Bruce Springsteen opnar á Emirates Stadium í maí!

springsteenBruce Springsteen og E-strætisbandið munu hefja tónleikaferð sína í Englandi næsta vor á besta mögulega stað, þ.e. á Emirates Stadium, heimavelli Arsenal í London.

Sjá t.d. hér.

Nú er bara að mæta á Emirates...ekki bara Arsenal menn heldur einnig aðrir. Spurning að láta JóJó hita upp?


Bílahindrun ársins

bilahindranirÞessir menn voru semsagt að leggja þessa stólpa fyrir utan ónefndan sportbar, til að hindra að bílar gætu lagt þarna upp á stéttina.

En ég spyr, eins og sá sem ég fékk þetta hjá: "Hvað ætli líði langur tími uns þeir fatta þetta"?


Ætli þessir annars ágætu menn séu nokkuð Hafnfirðingar?

Yfirvinnan

Ég hef nú tekið eitthvað svipað á mánuði eða meira....það er hugsanlega skýringin á því af hverju ég varð skyndilega svona ruglaður...eða ruglaðri en áður.

En með mér unnu þá í "aukavinnunni" sumir, sem unnu jafnvel enn meira. Ég man eftir strákum sem voru að vinna allt að 400 klst á mánuði, þ.e. nokkuð meira en fulla vinnu á hverjum degi mánaðarins! En þeir voru líka að safna sér pening...

En hvernig ætli ástandið sé hér á Íslandi. Ég væri ekkert hissa á manni með 250 vinnutíma á mánuði. Og mér finnst það í raun ekkert sérstakt svosem...maður hefur séð það verra.
mbl.is Vann yfir sig og dó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1 ár

Jæja, þá er 1 ár síðan ég byrjaði að blogga hér á mbl.is (í annað skiptið reyndar). Ég hef bara misst út þrjá daga (þar af 2 núna nýlega, meðan ég var í Serbíu -- báðir dagarnir voru ferðalagadagar ef ég man rétt) og einn ferðalagadagur nú í haust, á leiðinni til Tyrklands.

Þetta hefur verið misgaman, en lengst af ágætis útrás...

En núna nenni ég þessi eiginlega ekki lengur...annað hvort bloggfrí eða...:)


Rússnesku þingkosningarnar

Jæja, þá er það orðið ljóst. Pútin knýr fram hagstæð kosningaúrslit og það án þess að fara eftir lögum og reglum lýðræðislegra kosninga.

 

En ég held þó, að Rússar vilji hafa sterkan leiðtoga. Þeir eru orðnir vanir slíku og sjá enga ástæðu til að skipta yfir í veiklulegan, lýðræðiskjörinn leiðtoga.


En hitt er svo annað mál, að einræðistilburðir Pútíns, Chavezar og annarra slíkra um þessar mundir vekur hjá mér ugg og ótta. Eftir allt sem á undan er gengið virðast menn enn telja, að einræði sé ásættanlegt stjórnarfyrirkomulag.


Ég fatta það ekki. Hvað ef einvaldurinn verður brjálaður, eins og t.d. Hitler, Stalín, og fleiri eru gott dæmi um? Hvað þá? Þá sitja menn uppi með klikkaðan einræðisherra að hætti Mugabes eða annarra rugludalla, eða jafnvel ofurmorðóða villiasna.


Það er ekki að ástæðulausu að á síðustu 100 árum hefur þeim þjóðum gengið best, þar sem stjórnkerfið er opnast og lýðræðislegast.


mbl.is Pútín segir kosningar styrkja þingið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draugagangur

Jahérna. Ætli mennirnir hafi ekki lent í slagsmálum við nokkra drauga, eftir heiftúðugar deilur um stefnu Bjarna Harðarsonar og Framsóknarflokksins.


Grænu draugarnir hafi síðan byrjað að slást, þegar hinir af holdi og blóði fóru að rifja upp sorgarsögu Framsóknarflokksins.
mbl.is Slagsmál við Draugabarinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt

Þetta er svona eins og að heyra, að berklar hafi náð að festa sig í sessi að nýju.


Úff, út með jólaköttinn, hann á ekki lögheimili hér.
mbl.is Kryddpíur á faraldsfæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ömurlegur endir á góðri ferð

Jæja, Serbíuferðin var í aðalatriðum góð. Mér gekk ágætlega í mótinu ("afbragsvel" eins og það var sagt) fram í síðustu umferð, þegar ég sólundaði öllum stigagróðanum í einni ömurlegri skák.

En jæja, gat verið verra.

Og síðan var heimferðin ömurlegt. Þrjár seinkanir vegna traffíkur í London. Ég nota Heathrow helst aldrei aftur sem transitvöll.

Og síðan týndu þeir töskunni minni í London. Og ég sat eftir í Leifsstöð í nótt og síðasta flugrútan farin með meðfylgjandi leigubílakostnaði.

Ömurlegur endir á góðri ferð.


Og solid Ossom.

Kennarinn náðaður

Jæja, þá er þetta mál búið og þótt fyrr hefði verið. Maður hefur haft þetta gangandi á Sky í c.a. viku og er löngu búinn að fá leið á þessu.

Og ég efast um að ég þoli að sjá fleiri myndir af konunni með tígrisdýri eða kameldýri. Nei takk.


EN gott að Súdanir sáu að sér. Þetta mál hefði gert þá að aðhlátursefni og valdið þeim skaða á alþjóðavettvangi.

En vonandi láta þeir þetta sér að kenningu verða...
mbl.is Breskur kennari náðaður í Súdan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. desember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband