Fimmtudagur, 5. júní 2008
Thriller
![]() |
Michael Jackson tryggði Þrótti sigur í Árbænum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 5. júní 2008
Lecter í bann
Ég átti nú von á meiru. En jæja, kannski veit KSÍ upp á sig einhverja sök í málinu. Spurningin með eld og reyk...en auðvitað fór Guðjón yfir strikið, það segir sig sjálft og það vissi hann, en varð að fá að steama aðeins.
![]() |
Guðjón í eins leiks bann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 5. júní 2008
Breimandi Laugardalur
Nú hljóta íslenskir kettir að ruglast ærlega í ríminu þegar þeir heyra þetta angurværa breim neðan úr Laugardal.
En ég passa mig á því að fara út úr bænum þennan dag. Þetta er too much fyrir eyrun mín viðkvæmu.
![]() |
Tónleikar Bjarkar og Sigur Rósar verða í Laugardal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 5. júní 2008
Frétt eða ekki-frétt
![]() |
Bensínverð hækkaði í gær |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 5. júní 2008
Farmiðaverð miðað við þyngd
Ja, þetta er svosem ágætt. Mér skilst að Bandaríkjamenn ferðist hlutfallslega mest allra þjóða og eru jafnframt "þyngsta" þjóð í heimi. Greinilegt að þetta er allt vel skipulagt.
Ég styð þetta, enda grannur og spengilegur maður í tveggja stafa tölunni.
![]() |
Farmiðaverð eftir þyngd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 5. júní 2008
Kaþólikkar dissa Símann
Í sjálfu sér skilur maður kaþólikka; það er afar sárt að láta minna sig svona á slæma fortíð, ekki síst af manni sem starfaði víst hjá kirkjunni við bóksölu eða eitthvað slíkt í fyrra, Gnarraranum.
Persónulega finnst mér þessi auglýsing bæði smekklaus og leiðinleg; en vísast af öðrum ástæðum en sumir kaþólikkar amk, þ.e. út frá sagnfræðilegum forsendum. Greinilegt að Síminn á nægan pening úr því ok er að eyða milljónunum í svona vitleysu.
![]() |
Segja upp viðskiptum við Símann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 4. júní 2008
Ætli þetta virki ekki á mannfólkið?
![]() |
Heimskar flugur lifa lengst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 4. júní 2008
Árekstur við "mafíuna"?
Jæja, löggan komin og farin. Innbrotið formlega afstaðið. Tæknideildin horfin á braut og ljóst er af ummerkjum og því sem var stolið að hér hafa útlendingar átt í hlut, vísast erlent glæpahyski sem gert hefur verið út til að ræna og rupla hér á landi af mafíu eða einhvers konar glæpahyski. Nei, ég er ekki að koma af stað neinni útlendingaparanóju, þetta var það sem löggan sagði. Og annað hús tekið alveg eins í dag niðrí Smáíbúðahverfi.
Silfrið hennar ömmu er því á leiðinni til útlanda, að því að best fæst séð. Meira hyskið...
Vatn á myllu FF, það er nokkuð ljóst.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 4. júní 2008
Já, endilega
Um að gera að góma þetta hyski og stinga því inn. Löggjöfina þarf að bæta, en persónulega finnst mér að dómar mættu vera lengri.
Og lið þetta fjármagnar sig með innbrotum og óþverraskap...sveiattan. Senda þetta pakk bara til Afganistans, þar drýpur dópið hvort sem er af hverju strái. Já, heima hjá mér er allt í rúst...innbrotsþjófar smeygðu sér inn í dag, inn um pínkuponsglugga og hreinsuðu allt verðmætt. Ég kann að vera í einhverju uppnámi þess vegna.
![]() |
Aukið samstarf lögreglu og tolls um fíkniefnamál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 4. júní 2008
"Enginn óskadráttur"

![]() |
Enginn óskadráttur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |