Ekki vissi ég að VG væri með útibú í Tyrklandi!

Alveg ótrúlegt, að VG hafi svona víðtæk áhrif á Evrópu.
mbl.is Lögbann sett á YouTube í Tyrklandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt

að sífellt fleiri "anti-fótbolta"lið skuli komast áfram á að liggja í vörn með 10 menn allan leikinn og ná að pota einu marki inn.

 Ömurlegt. Ósigur fótboltans.


mbl.is PSV sló Arsenal út úr Meistaradeild Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lille ven

viagraÞegar ég var í Egyptalandi var mér sagt, að vandamál Egypta væri að eignast of mörg börn og vera of aktívir í rekkjunni.

Þessa frétt þarf að skoða í því ljósi.


mbl.is Hald lagt á stinningarlyf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning að taka þessa reglu upp hér?

 

women


mbl.is Yfirvöld í Líbýu banna konum undir fertugu að ferðast einar til útlanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vítamín og lýsi!

Jæja, nú hefur krónan tekið inn vítamínin sín og lýsið í morgun!

En annars er alveg hættur að botna í, af hverju krónan helst svona "stöðug".


mbl.is Krónan styrktist nokkuð óvænt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búum til betri börn!

Ja, þetta var sungið í den og þótti þá flott. En við skulum vona, að ekkert af okkar börnum verði eins og þetta hér að neðan.

funny-pictures-babies-are-drug-addicts-0Nv

mbl.is Fæðingarorlof feðra lengist og frjósemi eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætti maður að flytja til Svíþjóðar?

Ég gæti jafnvel virkað grannur innan um alla þessar sænsku fitubollur, eða "swedish meatballs" eins og Jay Leno myndi vísast segja.

En ég held þó, að gallarnir séu fleiri en kostirnir. Því held ég barasta, að ég  búi bara áfram hér á Íslandi en fari loksins í megrun!

 


mbl.is Svíar tútna út; fjöldi of feitra hefur tvöfaldast á 25 árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hryðjuverkamaður á ellilífeyrisaldri

Æjá, allsstaðar leynast hryðjuverkamennirnir, sem Frjálslyndir flokksmenn sjá víst í hverju horni. En það verður nú að segjast, að þetta er nokkuð skondið mál, þrátt fyrir allt.

 


mbl.is „Gömul og þreytt“ kona dæmd fyrir að rækta og eiga kannabis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Út með jólaköttinn...

...hann á ekki lögheimili hér.

Aldeilis að umferðarlöggan hefur í nægu að snúast. Endalausar töku á glæpamönnum og bílölkum.  Nú þarf löggjafinn að fara að herða refsingar í umferðarmálum.


mbl.is Þrír teknir fyrir ölvunarakstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skapar fegurðin hamingjuna?

Enn og aftur les maður um, að fræga og fína fólkið er ekkert hamingjusamara svosem en við hin. AÐ vísu er þannig, að sá hluti þotuliðsins í Hollywood, sem er í raun hamingjusamur eða svogott sem, kemur ekki í fréttum. SLíkt þykir ekki fréttnæmt, en reyndin er að þúsundir þekktra leikara, söngvara og viðskiptajöfra í USA lifir nánast eðlilegu lífi og berst tiltölulega lítið á. Slíkt fólk fær litla umfjöllun og kærir sig vísast ekki um hana.

En síðan kemur, að kvikmyndaverin í Hollywood sækjast mest eftir að ráða þá leikara, sem mest eru í sviðsljósinu. Niðurstaðan er, að það fólk sem lifir óheilbrigðu lífi eða baðar sig í sviðsljósinu fær mest að gera, býst ég við, en það á hinn bóginn virðist lifa innantímu og gleðisnauðu lífi, sem kallar á ofnotkun vímuefna eða annað vafasamt atferli.

En ég held, að þetta sé allt saman hjóm og eftirsókn eftir vindi. Peningar skapa ekki hamingju, ekki frekar en fegurðin. Peningar eru afl þeirra hluta sem gjöra skal, en þeir skapa ekki hamingju per se. Frekar hafa þeir, ef miðað er við söguna, skapað óhamingju, ef þeir hafa komið í of miklu magni.


mbl.is Pitt vill fita Jolie
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Bloggfærslur 7. mars 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband