Laugardagur, 23. ágúst 2008
Góður strákur
Ég las greinina alla í Mogganum í morgun. Þetta er alvöru karakter, ungur maður sem hefur harðnað í stormum sinna tíða.
Gaman að fá svona mini-bio um leikmenn, þá sér maður þá í nýju og e.t.v. réttara ljósi.
En það kæmi varla á óvart ef hann loki markinu gegn Frökkunum. Hann virðist hafa hausinn í lagi og það er yfirleitt fyrsta skrefið í því að ná árangri á þessu sviði eins og flestum öðrum.
Þó það sé talið óæskilegt t.d. í stjórnmálum, er bæði góður karakter og hagkvæm reynsla í aðstæðum þegar stormar blása til að gera fólk hæfara. Ekki skemmir fyrir að hafa lesið allt sem hægt er að lesa um handboltamarkvörslu og notið leiðsagnar Hellströms.
Ég hef fulla trú á að þessi fulltrúi FRAM í landsliðinu muni verða hetjan okkar í fyrramálið.
![]() |
Handboltinn bjargaði honum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 23. ágúst 2008
Handboltalandsliðið fær traustsyfirlýsingu
Já, þetta er viðurkenning fyrir liðið, ekki síður en Ólaf, Snorra og Guðjón Val.
En mér er spurn: hvaða stórlið í Evrópu munu gera tilboð í Snorra Stein í næstu viku? Eða amk spyrjast fyrir um kappann?
Einn af albestu leikstjórnendum heims hlýtur að enda með uber stórliði en ekki liði frá smáborg í Danmörku?
En til hamingju strákar.
Nú er að taka Frakkana á morgun.
![]() |
Guðjón, Snorri og Ólafur í úrvalsliði Ólympíuleikanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 23. ágúst 2008
Framferði Rússa í Georgíu
Merkilegt er hversu þeir, sem harðast gagnrýna Bandaríkjamenn fyrir Írak og Afghanistan, þegja nú flestir þunnu hljóði, þegar Rússar þverbrjóta samninga eftir að hafa ráðist inn fyrir viðurkennd landamæri fullvalda ríkis og hegðar sér þar eins og verstu ruddar.
Og ekki þannig að Georgíumenn hafi verið hættulegir alþjóðafriði; þeir vildu bara ráða yfir því landi, sem liggur innan landamæra ríkisins.
![]() |
Rússar vakta hafnarborgir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 23. ágúst 2008
Obama velur reynsluna
Jæja, þá mun Obama velja sér reynslubolta sér til hægri handar, vísast til að vega upp á móti eigin reynsluleysi.
Og hver er betri til að sigra McCain, en maður sem er úr svipuðum ranni dreginn og er þar að auki lýkur frambjóðanda Repúblikana?
Kannski hefði Samfó átt að leika þennan leik með því að bjóða Örn Árnason fram, í gervi Davíðs Oddssonar, hér á árum áður.
En jæja, í öllu falli efast ég um að þetta hafi verið sniðugt hjá Obama, því mig grunar að amk töluverður hluti stuðningsmanna Clintons, þó ekki sé nema 25%, muni annað hvort sitja heima eða kjósa McCain, þó ekki sé nema til að refsa Obama.
![]() |
Obama velur Joseph Biden |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 23. ágúst 2008
Verður þinn vilji?
Já, vonandi, takk fyrir.
Ég var reyndar að frétta að Frakkarnir munu beita leynivopni, dirty trick, gegn Íslendingum. Frakkarnir eru nú byrjaðir að borða heilu hvítlauksfarmana og verða albúnir þegar kemur til leiks.
Þegar Íslendingar nálgast vörnina munu þeir síðan anda og anda, blása og blása, svo Íslendingar verði að skjóta langt, langt fyrir utan.
Gulli...lll...li...
![]() |
„Ég vil fá gullið og þjóðsönginn“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 23. ágúst 2008
Olíuverð hrapar
Jæja, einhver verðlækkun var hjá íslensku olíufélögunum í gær, en erfitt að henda reiður á hversu mikil hún var, því t.d. Mogginn vísar í ódýrasta verðið hjá Orkunni til merkis um lækkun, en maður sá ekki alveg hvaða lækkun hefði orðið hjá t.d. Olís, N1 og Shell.
En nú hlýtur bensínverð á Íslandi að halda áfram að lækka.
Góðar fréttir.
Þetta ætlar að verða góð helgi -- hvað mig snertir -- e.t.v. að undanskildu væli vegna hnémeiðsla og skólastjóra sem gengur aftur í barndóm.
![]() |
Olíuverð hrapar á heimsmarkaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 22. ágúst 2008
Ofbeldisfullur brjálæður með veruleikafirrtan huga
Finnst honum virkilega allt í lagi að hafa sent þessar blóðþyrstu morðingjasveitir til Darfúr til að drepa, pynta, nauðga, og leggja heimili fólks í rústir?
Klikkaður maður og má mín vegna dæma í lífstíðarfangelsi eða þaðan af verra.
![]() |
Samsæriskenningar um ákærur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 22. ágúst 2008
Loksins, loksins
Loksins eigum við bæði klassa vörn og klassa markmenn á sama tíma. Forðum varði Óli Ben eins og berserkur en spilaði með miðlungsliði með aðeins örfáa klassaleikmenn. Síðan áttum við kannski góða vörn en slaka markverði, etc.
En núna eigum við góða markmenn, góða vörn og....merkilegt nokk, frábæra sóknarleikmenn líka
Þess vegna erum við komnir í úrslit ÓL.
Norsarinn
fattar
þetta
![]() |
Norski landsliðsþjálfarinn spáir Íslendingum sigri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 22. ágúst 2008
Obama í kofa
Þetta hlýtur að verða vopn á myllu McCains og frönsku kartaflnanna hans. Obama veður um með fulla vasa fjár og hefur ekki ráð á að lauma nokkrum dollurum til bræðra sinna, sem búa við slíkar aðstæður.
Ef hann getur ekki sýnt bræðrum sínum hjálparhug, eða rétt þeim hjálparhönd, hvernig á hann að vilja hjálpa þeim Könum sem eiga um sárt að binda?
En nú fer semsagt áróðursmaskína McCains af stað
Þetta hlýtur að verða Obama erfiður biti að kyngja.
![]() |
Bróðir Obama fátækur einsetumaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 22. ágúst 2008
Danir loks að fatta þetta!
Ólafur Stefánsson er einfaldlega einn af þremur til fimm bestu handboltamönnum sögunnar. Ekki spurning. Og hann hefur verið meðal þeirra allra bestu í heiminum í meira en áratug.
En gaman að sjá skandinavísku miðlana svona vinsamlega Íslendingum.
![]() |
Sköpunarkraftur af öðrum heimi" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)