Þriðjudagur, 27. mars 2007
Afsakið biðina, vinsamlegast bíðið
Jæja, ég á víst að skila skattaskýrslunni í dag. Hún er tilbúin, nema ein villumelding kemur upp, varðandi samspils virðisaukahlutans og rekstrarskýrslunnar. Ég hef reynt allt, en get ekki lagað þetta.
Nú, ég reyndi að hringja í gær. Beið þá í hálftíma, en komst ekki að. Ég reyni aftur núna. Ég hef, þegar þetta er skrifað, beðið í tæpar 20 mín. Enn ekki kominn að. Og síðan fær maður rödd á hálfrar mínútu fresti, og segir hún:
Afsakið biðina. Vinsamlegast bíðið.
Mér finnst að skatturinn ætti að veita aukinn frest, úr því þeir geta ekki veitt mönnum neina hjálp við framtalninguna, nema með því að láta fólk bíða í klukkustund í símanum eftir aðstoð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 27. mars 2007
Langavitleysa!
Í fyrsta lagi: hverjum dettur í hug að nefna þorp svona löngu og fáránlegu nafni.
Í annan stað: það mun enginn getað slegið þetta nafn inn á netinu...eina leiðin að slá á link.
Í þriðja lagi: venjulegt fólk sofnar áður en það klárar að slá þetta inn.
Langavitleysa.
![]() |
Lengstu slóðirnar á netinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 27. mars 2007
Cliff í Kastljósinu
Ég horfði á Sör Cliff Richard í Kastljósinu í gær.
Ég vil byrja á því að hrósa stelpunni, sem tók viðtalið. Hún stóð sig vel.
En mikið var Cliff góður í viðtalinu. Hann fór vítt og breitt, var vel að máli farinn og margt sem hann sagði var mjög athygli vert. Hann var kurteis og laus við stjörnustæla, alúðlegur við spyrjandann og kom vel fyrir. Ergo: ég hreifst mjög af kallinum!
Ég varð mér úti um, fyrir nokkrum mánuðum þegar ég fékk 60s kast, safnplötu Shadows. Kannski ég spili hana á eftir til heiðurs gamla manninum?
![]() |
Cliff Richard kominn til tónleikahalds |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 26. mars 2007
Andri Snær rist-aður?
Ég náði loksins að klára þann hluta verkefnisins sem ég ætlaði að klára í kvöld. Þá kom tími til að kíkja á Kastljósið, þar sem ég vissi af Andra Snæ og Rannveigu Rist ræða um stækkun álversins í Straumsvík.
Ég verð að segja, að Andri Snær olli mér vonbrigðum. Hans einu röksemdir voru þau, að svo og svo mikil orka væri til í landinu og hvað mikið af þeim pakka lendi í Straumsvík. Hans röksemdir voru þær sömu og hinar, sem notaðar eru gegn því að flytja flugvöllinn í Vatnsmýrinni: Þetta skipti alla landsmenn máli.
En ég sé ekki að það snerti mig nokkuð, hvort álverið sé svo og svo stórt eða svo og svo lítið. Ég fer bara út á flugvöll nokkrum sinnum á ári, max. Að öðru leyti snertir það mig ekkert.
Mér fannst Rannveig Rist koma vel út úr þessu viðtali. Eg held, að hún hafi farið langt með að tryggja álverinu áframhaldandi rekstur...og þá í stærri útgáfu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 26. mars 2007
Alvöru menn?
Af hverju sendum við Íslendingar ekki fulltrúa okkar í þennan hóp "alvöru manna"?
Ég hefði t.d. sómað mér vel þarna!
![]() |
Leita að alvöru mönnum á ástarsögurnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 26. mars 2007
Kannski þeir gerist Íslandsvinir fljótlega?
Þessir bræður eru sterkur markhópur fyrir Íslandsvinavæðinguna.
Spurning há þey vill læk Æsland?
![]() |
Bretaprinsar döðruðu drukknir á næturklúbbum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 26. mars 2007
Ætli Sigurður Tómas fái að versla í Bónus?
Síðan er auðvitað allt annar handleggur, hvort hann vilji það?
Þetta Baugsmál er orðið langt og leiðinlegt. Flestir vilja að því ljúki, sumir vilja sýknu aðrir sakfellingu.
Mér er eiginlega alveg sama. Ég vil bara að því ljúki.
![]() |
Sigurður Tómas: Framburður Jóns Ásgeirs ekki trúverðugur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 26. mars 2007
Smá pæling um pólítík Spaugstofunnar
Einhver sagði mér nýlega, að amk þrír af fimm Spaugstofumönnum væru í Samfylkingunni. Þar var átt við Sigurð Sigurjóns, Pálma og Örn. Ég vissi amk um Sigga, en hinir gætu alveg passað. Þeir hafa það góðan húmor fyrir sjálfum sér, að þeir hljóta að vera kratar.
En a.m.k: Spaugstofan hefur eins lengi og ég man eftir mér lagt til atlögu við stjórnvöld í landinu með gríni og ýmsum athugasemdum.
En hvenær hættir grín og áróður tekur við? Hvað hefði gerst, ef Spaugstofumenn hefðu tekið upp málstað Alcans í þessu gríni sinni og rekið áróður fyrir álveri? Þeir segjast vera "stjórnarandstaða", en Alcan málið er hvorki stjórn né stjórnarandstaða, beinlínis, heldur þvert á pólítískar línur.
Eru þeir þá ekki að reka (grín)áróður fyrir sínum eigin pólítísku skoðunum?
Fóru þeir ekki líka yfir strikið þar. Mér finnst reyndar að þeir hafi æði oft farið yfir strikið í umfjöllun sinni um stjórnmálamenn og stjórnmálaflokka. Og Samfó hefur nær aldrei fengið neinar gusur frá þeim, jafnvel þegar ærin ástæða var til.
Er þá ekki Spaugstofan pólítísk?
Er ekki kominn tími til að spyrja sig þeirrar spurningar, nú í aðdragana kosninga, hvort Spaugstofumenn muni ekki halda áfram að reka andóf gegn stjórnarflokkunum, en veita sósíalistaflokkunum þegjandi samþykki sitt?
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 26. mars 2007
Dæmum þá til hæstu refsingar!
Refsingin: að þurfa að horfa á alla þætti Svínasúpunnar, Strákanna og Stelpnanna. Verri refsingu geta þessir drengir varla fengið.
En þótt sumum finnist lögin asnaleg, eru þetta gildandi lög í landinu og eftir þeim verður að fara.
![]() |
Spaugstofumenn brutu lög um þjóðsönginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 26. mars 2007
Hollywood stjarna í axlabandaslysi!!

![]() |
Hillary Swank slasaðist í axlabandaslysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)