Skandall

Jæja, enn eru S-Evrópu og S-Ameríkumennirnir blóðheitir. Það virðast vera endalaus vandamál með svona lagað og ólæti áhorfenda í deildunum í Ítalíu og á Spáni.

Nú á UEFA, og jafnvel FIFA, að fara að grípa til harðra aðgerða.

Mín tillaga: há fjársekt (gera það jafnan til að safna pen) -- bönn á leikmenn sem tóku þátt -- og fleira, t.d. heimaleikjabönn.

 

 


mbl.is Valencia og Inter eiga yfir höfði sér þungar refsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grundvöllur að stjórnarsamstarfi?

Ætli þetta verði grundvöllur að stjórnarsamstarfi?

Ja, það sem skilur mest á milli flokkanna er nú nánast afgreitt hvort sem er, s.s. virkjanir, álver, einkavæðing, osfrv.

Eftir stendur, að Sjálfstæðisflokkur og VG eiga sennilega þó nokkuð sameiginlegt, þegar málin eru krufin til mergjar.

"Bleika og bláa stjórnin" gæti vel tekið við völdum í vor.


mbl.is VG og Sjálfstæðisflokkur gegn ESB-aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýyrði: hólmsteinska

Las þetta í Fréttablaðinu í morgun. Þetta orð ku standa fyrir ný-hægri stefnu.

Það er deilt um það hér á landi hvort sú efnahagsstefna, sem hér hefur ráðið frá því um 1990, hafi verið góðra gjalda verð. Ég tel svo vera. Og ef taka má stjórnarandstöðuna trúanlega, er hún Hannesi Hólmsteini að "kenna". Því tel ég við hæfi, að Hannes fái þetta nýyrði inn.

Verður þá ekki tímabilið frá 1991-2005 nefnt "hólmsteinska öldin í sögu Íslendinga" í sögubókum framtíðarinnar?


Sammála Gísla Marteini

Jæja, nú  á að setja þessa umferðarhnúta í stokka. Mikið er ég sammála. Ég hef búið, með dálitlum hléum, nánast á horninu á Kringlumýrarbraut og Miklubraut, og veit hve skelfileg mengun á sér þar stað. Drullan sem sest á gluggakistuna þegar maður skilur eftir glugga opinn einn dag er merki um það. Mér skilst, að bíll í lausagangi mengi meira, og því þarf að láta umferðina flæða þarna í gegn. Og varðandi stokka, þá er maður verulega lengi að komast þarna í gegn og því sé ég þetta sem mikla samgöngubót.

Tek ofan!


mbl.is Um 70% umferðar verða neðanjarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Bloggfærslur 7. mars 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband