Föstudagur, 16. nóvember 2007
Norskar fitubollur
Norðmenn greinilega forríkir, því miðað við verðlagið hafa aðeins millar efni á því að borða ruslfæði í Noregi.
![]() |
Norskir karlar þeir feitustu í Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 16. nóvember 2007
Glæsilegt Bjarni!
Vel gert kappi. Glæsilegur árangur.
Stjórnarsetan í T.R. á síðasta keppnistímabili hefur greinilega gert þér gott!
Til hamingju.
![]() |
Hvergerðingur Bahamameistari í skák |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 16. nóvember 2007
Ég stefni á að byrja inná gegn Dönum
Jæja, má ekki vera að þessu lengur. Er farinn útí rækt að takáþví, svo ég verði nú í góðu formi fyrir leikinn.
![]() |
Jóhannes Karl ekki með á Parken |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 16. nóvember 2007
Sorglegt
Þetta minnir mig á karlinn sem sagði, þegar hann kom heim úr sólarlandaferðinni:
"Æ, mig grunar að ég hafi smitast af klamydíunni, aftur..."
Það skásta við þennan pakka er, að myndirnar af þeim geta notast sem auglýsing í forvarnarherferð gegn átröskunarsjúkdómum (nema af Baby, sem var að eignast baby).
![]() |
Kryddpíurnar aftur saman á sviði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 16. nóvember 2007
Kossaflens
Ég fellst alveg á þessa verðlagningu: 1.500 evrur fyrir koss.
Konur næstum því á öllum löglegum aldri geta haft samband við mig til að nýta sér þessa þjónustu samkvæmt verðlagningu dómstólsins.
Hafið samband í koss@hotmail.com
![]() |
Koss metinn á 1.500 evrur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 16. nóvember 2007
Bananalýðveldi?
![]() |
Fyrsta bananauppskeran á Grænlandi boðin upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 16. nóvember 2007
Andstyggilegt; fórnarlamb hópnauðgana dæmt til harðrar refsingar
Eftirfarandi frétt er nú með því ljótasta sem maður hefur lesið lengi. Maður fékk sjokk, en í raun kom fréttin alls ekki á óvart. Maður hefur heyrt af slíku áður og vitað að slík lög væru í gildi í Saudi-Arabiu. En fréttin á Mbl. er eftirfarandi:
Nítján ára gömul stúlka í Sádi-Arabíu, sem varð fórnarlamb hópnauðgunar, hefur verið dæmd til að þola 200 svipuhögg og sex mánaða fangelsisvist þar sem hún braut lög sem banna samskipti við ókunnuga karlmenn. Stúlkan var í bíl með manni, sér ótengdum, þegar ráðist var á hana.
Konan var upphaflega dæmd til að þola 90 svipuhögg. Hún áfrýjaði en áfrýjunardómstóll þyngdi dóminn og sagði m.a. að stúlkan hefði reynt að nýta sér fjölmiðla til að hafa áhrif á dómsniðurstöðuna. Lögmanni stúlkunnar var einnig refsað en hann var sviptur lögmannsréttindum.
Dómstóllinn þyngdi einnig dóma, sem árásarmennirnir, sem voru sjö, hlutu. Þeir voru upphaflega dæmdir í 1-5 ára fangelsi en áfrýjunardómstóllinn tvöfaldaði lengd dómanna.
Fréttavefur BBC hefur eftir blaðinu Arab News, að konan, sem er sjía-múslimi, hafi verið nauðgað 14 sinnum fyrir einu og hálfu ári. Sjö menn úr hópi súnní-múslima voru fundnir sekir um árásina.
OK, þetta kemur ekki á óvart, en maður getur samt ekki gert annað en að hrópa: "Ranglæti, ranglæti". Hvílíkur viðbjóður að dæma stúlku, sem var hópnauðgað og það 14 sinnum og vísast hrottalega, til að þola 200 svipuhögg og 6 mánaða fangelsi.
Jæja, en þetta er íslam, það sem við viljum endilega flytja hingað inn og bjóða velkomið með bestu kjörum. Og ekki segja að þetta sé ofstæki eða brjálæði, þetta er einfaldlega það sem íslömsk lög, sharía, boða. En íslömsk lög gilda ekki allsstaðar í sinni skilyrðislausustu mynd. Til að mynda er svona viðbjóður ekki í gildi nema í einstaka landi og er Saudi Arabía þar fremst í flokki. En þróunin er í þá átt í heimi íslams, að þeir róttækari eru í sókn og hinir hófsamari að gefa eftir eða flýja til Bandaríkjanna.
Hvernig ætli Ísland yrði, ef slíkir samfélagshættir yrðu teknir upp hér á landi?
![]() |
Fórnarlamb hópnauðgunar dæmt til refsingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Föstudagur, 16. nóvember 2007
HM unglinga framundan
Það var vel að þessu staðið hjá Skáksambandinu í gær. Sjálfur forsætisráðherra mætti á staðinn og aragrúi fjölmiðlafólks, þar á meðal Adolf Ingi frá Sjónvarpinu. Þarna voru semsagt keppendur, foreldrar, stjórnarmenn í SÍ, forráðamenn Skákskólans og ýmsir af þjálfurum krakkanna.
Þarna eru níu krakkar að fara út og vonast ég eftir góðum árangri. Sterkastur krakkanna er undrabarnið okkar, Hjörvar Steinn Grétarsson, sem er tvímælalaust efnilegasti unglingur okkar í dag. Hildur er yngst, en lætur ekki vaða yfir sig samt. Á milli þeirra eru síðan margir af okkar efnilegustu börnum og unglingum.
Vel hefur verið staðið að málum, bæði hjá Skáksambandinu og einstaka foreldrum, sem sum fara með til Tyrklands, og sýna þessum málum mikinn áhuga. Börnin hafa fengið sérstaka þjálfun að undanförnu og er það vel. Ég hef aðallega verið með einn af þessum unglingum og hefur sá verið í kennslu nær daglega í tvær vikur, og hefur meira eða minna verið að keppa eða hjá þjálfurum lengst af þessu ári.
En varðandi fréttina skal það áréttað, að Kristján skáld Hreinsson er ekki stjórnarmaður í Taflfélaginu, heldur í varastjórn Skáksambandsins. En vísan er góð, eins og venjulega.
Áfram Ísland.
![]() |
Átta ára stúlka reyndist ofjarl forsætisráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)