Miðvikudagur, 27. desember 2006
Heimskulegt
Já, ekki líst mér á þetta. Nú á að fara að reisa landnemabyggð nyrst í Jórdandalnum. Ég sé ekki pointið. Til hvers?
Ég fór einu sinni, fyrir forvitni sakir, í stutta heimsókn til Betel-landnemabyggðarinnar, rétt norðaustur af Jerúsalem. Á leiðinni gerðist ýmislegt og sá ég því ekki mikið af staðnum, annað en heilsugæsluna, þar sem ung og falleg hjúkka klambraði mér saman. Ég náði þó að planta einu tré þarna, lítilli plöntu, með aðstoð Marty, móður meðleigjanda míns og aðal hvatamanns ferðarinnar. En þennan eina eftirmiðdag var ég "Snorri í Betel".
En a.m.k., ég vona að þetta leyfi verði dregið til baka og það fyrr en síðar.
Miðausturlönd | Breytt s.d. kl. 19:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 27. desember 2006
Fleiri Kassam-árásir
Jæja, Kassam-flaugunum heldur áfram að rigna yfir Ísrael, þrátt fyrir að vopnahlé eigi formlega að vera í gildi. Síðustu flaugarnar lentu nærri borginni Askelon, þar sem, by the way, liggja fjölmargir Palestínumenn, sem særðust í átökum Fatah og Hamas í síðustu viku. Olmert hefur nú gefið hernum leyfi til að skjóta til baka, en aðeins "lítillega" og á þann stað, þaðan sem flaugunum var skotið frá. Talsmaður Hamas gagnrýndi Ísrael fyrir að vilja svara eldflaugaárásunum og sagðist trúa, að vopnahlé "sé enn í gildi og báðir aðilar skuli virða það, því það sé í beggja þágu."
Skrítið, því hver svo sem bombar þessum flaugum á Ísrael, gerir það með vilja og vitund Hamas, sem gætu stöðvað þetta, sýnist þeim svo. Talsmaður Islamic Jihad hefur áður hafnað vopnahlénu og sagði nú, að vonandi myndu átök við Ísrael leiða til þess, að Palestínumenn hætti að berjast innbyrðis, en þau samtök hafa verið einna áköfust í Kassam-árásunum.
Síðan vopnahléð gekk í gildi heftur a.m.k. 62 Kassam-flaugum verið skotið á Ísrael
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 27. desember 2006
Jólasnjórinn
Já, þetta er skemmtilegt. Ég man, þegar ég var forðum í námi í Jerúsalem, að þá snjóaði aðeins einn dag fyrst eftir áramótin. Þá kom líka þessi fáránlegi kuldi, sem ég átti erfitt með að meika, enda húsið ekki vel einangrað. Maður sat í teppi, með rafmagnsofninn á fullu, bara til að halda á sér hita. Engu að síður bjó ég í tiltölulega góðu húsi, í íbúð sem Golda Meir hafði eitt sinn átt og búið í.
En hvernig ætli ástandið sé þar sem húsakynnin eru slæm? Og hvernig ætli þeir hafi það, sem verst eru staddir?
Svo vill til, að ég fór einu sinni nokkra daga í sjálfboðamennsku hjá hjálparsamtökum þarna suðurfrá og smelltum við teppum og öðru slíku til fátækra fjölskyldna; fórum með gleraugu til nærsýnna barna, reiðhjól til haltra og fótveikra barna, útdeildum mat, osfrv. Þá var aldrei spurt, af hvaða þjóðerni eða trúarbrögðum viðkomandi væri. Ef deiluaðilar þarna suðurfrá myndu hætta að skjóta hvorn annan, væri meira en nóg hægt að gera við peninginn, sem sparast mundi.
