Fimmtudagur, 31. júlí 2008
Yndislegt
![]() |
Undirbúningur skemmra kominn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 31. júlí 2008
9% Rússa telja að Mevedev haldi um stjórnartaumana
Hver er þessi Mevedev? Sá hefur aldeilis völd!
En ok, hættum að stríða Mbl.is fyrir stafsetninguna og að vera ekki með það á hreinu hvort 9% eða tæp 10% telji að hann stjórni. Ég er ekkert hissa á þessu, enda er flestum ljóst að Pútín stjórnar því sem hann vill stjórna.
![]() |
Aðeins 9% Rússa telja að Medvedev haldi um stjórnartaumana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 31. júlí 2008
Klámhundar á Akureyri
Ein með öllu og allt undir"
Þetta hlýtur að kalla á hörð viðbrögð Femínistafélagsins.
![]() |
Ást á rauðu ljósi á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 31. júlí 2008
Femínistakarlar hafa rétt fyrir sér.
Það sjá það auðvitað allir, sem vilja, að klám og kvenfyrirlitning er alls staðar í dægurtextum og ljóðum. Gott hjá Feministum að vekja máls á þessu.
Til dæmis má taka mörg klassík dæmi:
Svífur yfir Esjunni = stelpan er orðin full (Esja táknmynd upp á konu)
osfrv...restin má skoðast í þessu ljósi.
Ef ég væri orðin lítil fluga = ef ég hefði óheftan aðgang
..inn um gluggann = gluggi er gat :)
Eldgamla Ísafold = MILF
ástkæra fósturmold = ólétt
osfrv
"Ég lifi í draumi" með BJögga er auðvitað vísun í "blauta drauma".
"Þitt fyrsta bros" merkir auðvitað afmeyjun.
"Mér finnst rigningin góð" merkir auðvitað að stelpunum finnst gott að láta spr.... á sig.
Mikið var að einhver vekur máls á þessum dónaskap í íslensku dægurmenningu. Síðan er auðvitað alveg ljóst, að ríkisstjórnin er dulnefni fyrir drykkjufélag, KR er dulnefni fyrir KarlRembur, osfrv.
Klám og dónóskapur leynist víða!
![]() |
Texti Baggalúts snýst ekki um eðlilega hegðun" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 31. júlí 2008
Sanngjarnt
Bentley var seldur til Svartbrenninga fyrir afar lága upphæð, en þetta ákvæði, sem þarna er nefnt, er oft notað þegar efnilegir leikmenn eru seldir fyrir klink.
En þarna fór góður biti í hundskjaft. Ekki margir Arsenal-menn sem spila síðan fyrir Spurs, eða öfugt.
Spurs virðist ætla að hafa gott lið á næsta ári. Seldu Keane fyrir 20 millur og gætu selt Berbatov fyrir c.a. 25 millur, eða meira. Fyrir þennan pening má kaupa jafngóða strikera eða betri, og eiga samt afgang.
Því miður hafa Spurs menn vitkast. Í stað þess að sanka að sér miðlungsleikmönnum í stórum stíl (með nokkrum undantekningum) hafa þeir nú tekið upp á því að kaupa góða leikmenn eins og Modric, Bentley og fleiri (og losnað við slatta af miðlungsleikmönnum t.d. til Sunderland). En nú vantar Spurs sem sagt framherja og markmann í stað Robinson Krúsó. Það hlýtur að reddast á næstu dögum.
Mér er illa við að segja þetta, en ég óttast að Spurs muni blanda sér í baráttuna við Liverpool um fjórða sætið á komandi leiktíð og hugsanlega hafa betur.
![]() |
Arsenal hagnast á kaupum Tottenham á Bentley |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 31. júlí 2008
Suðuland
Æ, að geta ekki einu sinni skrifað skammlausan titil.
En hvað ætli sé verið að elda þarna suðu-frá?
![]() |
Pétur Kr. Hafstein gjaldhæstur á Suðurlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 31. júlí 2008
Olíuverðið
Já, er það ekki bara þannig, að olíufélögin græða mest á núverandi stöðu í eldsneytismálum? Nú verður gaman að sjá uppgjör Skeljungs, Olís og N1 hér á landi.
Þau ættu að vera í góðum málum, enda græða þau víst 5 milljónir aukalega á dag fyrir það eitt að vera fljót að hækka verð en sein að lækka.
![]() |
930 milljarða gróði á þremur mánuðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 31. júlí 2008
Lokað vegna sumarleyfa
Hamas-umboðið á Íslandi er lokað vegna sumarleyfa fram yfir verslunarmannahelgi, eða þangað til næst gefst tækifæri til að gagnrýna Ísrael, með réttu eða meintu.
Í neyðartilvikum má hafa samband við skrifstofu BSRB.
![]() |
Pyntingar í Palestínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 30. júlí 2008
Tær snilld!
Úff, þegar maður hélt að blm. Mbl.is gætu ekki sokkið neðar í vitleysunni kemur þessi frétt. Svona vinnubrögð hljóta að vera stjórnendum Mbl. áhyggjuefni.
En Mogginn kemur lesendum þó til að glotta af ólíklegasta tilefni.
Með kveðju héðan af úr Laugardalnum (sem hlýtur þá að vera á Suðurlandi!)
![]() |
Fimmta andarnefjan finnst dauð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 30. júlí 2008
Hættulegir þessir birnir
Greinilega eru skógarbirnir ekki síður hættulegir en ísbirnir.
En ég er þó smeikastur við Sigurbirni, þeir virðast vera, amk sumir þeirra, afar fljótir að reiðast og árásargjarnir.
![]() |
Skógarbjörn með plastfötu á höfðinu felldur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)