Föstudagur, 12. september 2008
1962?
Hefur virkilega ekki orðið viðhorfsbreyting í þessum málum frá 1962? Þá fer maður nú að skilja þetta aðeins betur.
E.t.v. er kominn tími hjá ríkinu að fara að uppfæra hugbúnaðinn.
1962 var maðurinn á myndinni til hægri á hátindi ferils síns. Já, þetta er langt um liðið.
En merkilegt hversu sum nöfn sitja undir áföllum í dag.
Gunnar Björnsson samninganefndarformaður og skrifstofustjóri fær aðeins skot í þessari frétt, amk skv. mínum skilningi. Önnur frétt segir að Gunnar Björnsson prestur hafi verið kærður. Og síðan er það Gunnar Björnsson, don Hellismafíunnar og valdamesti maður skákhreyfingarinnar, en menn hans í Helli töpuðu í gærkvöldi fyrir Bolvíkingum í hraðskákkeppni taflfélaga og virðist hann enn vera að ná sér eftir þau ósköp.
![]() |
Gögn sögð sýna samráð um uppsagnir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 12. september 2008
Nýjasta tískan í alþjóðasamskiptum
Jæja, nýjasta tíska í alþjóðasamskiptum er nú að reka sem flesta sendiherra úr landi á sem skemmstum tíma.
Spurning hvort Íslendingar ættu ekki að fara að taka þátt í leiknum?
![]() |
Cávez vísar sendiherra Bandaríkjanna úr landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 12. september 2008
Dýrt að brjóta útivistarreglur
já, og það, að hafa stolið bíl foreldra sinna og stefnt sjálfum sér og öðrum í stórhættu.
Mig grunar að stráksi lendi í vandræðum út af þessu!
![]() |
Réttindalaus á rúntinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 12. september 2008
Hefur Svíi úrslitaáhrifin á bandarísku forsetakosningarnar?
Það kæmi manni ekki á óvart þó þetta myndband Svíans myndi skila McCain miklu. Hér er minnt á að McCain hefur fórnað og lagt á sig fyrir Bandaríkin. Obama situr hjá meðan bræður hans lifa fyrir neðan fátækramörk.
Manni finnst eins og straumurinn liggi til McCains, eins lengi og myndin af honum og Nixon verði ekki of útbreidd!
![]() |
Mynd fannst af McCain er honum var sleppt úr prísund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 12. september 2008
Eimskip ekki XL lengur
Nei, Eimskip er greinilega ekki Extra Large lengur. Fyrirtækið, sem var risi fyrir ekki svo löngu síðan, er nú upp á náð og miskunn annarra komið.
Það er svona að fara offari í spákaupmennsku og áhættufjárfestingum, vísast ásamt mistökum af ýmsum toga.
Það er eins og Stonestone segir: "Það kostar."
![]() |
Tugþúsundir strandaglópa vegna gjaldþrots XL |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 11. september 2008
Dvergarnir með derring
Jæja, smáríki eru farin að þora að standa uppi i hárinu á Sovétríkjum Norður-Ameríku. Ég er nú ekki hrifinn að þessum Morales en hef lúmst gaman að því þegar smáríkin stríða Sovétmönnum.
![]() |
Segja Morales hafa gert grafalvarleg mistök |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 11. september 2008
Deilt og rifist
Merkilegir þessir eðlisfræðiprófessorar.
A: Pabbi minn er sterkari en pabbi þinn.
B: Nei, pabbi er svo lögga.
A: Isspiss, pabbi minn er í víkingasveitinni.
B: Ojbarasta, pabbi minn er í KR-liðinu.
osfrv.
En alltaf gaman að sjá menn af þessu kaliberi rífast svona heiftarlega.
![]() |
Eðlisfræðiprófessorar í hár saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 11. september 2008
Vestfirðingar eru greinilega af ýmsum toga
Fáa "hópa" Íslendinga líkar mér jafn vel við og Vestfirðinga. Það virðist vera eitthvað sérstakt við firðina fögru fyrir vestan að frá þeim streymir kjarnmikið, hörkuduglegt og yfirleitt mjög heiðarlegt fólk. Til að mynda hef ég kynnst mörgum Bolvíkingum, aðallega í gegnum skákina, og fyrir utan hefðbundna kosti Vestfirðinga hafa þeir mikið vit á fótbolta, en þeir, sem ég þekki best þaðan, halda báðir með Arsenal í enska boltanum.