![]() |
Snjókoma í Miðausturlöndum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 27. desember 2006
Jólin hjá Werner Gerlach 1939
Jæja, datt í hug að skjóta fram hluta af gömlu handriti, sem ég gróf upp úr hirslum mínum. Vonandi verður þetta upplýsandi fyrir einhverja. Kv. SGBergz
Haustið 1939 var annatími hjá Gerlach. Þá sáu menn stríðsbjarma í fjarska og evrópsku stórveldin hófu að leggja smiðshöggin á undirbúning stríðsreksturs. Flotamálaráðuneytið í Berlín sendi skeyti til þýskra skipa á Atlantshafi, hinu sögulega áhrifasvæði Breta, aðvöruðu skipstjóra þeirra um mögulega árekstra við bresk herskip og skipuðu þeim að leita vars í hlutlausri höfn. Á haustdögum 1939 komu nokkur þýsk flóttaskip til Reykjavíkur, auk kafbáta og annarra miður velkominna skipa. Þegar í ágústlok birtist hér skipið Erika Hendrik Fisser, skömmu síðar Sardinen og svo bættust þau við eitt af öðru: Hamm, Lübeck og Bianca. Þessi skip lágu nærri hvert öðru á Viðeyjarsundi og biðu örlaga sinna. Á meðan reyndi Gerlach að smygla þeim aftur til Þýskalands og tókst svo eftir mikið harðræði, eins og Þór Whitehead lýsir í bók sinni Stríði fyrir ströndum.[1] En Gerlach til mikilla skaprauna, neituðu nokkrir skipverja að sigla aftur til síns heima, einkum af ótta við hafnbann Breta. Svo fór þó að með hótunum og tiltölum tókst ræðismanninum að sannfæra flesta þeirra, en eftir sátu þrír ungir menn af Eriku Hendrik Fisser og kyndarinn af Sardinien. Hétu þeir Günther Schild (léttadrengur, f. 1923), Waldimar Eckmann (háseti, f. 1923), Karl Heinz Salewski (aðstoðarmaður, f. 1921), og Erich Schleicher (kyndari, f. 1911). Þessir menn voru þyrnar í síðu Gerlachs. Þeir væru óvinir Þriðja ríkisins og höfðu flúið á brott frá skyldum sínum, væru liðhlaupar og svikarar við föðurlandið. Slíkir menn ættu þunga refsingu skilda að mati ræðismannsins. Gerlach ók því á Benzinum sínum til fundar við Stefán Þorvarðsson.
Að undirlagi Gerlachs lét Hermann Jónasson dómsmálaráðherra vista þá á vinnuhælinu að Litla-Hrauni. Samkvæmt þröngum lagaskilningi var ákvörðun Hermanns réttlætanleg, þótt til dæmis Alþýðublaðið og Þjóðviljinn hefðu gagnrýnt aðfarirnar harkalega á mannúðarforsendum.[2] Samkvæmt íslenskum lögum bar þó að vísa úr landi erlendum ríkisborgurum, sem eftirlýstir væru í heimalandi sínu. En hvernig gátu Íslendingar sent mennina aftur til Þýskalands, þegar engar samgöngur voru orðnar við landið? Aukinheldur voru ekki í gildi samningar milli Íslands og Þýskalands um framsal sakamanna, þótt það muni hafa komið til tals um miðjan fjórða áratuginn, þegar Íslendingar spurðust fyrir um afdrif Óskars Vilhjálmssonar garðyrkjustjóra Reykjavíkur, en hann hafði flúið réttvísina til Þýskalands, þar sem hann lést síðar í fangabúðum nasista.[3] Því var eðlilegasta lausnin sú, úr því að íslenska ríkisstjórnin viðurkenndi ekki rétt þeirra til hjálpar vegna ríkjandi aðstæðna og stöðu þeirra sem flóttamanna, að koma þeim fyrir á Litla-Hrauni. Líklegt verður þó að teljast, í ljósi samskipta ríkisstjórnarinnar og Gerlachs, að þessi ákvörðun hafi einkum verið gerð til að losa ráðamenn við nöldrið í Gerlach, sem þeir voru orðnir langþreyttir á að sitja undir á dimmum haustkvöldum.
