Þriðjudagur, 17. júní 2008
Inngangan í ESB
Innganga ríkja í ESB hefur jafnan verið með þrenns konar hætti, frá því nýliðar tóku að streyma inn. Annars vegar komu inn ríki sem vildu stjórna, eins og Bretland, í öðru lagi ríki eins og Austurríki, Svíþjóð og Danmörk, sem voru setin af krötum sem trúa mönnum meira á þennan samkrull þjóða og ríkja, og í þriðja lagi misjafnlega fátæk eða illa stæð ríki sem vildu græða, t.d. Írland, Finnland, Spánn, Portugal, Grikklands & co og ríki Austur-Evrópu.
Við sjáum að hin síðari ár hafa nær eingöngu fátæk eða veikburða ríki gengið í ESB (gæti verið undantekning á reglunni :) ), en sterkari ríkin, efnahagslega, eins og Sviss, Noregur og Ísland staðið utan við, ríkin þar sem fólkið er einna best stætt í Evrópu.
Myndu þessi ríki græða á inngöngu, í ljósi sögunnar? Eða þurfa að borga með sér; borga fyrir að glata sjálfstæðinu endanlega í hendur skriffinna í Brussel? Nei, kratarnir stjórna ekki hér eins og í Svíþjóð og víðar. Hér eru líka aðilar með sjálfstæða hugsun.
Ég vil ekki ganga í ESB. Ég held að Íslendingar tapi meira á inngöngu og græði. Það besta við inngönguna yrði, að þá myndum við losna við flesta leiðinlegustu Samfó-aðilina til Belgíu.
![]() |
Noregur og ESB: Flestir á móti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 17. júní 2008
Eru ekki frönsku orrustuþoturnar hérna ennþá?
![]() |
Flugbann ekki virt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 17. júní 2008
Björgvin ráðherra verður skýrari fyrr en seinna
"Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra: Mun skýrast fyrr en seinna"
segir í fyrirsögn Mbl.is. Ekki seinna vænna. Hlýtur að vera vont fyrir manninn að vera svona óskýr og sitja í embætti ráðherra. En þetta útskýrir vísast hvers vegna hann lætur svona drengurinn.
En úr því Björgvin verður smám saman skýrari getur maður vísast átt von á því, ef hann skýrist mikið, að hann skipti um stjórnmálaflokk og fari frá þeim óskýru.
![]() |
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra: Mun skýrast fyrr en seinna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 17. júní 2008
Enn eitt bullið um bangsa
![]() |
Erfið aðgerð framundan að Hrauni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 16. júní 2008
Spenna hlaupin í Landsbankadeildina?
Jæja, þetta var nú ágætt. FHingarnir ætla þá ekki algjörlega að slátra deildinni.
En gaman að þessu. Nú er ljóst orðið að enginn er öruggur með neitt. Greinilega geta allir unnið alla.
En nú er jafnframt ljóst, að FRAM er sterkasta varnarliðið í deildinni, hefur aðeins fengið á sig fjögur mörk, þar af tapað þremur leikjum. En ekki hafa mínir menn samt verið á skotskónum. :)
![]() |
Breiðablik vann stórsigur á FH |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 16. júní 2008
Meiddur fótboltavöllur
Jæja, í Fjölnir-Fram leiknum segir svo frá í lýsingu:
41: Joe Tillen fer af velli sem meiðist.
Ég man ekki áður eftir að hafa séð það, að leikmaður fari af velli þegar völlurinn meiðist! En jæja, allt er víst hægt í fótboltanum.
![]() |
Fram sótti þrjú stig í Grafarvoginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 16. júní 2008
Útvarp Frjálslynda flokksins í klandri
Jæja, nú virðist Útvarp Frjálslynda flokksins vera í smá bömmer. Ekki nóg með að því hafi mistekist að svíkja manninn um laun, heldur þarf nú að greiða dráttarvexti af heildarsummunni, auk eftirstöðva.
Eitt er að vera frjálslyndur, en þegar kemur að þvi að borga laun er lítið frjálslyndi leyfilegt.
![]() |
Útvarpi Sögu gert að greiða eftirstöðvar launa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 16. júní 2008
Annar ísbjörn kominn
![]() |
Ísbjörn í æðarvarpi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 16. júní 2008
Fyrr má nú aldeilis fyrrvera
En jæja, ég commentaði í morgun á, að ákveðin grein á mbl.is væri ítarleg og vönduð, en ekki bara þunn þýðing úr ensku yfir á ísl-ensku eins og oft vill verða. Þessi grein er jafnframt óvenju góð. Er þetta tilviljun, eða er Mogginn að bæta mbl.is greinaskrif og vinnslu?
Fann engan klappkarl, svo þessi verður að duga. Það er ekki svo oft að maður geti hrósað mbl.is mönnum fyrir góð greinaskrif.
En að græna skrímslinu, sem er að slá í gegn. Ætli hið sofandi græna skrímsli hér á Íslandi, Framsóknarflokkurinn, nái jafn vel að slá í gegn á næstu misserum og Uncle Hulk gerði í USA?
![]() |
Græna skrímslið slær í gegn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 16. júní 2008
Til hvers að gera sjálfsvígsárás?
OK, hér voru vísast Tamíl-Tígrar á ferðinni. En ólíkt t.d. íslömskum sjálfsmorðsárásarmönnum, sem lofað er slatta af sveskjum / meyjum (eftir því hvaða merking er lögð í orðið - burtséð frá því að þetta loforð ku vera afar vafasamt, guðfræðilega séð!) fyrir verknaðinn, þá veit ég ekki til að neitt sérstakt taki við fyrir uppsprengda Tamíl-tígra. Ein svona sprenging færir sjálfstæði Tamíla engu nær, eina sem þetta gerir er að fækka íbúum landsins um 12 og veita læknum yfirvinnu.
Ég fatta ekki tilganginn með svona. Fatta eiginlega heldur ekki tilganginn með sjálfsmorðsárásum eða drápum á almennum borgurum almennt.
Japanskir sjálfsmorðsflugmenn á tíð seinni heimsstyrjaldar gengu í dauðann fyrir hinn guðlega keisara sinn, en sá aflagði guðlegt tilkall sitt eftir stríð, enda fékk hann kvef og pestir eins og hver annar og því lítið guðlegt við hann svosem. Þeir voru að fórna lífi sínu fyrir ættjörðina, rétt eins og hver einasti hermaður í heiminum gæti þurft að gera (nema þeir sem sitja á rassinum á skrifstofum!).
En ef maður ber saman tilgangslausar árásir á óbreytta borgara, eins og t.d. Tamílar gera þarna, og sjálfsmorðsárásir í stríði, eins og á tíð japönsku orrustuflugmannanna, verður maður að segja, að þar er um tvennt ólíkt að ræða. Í öðru tilvikinu er um að ræða árásir á hernaðarlegt skotmark, fjarri dvalarstöðum óbreyttra borgara, í hinu tilvikinu er líklegt að óbreyttir borgarar falli jafnframt lögreglumönnunum, ef "vel" tekst til. (Við gleymum því stutta stund að Japanir töldu t.d. kínversk mannslíf lítils virði, sbr. framferðið í Nanjing). Maður hefur samúð með málstað hvorugra, en skilur þó betur þá japönsku.
Engu að síður tel ég sjálfsmorðsárásir viðurstyggilegar...menn geta svo fundið undantekningartilvik ef nenna er yfir hendi.
![]() |
Mannskæð sjálfsvígsárás á Sri Lanka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)