar ræðst hann einn á herbúðir vondu kallanna á eyju og drepur hundruðir manna á nokkrum mínútum til að bjarga dóttur sinni.
Arnaldur var vissulega "flottur" í hlutverki sínu. En gerir það mynd eitthvað betri að blóðið streymi nánast látlaust? Verður mynd betri við að eins margir látist og mögulegt er?
Mig minnir að Hotshot 2 hafi gert grín að þessu og verið með talningu yfir látna. En sú mynd var nú með því aumara sem menn hafa séð og því vart marktæk "heimild".
En mér leikur forvitni á, hverjir eru núna vondu kallarnir hjá Rambó úr því Sovét er hrunið? Varla íslamskir terroristar úr því hann er á svipuðum slóðum og áður, þe. í SA-Asíu?
En a.m.k.: Rambó er varla nein úrvalsmynd sem verður tilnefnd til margra verðlauna. En hún gæti vel verið ágætis afþreying fyrir þá sem hafa gaman að drápsmyndum.
![]() |
Blóðug gagnrýni á Rambo |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)