En ræðismaðurinn var síður en svo laus við ungu flóttamennina. Hann sagði svo frá í bréfi til íslenskra stjórnvalda:
Hinir fjórir þýzku sjómenn...hafa, svo sem konsúlatið hefir komizt að raun um, dvalið yfir jóladagana í Reykjavík. Strax þann 23. des. sáust þeir á veitingahúsinu Hressingarskálinn" í Austurstræti. Um eftirmiðdaginn þann dama dag gerðist einn þeirra meira að segja svo djarfur að spyrjast fyrir um innkominn póst á konsúlatinu. Næstu daga sáust þeir hvað eftir annað í bænum. Þeir gistu á sjómannaheimili Hjálpræðishersins og fengu greiða á matsölu frú Mörthu Björnsson, Hafnarstræti 4. Nóttina milli 25. og 26. desember voru óeirðir hafðar í frammi fyrir framan konsúlatshúsið og óhreinkaðist þá á hinn versta hátt fullveldismerki þýzka ríkisins á garðshliðinu.[4]
Og Gerlach vissi hvaðan skotin komu, því hann hafði heyrt það frá njósnurum sínum í bænum, að Wilhelm Beckmann hafi fengið flokksbræður sína í Alþýðuflokknum til að láta þá lausa yfir hátíðirnir. Og sama mann hafði hann grunaðan um að hafa verið hvatamanninn að uppreisninni á Viðeyjarsundi."[5] Svo segir í punktum Gerlachs: Liðhlaupamálið er hneyksli. Um jólin [var] hlaðið á þá gjöfum hér í bænum. Sagt er að Beckmann hafi fengið frí fyrir þá hjá utanríkisráðherranum. Beckers segir að einn þeirra hafi sagt þegar hann var spurður hvort þeir gerðu sér ekki ljóst að þeir hafi eyðilagt líf sitt: Okkur langar ekkert til að láta skjóta okkur.""[6] Ríkisstjórnin beiddist undan því að halda aurkastsmálinu" áfram, en tjáði þó Gerlach að Beckmann hafi ekkert haft með lausn fanganna að gera, heldur annar góðvinur" ræðismannsins, Paul Künder. En Gerlach var nokkuð sama hvor þeirra átti í hlut. Þór Whitehead segir svo frá:
Útlagarnir Beckmann og Künder voru báðir óalandi og óferjandi landráðamenn í augum ræðismannsins og hann hafði látið íslensku ráðherrana heyra, að honum blöskraði, að Stefán Jóhann Stefánsson utanríkisráðherra skyldi dirfast að leggja lag sitt við slíka menn. Til að bíta höfuðið af skömminni hafði dómsmálaráðuneytið nefnt Künder Þjóðverja." Enginn Þjóðverji væri til með því nafni í Reykjavík. Þar byggi reyndar Paul nokkur Christian Künder, en ekki leyfðist að nefna hann Þjóðverja, þessi persóna" hefði verið svipt ríkisborgararétti í Þýskalandi fyrir þremur árum.[7]
Künder og Beckmann voru helstu hatursmenn ræðismannsins, einkum sá þeirra, sem Gerlach taldi vera hreinræktaðan aría" og því herskyldan í Þýskalandi. En annars var Gerlach ánægður með árangur haustsins. Hann hafði komið særðum kafbátsmanni í öruggt skjól, hjúkrað öðrum og komið fimm flóttaskipum undan, allt í trássi við íslensk lög. En mál útlaganna skyggði þó á gleði hans, sem birtist í bréfi til Heinrich Himmlers, en þar kvartar hann undan hatri", sem útlagi einn hefði lagt á sig: Maður þessi, sem væri ,kommúnisti' og ,njósnari Breta', hefði spillt nokkuð fyrir starfi þeirra." Hér átti hann vísast við Beckmann, sem var þá undir vernd Stefáns Jóhanns Stefánssonar.[8]
Frásögn Gerlachs af Reykjavíkurferð strokumannanna er í meginatriðum rétt, þótt dálítið hafi slegist til í heimildasöfnun hans, því samkvæmt fangelsisbók Litla-Hrauns og yfirheyrslum yfir mönnunum, höfðu þeir farið frá vinnuhælinu á aðfangadag og haft það náðugt yfir jólahátíðina í Reykjavík. Frásögn þeirra er mjög trúverðug, því gistiheimili Hjálpræðishersins lokaði klukkan eitt eftir miðnætti, klukkutíma áður en aurkastið átti sér stað við Túngötu 18. Samkvæmt vitnisburði fjórmenninganna hafði fimmti maðurinn" veitt þeim félagsskap þá um kvöldið og reyndar gaukað að þeim víni. Var þar á ferðinni góðkunningi Gerlachs, útlaginn Beckmann, sem þótti dálítið hallur undir Bakkus og hafði setið að sumbli með öðrum útlögum allt kvöldið, fyrst hjá vini sínum Künder og síðan hjá Albert Klahn.[9] Þeir félagar heimsóttu síðan Kurt Sonnenfeld tannlækni, sem bjó á Öldugötu, og saman fóru menn þessir niður á Túngötu og skyldu eftir sig menjar.
