Gagnslausar refsiaðgerðir

Ef Rússar og Kínverjar vilja ekki samþykkja refsiaðgerðir munu þær ekkert gagnast. Þó þær verði "mildaðar". Slíkt gengur hreinlega ekki, því það eru of margar smugur. Þetta mun aðeins hafa þau áhrif, að staða USA í Miðausturlöndum verður enn verri en áður.


En hins vegar veit ég ekki um neita betri aðgerð til að hrista aðeins upp í Írönum.


mbl.is Bandaríkin: Frekari refsiaðgerðir gagnvart Íran í nánd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Trekantur" í boltanum

Mikil snilld er þetta. Jol er rekinn frá Spurs og Ramas tekur við, en hann var þá stjóri hjá Sevillu. Nú síðan er þjálfari Valencia rekinn og Koemann, þjálfari PSV tekur við. Nú, Jol er síðan á leið til PSV, ef rétt er gossipað. Þá liggur ljóst, að brottrekinn þjálfari Valencia ætti að taka við Sevillu.


Ég man ekki hver tók við af Ramos og hvort það hafi verið til frambúðar eða bráðabirgða. En þetta er skemmtilegur trek- eða eiginlega fjórkantur.
mbl.is Jol á leið til PSV Eindhoven
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þraut

Hvað kemur út, þegar eftirfarandi dæmi er leyst með vasareikni?


7 konur, þann 5/9 79 1 sinni; sinnum 7 dagar?

Stjörnudaður á Gramercy Park hótelinu

Jæja, Lexington Avenue er þá samverustaður þessara turtildúfna. Já, hvernig gátum við strákarnir í íslenska unglingalandsliðinu í skák vitað, endur fyrir löngu, að þetta merka hótel yrði löngu síðar samfundastaður anorexískrar gelgju og útbrunnins hjólreiðakappa?


Og okkur hefði staðið á sama, hefðum við getað séð framtíðina.


Þar eð; ég fatta ekki hvað er svona merkilegt við þennan atburð og eins og er situr þessi frétt í 3 sæti yfir mest lesnu fréttirnar á Mbl.is.


Hvað ætli það segi um okkur Íslendinga? Erum við orðnir svo kanískir, að við erum byrjaðir að elta hinar meintu vestanhafsstjörnur út um allar trissur, jafnvel inn á bar á Lexington Avenue?


mbl.is Dunduðu sér við daður á bar í New York
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Sigurður Líndal í Samfylkingunni?

Ja, nú veit ég ekki. En þeir, sem kenna á Bifröst, virðast einkum koma úr þeim ákveðna stjórnmálaflokki.
mbl.is Ráðinn að Bifröst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. nóvember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband