Miðvikudagur, 30. júlí 2008
Jafn heitt í Reykjavík og New York
Jæja, það hefur nú oft verið heitara en þetta í New York.
En það sem okkur þykir heitt í júlí, er nú frekar slappt þarna vestanhafs.
En jæja, um að gera að njóta þessa meðan heita veðrið varir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 30. júlí 2008
Vestmannaeyjar liggja niðri
![]() |
Eyjan liggur niðri vegna bilunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 30. júlí 2008
Einelti, samsæri, árásir,...
Ég sit hér og kafna úr hita. Svitinn lekur; engu breytir þó ég sé nánast bebbaður (ber) að ofan og hafi viftuna á fullu.
Það versta er, að ég er að setja upp og efnisvinna heimasíðu flottrar ísbúðar hér á Stór-Breiðholtssvæðinu. Alveg ómögulegt að hugsa ekki um ís í svona kringumstæðum. Og síðan, þegar ég ætlaði að taka smá pásu, kom eineltislag upp á músíkspilaranum:
Can't Walk Away með Herberti íssala.
Ég meina, common, þetta er nú orðið verulega þreytandi. Hverjir ætli standi að þessu samsæri gegn sálarheilsu minni?
![]() |
29 gráður og sólskin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 30. júlí 2008
Kínverjar að missa það endanlega?
"Kínverskur kennari hefur verið sendur í vinnubúðir fyrir að birta myndir á netinu af barnaskólum, sem hrundu í jarðskjálftanum sem reið yfir Sichuan hérað í Kína þann 12. maí."
Jahérna, hér. Jæja, arfleifð kommúnismans virðist ekki ætla að hverfa fyrir ætternisstapann í Kína frekar en sums staðar í öðrum löndum.
Kannski forseti vor biðji um að fá að heimsækja kínverska kennarann þegar hann fer til Kína í næsta mánuði? Eða menntamálaráðherra?
![]() |
Dæmdur í vinnubúðir fyrir að birta myndir á netinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 30. júlí 2008
Byrjunin á gjaldþrotahrinu?
Jæja, Mest gjaldþrota. Svona gerist.
En hvaða fyrirtæki verða næst? Að minnsta kosti er ég með ákveðinn óskalista yfir fyrirtæki sem mín vegna mættu fara á hausinn:
1. VÍS
2. Vélar .... á Bíldshöfðanum
3. Rekstrarfélag KR
4. BYKO
5. Önnur sem ég man ekki eftir akkúrat núna en hafa haft í frammi dónaskap eða okur.
![]() |
Mest gjaldþrota |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 30. júlí 2008
Skoðanir
Á bloggsíðu Össurar segir kappinn eftirfarandi (frá Kanarí, að mér sýndist):
"Nú síðast var það svo Gjástykki. Það er einsog Landsvirkjun líti á sig sem prótokollmeistara í stjórnarráðinu, albúin að hlaupa undir bagga með leiðbeiningar um kórrétta mannasiði þegar barbarar einsog við Björgvin frá Skarði leyfum okkur að hafa skoðanir,"
Þessi játning hlýtur að vera Samfylkingunni mikið áhyggjuefni. Grundvöllur flokksins hlýtur að skekkjast og jafnvel molna ef í ljós kemur, að einhverjir í innsta hring skuli virkilega hafa skoðanir.
Hvernig á flokkur að berast áfram undan vindi og fylgja sinni hefðbundnu hentistefnupólítík ef ráðherrar hans eru farnir að leyfa sér þann munað að fylgja eigin sannfæringu (og það jafnvel áður en skoðanakönnun er gerð um málið!)
En annars skil ég ekki þetta vinstri pot í Össuri. Það sér hver maður, að Össur er hægri maður og ætti hann að halda áfram vegferð sinni frá Marx til Friedmanns og co. En ef svo myndi fara væri síðasti móhíkaninn horfinn frá Hentistefnufylkingunni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 29. júlí 2008
Þingið
Ha, er Bandaríkjaþing enn ekki komið í "frí fyrir sumarið"?
Merkilegt.
Hvenær fór Alþingi Íslendinga aftur í sumarfrí? Apríl? Maí?
![]() |
Forsetinn þrýstir á þingið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 29. júlí 2008
Ritskoðun Kínverja
Þetta gæti orðið verulega shaky. Það er hreinlega með ólíkindum að Ól-nefndin skuli hafa ákveðið að halda leikana á þessum stað, þar sem mannréttindi eru brotin jafn gróflega og raun ber vitni.
Ef þetta átti að vera til að sætta eða opna Kína enn frekar, hefur það greinilega mistekist.
![]() |
Ólympíunefndin skoðar ábendingar um ritskoðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 29. júlí 2008
Handboltalandsliðið
Jæja, svona er lífið. Birkir Ívar sendur til Grænlands á vit ísbjarna; með honum fara Rúnar Kárason, Vignir varnartröll Svavars og Hannes.
Þetta meikar sens. En það segir sitt e.t.v. að æfingalaus Logi Geirs komist með og Ingimundur litli. Við eigum greinilega engar stórskyttur þeim megin, nema í besta falli AA.
En restin ætti að vera í lagi...maður vonar bara að liðið smelli í gang í Beijing, þar sem mengun og mannréttindabrot svífa yfir vötnum.
![]() |
Birkir Ívar úti í kuldanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 29. júlí 2008
Útungunarvél?
Faktískt ætti þetta að vera hálf sorglegt, en ef börnin eru hamingjusöm og líða ekki skort ætti þetta að vera í besta lagi.
En svona myndi ekki gerast á Íslandi á okkar tímum þó þetta hafi verið víðþekkt áður, en t.d. áttu nú sumir forfeður mínir fleiri systkini en þau sem hér eru til umræðu.
![]() |
Frjósamasta kona jarðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)