Færsluflokkur: Aulahúmor

Breskar konur flytjast til Ástralíu

Jæja, vandamál breskra kvenna virðist vera að leysast. Dæmigerðar breskar konur á þrítugsaldri geta nú flutt til Queenslands í Ástralíu til að ganga út.

Gasleki

Já, ég hefði aldrei átt að borða rúgbrauð með bökuðum baunum í gær.

Ofnæmi fyrir Svíum

Ja, breytir engu, því milljónir manna um allan heima hafa ofnæmi fyrir Svíþjóð og Svíum per se. Ég t.d. er með mjög slæmt ofnæmi fyrir Svíum, sérstaklega ef þeir eru handboltadómarar. Úff, þriðja neikvæða bloggið mitt um Svía í dag. Ekki að furða, þegar...

Á Sprengisandi

Já, þessir útreiðartúrar í óbyggðum geta stundum haft alvarlegar afleiðingar.

Er ég þá hatursglæpamaður

ef ég pissa bláedrú utan í girðinguna á KR vellinum? Hafðu þetta Sigurður .

Endurkjörinn formaður

Hljómar Agnarsson var í gærkvöldi kosinn formaður í Tilgangslausu hreyfingunni sem hefur það á stefnuskrá sinni að endurreisa sautjándu aldar götumynd Reykjavík, setja grasþökur yfir alla malbikaða vegi á landinu, brjóta niður býr og endurreisa kláfa og...

Missti kíló bara í gærkvöldi...

...þegar ég snyrti á mér bringuhárin.

Enn fleiri fréttir af Ólafi F.

Nú hefur skrifstofa borgarstjóra borið til baka sögusagnir þess efnis, að hann sé borgarstjóri. Það hafi verið á misskilningi byggt. Jafnframt er borið til baka að skrifstofa borgarstjóra sé í raun skrifstofa borgarstjóra. Síðan er borið til baka það sem...

Hvað ætli finnist á slóðum Egils í Mosó?

Silfrið? Appelsínið? Ölið? Sverðið?

Lindsay Lohan-skúbb

Jæja, feluleikurinn heldur áfram. En ég hef það eftir óábyggilegum heimildum að hún sé að þessu því hún sé svo skotin í Vilhjálmi Erni Vilhjálmssyni . Ja, gaman að fleiri en dónalegir sósíalistar og fleiri rugludallar séu með Villa á...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband