Mánudagur, 23. júlí 2007
Getraun
Skák | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 23. júlí 2007
Ljungberg til West Ham!
Jæja, þá er Svíinn farinn. Ekki Mr. Gustavsberg, sem ég þekki best Svía, heldur Mr. Ljungberg, sem hefur spilað með Arsenal síðan 1998.
Ljungberg var hér á árum áður frábær leikmaður, en hefur verið plagaður af meiðslum á síðustu árum, ekki síst í fyrra. Þá spilaði hann aðeins hluta af sísoninu og þegar hann spilaði, gat hann ekki neitt. Og fyrir yfir 70.000 pund á viku.
Með laun hans í hug er gott að losna við Freddie. En nú þarf Arsenal að kaupa reynslubolta í staðinn. Ekki fleiri unglinga. Það verða einhverjir að vera það gamlir, að mega vera úti eftir 10, ef ske kynni að liðið þurfti að spila erfiða kvöldleiki.
![]() |
Ljungberg til West Ham |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 23. júlí 2007
Skiptir stærðin máli?
Ég skil reyndar ekki þörfina fyrir svona byggingu, nema auðvitað í montskyni.
En skiptir stærðin virkilega máli?
![]() |
Hæsta bygging í heimi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 23. júlí 2007
Úr Elliðaárdal
Hvílíka perlu eigum við ekki, Reykvíkingar, að hafa Elliðaárdalinn. Engu að síður efa ég, að margir útlendingar viti hvað þar er að finna; þeir túristar sem hingað koma rúnta í miðbænum, fara í Perluna eða eitthvað smotterí, og drífa sig síðan úr bænum hið snarasta.
Ég hef víða farið, en man ekki eftir að hafa séð stað eins og Elliðarárdal í miðri borg; jafnvel Central Park bliknar í samanburðinum, enda tilbúið system þar á ferðinni.
Ég flutti nýlega í Stekkjahverfið í Reykjavík, en þaðan er aðeins steinsnar í Dalinn. Þangað hafði ég ekki komið síðan ég var á unglingsárunum. En ég ákvað það skyndilega í gær að labba niðrí dal. Ég var nú bara á stuttbuxunum og á ástkæra ylhýra bolnum inni við beinið, en skellti yfir mig skyrtu til að verða ekki kalt. Gekk ég um nær allan dalinn og komst heim við góðan leik um ellefu leytið.
Ég hef sjaldan haft eins gaman af göngutúr. Þarna er alveg ofboðslega fagurt og gaman að sjá þarna tugi kanína á ferð á svæðinum næst Stekkjunum. Þar var líka maður með brauð að gefa önd... nei, ég meina kanínunum. Ég gekk þarna um í kyrrðinni, það voru nánast engir þarna á ferð um þetta leyti. Þetta var alveg magnað.
Ég á fastlega von á, að gera svona rúnt að föstum lið héreftir. Jafnframt skora ég á þá, sem þetta lesa, að gera ekki slíkt hið sama. Ágætt að hafa þennan fagra stað að miklu leyti út af fyrir sig. En hvílíkur draumastaður er þetta!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 23. júlí 2007
Hvað segja sósíalistarnir nú?
Einn helsti dýrlingur margra sósíalista hér á landi er Hugo Chavez, einræðisherra í Venesúela. Hann hefur barið niður stjórnarandstöðu og er nú farinn að hóta útlendingum, sem ekki eru sammála honum, brottrekstri.
Nú, á meðan les maður hjá einstaka sósíalískum bloggara, að mótmæli Saving Iceland séu í raun bara hið besta mál og aðgerðir lögreglu vafasamar.
En styðja þeir eina fyrirmynd sína, Chavez, í því að reka útlenda stjórnarandstæðinga úr landi, meðan þeir eru jafnvel andvígir því, að lögreglan trufli ÓLÖGLEG mótmæli útlendinga hér á landi? (Ok, hér er verið að setja sósíalista undir einn hatt, en auðvitað eru undantekningar).
Er þetta er bara hræsni?
![]() |
Chavez hótar að vísa gagnrýnendum sínum úr landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 22. júlí 2007
Beinar útsendingar
Beinar útsendingar frá Politiken skákmótinu eru nokkuð skemmtilegar. Í dag, í 2. umferð, gerði Lenka Ptacnikova jafntefli gegn Svetlönu Agrest á Norðurlandamótinu í kvennaskák, en mótið er haldið samhliða Politiken Cup.
Í dag eru Guðmundur Kjartansson og Bragi Þorfinnsson báðir í beinni útsendingu í skákum gegn sterkum stórmeisturum, hinn ungi og efnilegi Bragi (mynd til vinstri) gegn Sargissian, grjótsterkum Armena, sem tefldi á Rvk open 2006, og Gummi með svart gegn Íslandsvininum De Firmian frá USA / Danmörku, en hann hefur oft teflt hér á landi.
Vek athygli á þessu, ef einhverjir hafa áhuga. Sjá heimasíðu Politiken Cup.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 22. júlí 2007
Svindl á eBay
Ég hef aldrei skráð mig á eBay, aldrei haft áhuga á því. Enn síður hef ég skráð mig mörgum sinnum, einu sinni á hvert email sem ég hef.
En svo virðist samt vera. Í morgun fékk ég einu sinni enn eitthvert staðfestingarmeil frá eBay um að staðfesta account sem ég á að hafa stofnað undir mínu nafni á mínu emaili.
Það hafði ég aldrei gert.
Óþolandi að hafa þessa svindlara þarna úti.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 22. júlí 2007
Betur að svo færi
![]() |
Íranar segja að Bandaríkin ætli að steypa klerkastjórninni af stóli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 22. júlí 2007
Who cares?
Kannski sumir, en ekki ég.
Á hinn bóginn eru vísast margir einmana karlar ánægðir með að fá nú loksins mynd um fjórar graðar júnkur í New York.
![]() |
Parker og Cattrall vinkonur að nýju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 21. júlí 2007
Fífl!
![]() |
Málningu hellt á skrifstofur Athygli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)