En Vestfirðingar eru þó ekki einsleitir, enda aðskildu e.t.v. fjöllin miklu norðurfirðinga frá sunnanmönnum. Þetta má sjá af þessari frétt um að brotist hefði verið inn í fimm bíla í Bolungarvík. Þó vísast sé sá möguleiki fyrir hendi, að aðkomumenn hafi verið þar á ferð, er ljóst að amk hafa einhverjir búsettir á svæðinu staðið fyrir þessu.
Því má segja, að ólíkt hafist þeir að fyrir vestan. Í Bolungarvík eru bílainnbrotsþjófar, en "Bíldælingar" a.m.k. sumsstaðar á fjörðunum hið syðra.
![]() |
Brotist inn í bíla í Bolungarvík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 11. september 2008
Þreytt.is/verulega_þreytt
Ég þoli ekki svona daga. Ok, ég er sallarólegur svosem, en samt innst inni pínulítið pirraður. Reyni bara ekki að láta það berast út.
Þetta er einn af þessum dögum þegar maður bíður eftir miðnættinu og svefndrunga næturinnar.
Æjá, ég hef samasem ekkert náð að gera í dag, af því sem ég ætlaði mér. Og sumt hef ég gert, sem ég ætlaði ekki að gera, t.d. að taka inn augmentin við þessari ofurþreytandi ristilbólgu. Að vísu get ég glaðst yfir því, að þetta er óvenju mild útgáfa. Ég hef semsagt séð það verra. En þreytt.is engu að síður.
Í kvöld er oggolítið skákmót. Ég er nú formlega séð hættur keppni; búnað setja skákbækurnar niðrí kassa. En maður grípur samt í eitt og eitt hraðskákmót, rétt til að gleyma þessu ekki alveg. Og nú er það liðakeppni, svo maður verður að mæta, sé þess einhver kostur. Við TRingar höfum misst svo marga leikmenn að undanförnu til vestfirska Chelsea City og annarra, að það munar um hvern mann.
Ætli maður láti sig ekki hafa það að mæta, amk fyrst um sinn; sjá svo bara til hvernig maður verður.
En vegna þessa sit ég nú bara við tölvuna og dúlla mér. Þess vegna hef ég m.a. tíma til að bulla, eins og ég geri núna. En svona "húsmóðurblogg" er þó ekki í mínum stíl. Yfirleitt blogga ég bara til að fá útrás, halda umferð á bloggsíðuna svo hún haldist virk og geti þannig styrkt aðrar bloggsíður mínar (og þær aftur á móti styrkja síður umbjóðenda minna! djobbið sko), eða til að hæðast að margs konar furðulegum fréttum á mbl.is. Einstaka sinnum birti ég brot út þeim þúsundum síðna sem ég skrifaði á árum áður þegar ég nennti og mátti vera að, eða var í skóla.
Kannski ég fari að lauma slíkum síðum inn aftur, rétt til að hafa þetta ekki bara "einlínu aulahúmor" eins og einhver kallaði bloggfærslurnar mínar fyrir ekki svo margt löngu. En maður sér bara til, eftir því sem tími gefst.
En jæja, fyrsta húsmóðurblogginu mínu í langan, langan tíma er hér með lokið. En hvaða haus ætti ég að setja upp fyrir næsta blogg?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 11. september 2008
Minnismerkið við Pentagon
Ég átta mig ekki alveg á því, á þessari mynd, hvar þetta minnismerki er, en í fljótu bragði virðist það rétt hjá METRO stöðinni í Pentagon og strætóstöðinni.
Ég kom á Pentagon Metro nánast á hverjum degi meðan ég bjó i Alexandriu, Virginiu. Þá tók ég strætó niður á Pentagon og Metroið þaðan og yfir í Washington "Mall", þar sem ríkisstofnanirnar eru amk margar til húsa. Þar starfaði um hríð.
Þetta er kunnuglegt svæði, en ég kem þessu samt ekki fyrir mig alveg.
En að öðru: Ég er kannski farinn að kalka, en ég man ekki betur en að Pentagon væri hinumegin við Ptomac fljót og því formlega séð í Virginíu, en ekki í Washington. Skiptir kannski engu máli svosem.
![]() |
Minnismerki um hryðjuverk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)