Jólin 1939 stóðu því ekki undir væntingum Werners Gerlachs.
[1] Þór Whitehead: Stríð fyrir ströndum, 278-293.
[2] Ósæmileg meðferð"; Er þetta íslensk gentlemennska?" Alþbl. 25. okt; 20. nóv. 1939. Þjóðviljinn ræddi þetta mál einnig í sama dúr.
[3] Þessar upplýsingar koma frá Ásgeiri Guðmundssyni sagnfræðingi, sem rannsakað hefur líf og störf Óskars, sem síðar átti eftir að láta lífið í fangabúðum nasista.
[4] ÞÍ. UR. db. 2/965: Gerlach til Hermanns Jónassonar, 28. des. 1939.
[5] Þór Whitehead: Stríð fyrir ströndum, 284.
[6] ÞÍ. UR. Þýska konsúlatið 1896-1988", Punktar Gerlachs. Nafn Þjóðverjans er rangt lesið hjá breskum þýðendum. Arthur Beikers var þýskur sjómaður, sem settur hafði verið veikur á land.
[7] Þór Whitehead: Milli vonar og ótta, 56-58. Gerlach skrifaði: Þó að konsúlatið verði þess vegna að áskilja sér rétt til frekari skýringa í þessu sambandi þar til síðar, þá þarfnast þó eitt atriði í bréfi dómsmálaráðuneytisins leiðréttingar, nefnilega það, að Künder...sé þýzkur ríkisborgari. Konsúlatinu er ekki kunnugt um neinn þýzkan ríkisborgara á Íslandi með því nafni, en aftur á móti hefir konsúlatið komizt að raun um, að viss Paul Christian Künder, fæddur 17. okt. 1897 í Wandsbek, hafi verið sviptur þýzkum ríkisborgararétti með yfirlýsingu 2. des. 1936... ÞÍ. UR. db. 2/965: Gerlach til ríkisstjórnar Íslands, 9. janúar 1940.
[8] Þór Whitehead: Stríð fyrir ströndum, 288-289. Björn Th. Björnsson, símtal 17. sept 1997.
[9] ÞÍ. DR. db.....Sama heimild, Endurrit af útskrift úr dómsmálabók Árnessýslu, 15. febrúar 1940.
Saga | Breytt s.d. kl. 13:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 27. desember 2006
Sannir karlmenn=fjöldamorðingjar?
"Ég fórna mér. Ef það er vilji guðs, mun hann skipa mér með sönnum körlum og pislarvottum." Saddam Hussein.
Hvurs lags kjaftæði er þetta eiginlega í kallinum. Er það sönn karlmennska að myrða þúsundir manna með köldu blóði og stjórna merkilegu menningarríki með járnaga og kúgun?
Hussein virtist vera sterkur karakter, mikill leiðtogi (en siðlaus?). En þegar vopnin voru tekin frá honum, hvað kom þá í ljós? Jú, "kelling". Ræfill. Siðblind kveif, eins og Hitler og fleiri morðóðir einræðisherrar, sem reyndust kveifar þegar kúgunarvopnin voru tekin af þeim.
![]() |
Hussein segist reiðubúinn að fórna sér" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 27. desember 2006
Hefur Morgunblaðið lítið "sjálfsálit"?
Ég segi hér:
Morgunblaðið er besta blað á Íslandi. Mbl.is er besti fréttavefur landsins, og þótt víðar væri leitað.
En Morgunblaðið segir hér á blogginu, að:
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Aha, ef fullyrðing mín hér að ofan, endurspeglar "ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins", hlýtur blaðið að hafa mjög lítið sjálfsálit.
Ég held, að Moggamenn þurfi að endurskoða þetta og segja, að bloggin hér "þurfi ekki að endurspegla....", því það er orðið svolítið þreytt, að það sé alveg sama hvað menn blogga hér á blog.is, Mogginn er alltaf á öndverðri skoðun!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 27. desember 2006
Leslie Lynch King jr. látinn
Hann fæddist Leslie Lynch King jr. í Omaha, Nebreska, 14. júlí 1913, en áður en hann fagnaði sínum fyrsta afmælisdegi höfðu foreldrar hans skilið. Móðir hans giftist þá aftur, manni að nafni Ford. Hann tók þá upp nafnið Gerald Rudolff Ford, eftir stjúpföður sínum. Ford varð ágætis íþróttamaður og komst á íþróttaskólastyrk til University of Michigan, þar sem hann lauk BA-gráðu. Hann hélt áfram námi og kláraði laganám við Yale-háskólann.
