Laugardagur, 2. ágúst 2008
Rafmagnslaust í Eyjum
Þegar S. Bergz Junior er að sprella í Eyjum er mjög líklegt að eitthvað svona komi fyrir. Til vara giska ég á að Árna Johnsen hafi vantað millistykki.
![]() |
Rafmagnslaust í Eyjum í stutta stund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 2. ágúst 2008
Hér á að koma gáfulegur titill
En ég fann engan. Sundhöllin kannski?
En a.m.k. vildi ég vekja athygli á því að þetta hlýtur að vera slæmur dagur ef smíða þarf brú í kjaftinn á manni, svo Karíus og Baktus komist á milli svæða.
![]() |
Stórslasaði sig á sundlaugarbakka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 2. ágúst 2008
Bakkabræður
Sagan um Bakkabræður hefur nú breyst. Nú er um að ræða Bakkasystkinin; Össur, Þórunni og Árna Finnsson.
Ég held þó að a.m.k. Össur sé skarpari en skólakrakki, en um hin tvö er mjög erfitt að fullyrða neitt. A.m.k. er afar fátt sem þau gera "meikandi sens", í mínum huga amk.
Kannski er ég bara svona vitlaus?
![]() |
Óhaggaður stuðningur við álver á Bakka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 2. ágúst 2008
Gott hjá Ingibjörgu
Já, mjög gott.
En á meðan hún er á stöðugum þvælingi út um allan heim er hinn hauslausi her heima á Íslandi að spila rassinn úr buxunum.
Já, mjög gott.
Og þar að auki, að meðan Ingibjörg er utanlands tekst henni ekki að gera neinn skandal hér heima.
Já, mjög gott.
![]() |
Ingibjörg Sólrún heiðursgestur á Íslendingadeginum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 1. ágúst 2008
Hans Petersen og co á hausnum - tímarnir breytast
Ég er svo aldeilis hissa. Kannski hefur þessi farsímabissness farið með fyrirtækið á hausinn. Maður hélt nú að HPet væri stöndugt, en hvað var þetta að fara að gera út á það sérstaklega að selja farsíma þegar amk sum símafyrirtækin gefa þá?
Og síðan skilst mér að fólk sé hætt að framkalla. Jafnvel pabbi gamli, maður að nálgast eftirlaun og lítið tæknivæddur, lódaði myndirnar úr sumarfríinu í tölvuna, keypti tölvupappír einhvers staðar og prentaði myndirnar út á fínan pappír, alveg jafn flottar myndir og hjá Hans Pet, en fyrir samasem ekkert.
Hvað á þá Hans Pet að selja? Ljósmyndavélar?
Þær má kaupa miklu ódýrara í fríhöfninni eða í útlöndum; þangað sem flestir landsmenn ferðast hvort sem er amk einu sínni á ári, ef ekki oftar og geta versað myndavélar þar, hafi þeir áhuga.
En ég sá flotta plötuspilara fyrir LP í búðarglugga í dag, kosta bara nokkra tugi þúsunda. En DVD spilarar kosta 5000 kall og menn hlusta orðið á músík í Ipod / Mp3 spilara, eða bara í tölvunni.
Já, tímarnir breytast.
![]() |
HP Farsímalagerinn gjaldþrota |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 1. ágúst 2008
Hér sést mynd af tvíburunum (tekin af netinu)

![]() |
Bitust um myndir af tvíburunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 1. ágúst 2008
Ekki er allt sem sýnist
Þessi náungi vill fá amk 100.000 pund á viku, eða miklu, miklu meira en aðrir leikmenn félagsins. Svona gaura á bara að losa sig við, ef kostur er.
En 100.000 pund á viku fyrir leikmann sem hefur bara getað eitthvað eitt tímabil er fáránlegt, enda verður það vísast ekki gert.
Ef hann skorar 40 mörk þetta season má alltaf skoða málin upp á nýtt.
![]() |
Adebayor ætlar að halda kyrru fyrir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 1. ágúst 2008
Guðjón Þórðar: Býrð ekki til kjúklingasalat úr kjúklingaskít
Aldeilis kaldar kveðjur frá Guðjóni til "strákana". Þeir eru semsagt rusl og drasl, hvorki meira né minna. En þeir sýndu þó gegn Finnunum, að þjálfarinn var vandamálið, ekki liðið.
Kallinn er búnað missa það. Hann ætti að skammast sín og hunskast í felur áður en Skagamaður í vondu skapi heilsar honum að sjómannasið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 1. ágúst 2008
iórh ruttöh
![]() |
Með 62 milljónir á mánuði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 1. ágúst 2008
Á að vera formsatriði.
Þetta hlýtur að verða formsatriði hjá mínum mönnum í Arsenal. Twente liðið reyndar ágætt en þjálfarinn afar slakur.
Síðan verður spennandi að sjá hvernig Standard Liege vegnar í riðlakeppni Meistaradeildarinnar
![]() |
Arsenal mætir liði McClarens og Bjarna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)