Miðvikudagur, 20. ágúst 2008
Mikið áfall fyrir Ingibjörgu Sólrúnu og Varnarmálastofnunina
Rússar hætta hernaðarsamvinnu við NATO lönd. Núna verðum við að æfa með Könum og Bretum, t.d.
Ég er viss um að Samtök hernaðarandstæðinga eru pissed, enda er rússneski herinn sá eini sem beita má hervaldi, að mati samtakanna, sem gagnrýndu ekki hernað Rússa í Georgíu, mér vitanlega, en amk fór ekki mikið fyrir því, þó eldflaugadæminu í Póllandi væri mætt.
En semsagt, áfall fyrir íslenska sósíalista, núverandi og fyrrverandi.
![]() |
Rússar ætla að slíta hermálatengsl við NATO |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 20. ágúst 2008
Dansk-þýska gildran?
Jújú, Spánverjarnir hafa mætt okkur sex sinnum á þessu ári og hafa tölfræðina með sér.
En nú er Gummi tittur kominn til valda og hefur þetta allt á hreinu.
En vonandi að fleiri Spánverjar tjái sig um íslenska liðið og helst með háðslegum hætti. Þá yrði a.m.k. Fúsi alveg snældubrjálaður!!
En það dugði amk hvorki Dönum né Þjóðverjum að hæðast að Íslendingum og telja okkur handboltamuppet.
En nú er bara að bíða spenntur. Áfram Ísland.
Og afsakið þetta... en ég er allur í handboltanum í dag.
![]() |
Óttast ekki Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 20. ágúst 2008
Þorgerði og Ólaf Friðrik til Bejing
En Þorgerður má snúa aftur strax aftur, vonandi með gulldrengjum.
En við gætum etv komið Ólafi í "skiptistöðu" hjá Bejing búum, t.d. við að taka á mengunarmálum og að varðveita 15. aldar götumynd á sumum stöðum í borginni. Í staðinn gætu Kínverjar skaffað okkur nokkra "dúdda" sem eru vanir að taka á liði eins og Saving Iceland og svoleiðis óþjóðalýð
![]() |
Íhugar að fara aftur út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 20. ágúst 2008
Spænski leikurinn
Spænski leikurinn hefst á 1.e4-e5 2.Rf3-Rc6 3. Bb5.
Þetta er a.m.k. spænski leikurinn í skákfræðunum.
En síðan mætum við Spánverjunum í undanúrslitaleiknum. Spánverjarnir hafa ekki sannfærandi í leikjunum hingað til og virðist þeir hafa sigrað Kóreumenn fyrst og fremst á stórleik Barrufets gamla í markinu.
Ég hef sagt það áður og endurtek nú: það skipti engu hvort liðið við myndum fá. Við eigum góðan séns á að taka þetta.
Reyndar held ég Spánverjarnir henti okkur jafnvel betur. Spekingar hér voru að tala um að best væri að fá Spánverja í 8-liða úrslitunum og því má ætla að það hljóti jafnframt að gott að mæta þeim í undanúrslitum.
Ætli við fáum ekki Frakka í úrslitaleiknum, ef....? En vonandi fara strákarnir í leikinn gegn Spánverjum með réttu hugarfari.
Það er e.t.v. til marks um íslenska landsliðið í handbolta akkúrat núna, að vandamál strákanna gæti orðið að vanmeta Spánverja!
![]() |
Íslendingar mæta Spánverjum í undanúrslitum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 20. ágúst 2008
Danir sitja eftir
Undir venjulegum kringumstæðum hefði maður haldið með Dönum í þessum leik. En eftir hroka þjálfarans og einstakra leikmanna, m.a. í garð íslenska landsliðsins, svo ekki sé talað um framkomu skapvonda þjálfarans verður maður að segja:
Takk Króatía!
Gott á Danina að falla út, úr því þeir létu svona.
Þeir hljóta nú að skipta um þjálfara, eða a.m.k. að hafa með geðlækni í næstu mótum.
![]() |
Króatar unnu - Danir leika ekki til úrslita |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 20. ágúst 2008
Snorri Steinn: Orðlaus!
Ég skil hann vel. Ég var sjálfur nánast orðlaus í leikslok og það gerist ekki oft úr mínum síkjaftandi munni.
Snorri hefur átt stórkostlegt mót og sjaldan verið betri. Ég skil ekki að danska liðið nái að halda honum lengur. Þýsku- eða spænsku liðin hljóta nú að bítast um hann, ef ekki núna, þá næsta sumar.
Stórliðin í Evrópu vita líka að nafnið tryggir gæðin.
![]() |
Snorri: Ég veit ekki hvað skal segja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 20. ágúst 2008
Gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar besta
Jæja, vonbrigðin frá Seoul 1988 og Aþenu 2004 eru gleymd og grafin. Merkilegt að sigra þetta pólska lið, þrátt fyrir að vera einum færri (að ósekju) lengi vel og án þess að besti maður liðsins (eða sá mikilvægasti amk) spili bara á 50% og geri voða lítið svosem.
Áfram Ísland.
Afsakið, en ég er að missa mig.
![]() |
Ólafur: Við kláruðum þetta skref |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 20. ágúst 2008
Gummi: "Þetta var stórkostlegt"
Já, svo sannarlega.
En það versta við þetta er, að maður er orðinn svo æstur að það er engin leið að einbeita sér að vinnunni.
En skítt með vinnuna.Við unnum Pólverja og erum komnir í undanúrslit á Ól.
Áfram Ísland.
![]() |
Guðmundur: Þetta var stórkostlegt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 20. ágúst 2008
Hr. forseti. Áttu ekki fálkaorður á lausu?
Ég er svo aldeilis. Ég var að missa mig þarna í morgun. Maður þoldi varla við. Óbærileg spenna.
En við vorum mikluuuuuuuuuuuuuuuu betri. Sanngjarn sigur.
Við vorum manni færri lengi vel, enda ráku dómararnir okkar menn út af fyrir svipað eða sama og Pólverjar komust upp með. Þreytandi svona lagað.
En við vorum einfaldlega betri.
Gummi tittur, Alexander og Snorri eiga bara að fálkaorðurnar med det samme, og Óli þegar hann hættir með landsliðinu.
Afsakið, en ég er gjörsamlega að missa mig.
![]() |
Ísland í undanúrslit á ÓL |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 20. ágúst 2008
Einkavæðum RUV
Óþolandi að láta snobbhænsnapjattlist smita sjónvarp allra landsmanna.
Út með þetta.
![]() |
Loksins, loksins, loksins, loksins myndlist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)