Ford þjónaði í bandaríska flotanum á tíð síðari heimsstyrjaldar. Við heimkomuna hellti hann sér út í stjórnmálin með heimssýn, sem þótti full frjálsleg. Fyrir stríðið höfðu Repúblikanar almennt verið einangrunarsinnar, þjóðernissinnaðir, þröngsýnir og nánast fastir í þeirri heimsmynd, sem þróast hafði í lok fyrra stríðs. Ford kom með nýjan og ferskan andblæ inn í stjórnmálin, ásamt mörgum öðrum af hinni nýju kynslóð stjórnmálamanna. Í þeim krafti sínum hlaut hann ágæta kosningu til fulltrúardeildar Bandaríkjaþings 1948 fyrir Michigan og sat í því embætti til 1973. Þá hafði hann verið leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeildinni frá 1963. Árið 1973 var bandarískt samfélag klofið, m.a. vegna Víetnam-stríðsins og mannréttindabaráttu minnihluta hópa. Og Richard Nixon, Bandaríkjaforseti, var í vandræðum vegna Watergate-málsins. Nú gerðist það, að Spiro Agnew varaforseti sagði af sér og var þá Ford skipaður varaforseti, sá fyrsti, sem ekki hafði verið sérstaklega kosinn í það embætti. Ári síðar, 1974, sagði Nixon af sér og Ford tók við. Hann varð þá einnig fyrsti forsetinn, sem ekki hafði verið kosinn.
Ford-stjórnin annaðist brotthvarf Bandaríkjahers frá Víetnam og hafði í kjölfarið mikil áhrif á þá þíðu, sem komst á milli stórveldanna tveggja um þessar mundir. En hann hafði kefli að fótum sér. Annars vegar var hann harðlega gagnrýndur fyrir að veita Richard Nixon, fráfarandi forseta, sakaruppgjöf og einnig fyrir að ná ekki tökum á verðbólgunni. Bandarískt efnahagslíf var óvenju illa statt og var forsetanum vitaskuld kennt um, þótt ástæður þess hafi ekki síður verið þær, að Demókratar réðu fulltrúadeild Bandaríkjaþings og höfðu þar mikinn meiri hluta. Tilraunir Fords til umbóta strönduðu því á þinginu, þar sem Demókratar komu í veg fyrir helstu breytingar, stundum til þess eins að höggva í forsetann.
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings rak öfluga stjórnarandstöðu og tókst jafnframt að koma allri sökinni á forsetann, þegar í ljós kom, að efnahagslífið var á hraðri niðurleið. Því fór svo, 1976, að Ford beið lægri hlut fyrir Jimmy Carter, Demókrata frá Suðurríkjunum. (Heimild: Wikipedia)
Undirritaður hefur tvisvar setið námskeið um sögu Bandaríkjanna, fyrst hér heima hjá Bergsteini Jónssyni heitnum, en síðar við Háskólann í Leicester í Englandi. Í síðari skiptið var nokkuð rætt um forseta Bandaríkjanna, kosti þeirra og galla. Mér er það sérstaklega minnisstætt, þegar kennarinn, maður að nafni Bailey (ef ég man rétt) ræddi um forsetakosningarnar 1976 og sagði eitthvað á þá leið, að aldrei fyrr hafi jafn vanhæfir menn verið í framboði til forseta. Kannski hef ég tekið þetta inn á mig, en ég er, eftirá að hyggja, eiginlega sammála honum. Carter var hvorki búinn persónutöfrum Ronalds Reagans né gáfum Williams Clintons. Ford var á svipuðum slóðum, en virðist þó hafa verið persónulega betur útbúinn en Carter, sem að mínum dómi var og er ekki mikið ofan á brauð.
En Ford náði því, að verða elsti forseti Bandaríkjanna og var rúmum mánuði eldri en Ronald Reagan, þegar hann lést nú 26. desember 2006, 93 ára að aldri.
![]() |
Gerald Ford fyrrverandi Bandaríkjaforseti látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)